Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1998, Side 69
hærra á loft. Júpíter reikar úr fiskamerki í vatnsberamerki, en Satúrnus
er nokkru austar, í stjörnumerkinu Hvalnum. Venus er morgunstjarna,
'ágt í norðaustri nálægt birtingu. Mars er einnig morgunstjarna, ekki
'angt frá Venusi, en miklu daufari. Hinn 5. ágúst verða þær næst hvor
annarri (sjá bls. 35). Undir mánaðarlok bætist Merkúríus í hópinn.
Hann er er að fjarlægjast sól, gengur fram hjá Venusi (neðan við Venus
á morgunhimni) og er kominn vestur fyrir hana í lok mánaðarins.
September
Júpíter er á lofti alla nóttina þar til síðla mánaðar, að hann sest fyrir
birtingu. Hann er í vatnsberamerki. Um miðjan mánuðinn er hann í
gagnstöðu við sól og þá í hásuðri um miðnættið. Satúrnus er ekki eins
bjartur, en hærra á lofti og sest ekki meðan myrkur er. Hann er nokkru
austar á himni en Júpíter og reikar úr hvalsmerki í fiskamerki. Venus
er enn morgunstjarna á austurhimni þegar birta tekur, en lágt á lofti og
nálgast mjög sól er á mánuðinn líður. Merkúríus er morgunstjarna í
byrjun mánaðar, aðeins lengra frá sól en Venus, en miklu daufari. Frá
1- til 7. september nær hann 7° hæð í aust-norðaustri fyrir birtingu í
Reykjavík og er þá hugsanlegt að hann sjáist. Birta hans fer vaxandi á
þessum tíma. Mars er einnig morgunstjarna, lengra frá sól en hinar
tvær, en daufari og rauðleitari. Hann reikar úr krabbamerki í ljónsmerki.
Október
Júpíter er bjartasta stjarnan á næturhimninum. Hann er kominn upp
í aust-suðaustri þegar dimmir í Reykjavík og sest ekki fyrr en síðla næt-
ur. Júpíter er í vatnsberamerki. Satúrnus er á lofti nær allar myrkur-
stundir mánaðarins. Síðla mánaðar kemst hann í gagnstöðu við sól og
er þá í hásuðri um miðnættið, allhátt á lofti. Satúrnus er í fiskamerki,
nokkru austar en Júpíter. Bjartasta reikistjarnan, Venus, er morgun-
stjarna, en mjög nærri sól. Helst er að sjá hana í byrjun mánaðar, lágt í
austri fyrir sólarupprás. Mars kemur upp að áliðinni nóttu og hefur náð
góðri hæð á suðausturhimni í birtingu. Hann er í ljónsmerki og gengur
nálægt hinni björtu stjörnu Regúlusi 6. október (sjá bls. 43). Mars verð-
ur þá daufari en Regúlus, en ber rauðleitan blæ.
Nóvember
Júpíter er kvöldstjarna í vatnsberamerki, björt og áberandi og sest
eftir miðnætti. Satúrnus er nokkru austar, í fiskamerki, mun daufari en
Júpíter, en er á lofti fram undir morgun. Mars er morgunstjarna og
kemur upp á sama tíma í Reykjavík allan mánuðinn (skömmu fyrir kl.
3 að nóttu). Hann reikar úr ljónsmerki í meyjarmerki.
Desember
Júpíter er enn áberandi á kvöldhimninum. Hann er í vatnsberamerki
og sest um eða fyrir miðnætti. Satúrnus er austar en Júpíter, í fiska-
merki, kemst hærra á himin og er lengur á lofti, en er mun daufari.
(67)