Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1998, Side 101
ÁRFERÐI
Árið 1996 var hægviðrasamt og milt. Nóvember var þó
með afbrigðum kaldur um allt land.
Mestur hiti, sem mældist á árinu, var á Egilsstöðum 17.
júlí, en þá mældust þar 26,6 stig. Mestur kuldi varð í
Möðrudal á Fjöllum 24. nóvember, en þar mældist 26,9
stiga frost. Mest sólarhringsúrkoma var á Kvískerjum í Ör-
æfum 8. apríl, 108,1 mm.
I Reykjavík var meðalhiti ársins 5,0 stig, sem er 0,7 stig-
um yfir meðaltali áranna 1961-1990. Sólskinsstundir í
Reykjavík voru 1.293,7, sem er 25 stundum meira en í með-
alári. Úrkoma í Reykjavík varð 768,9 mm, sem er 96% af
meðalúrkomu. Mestur hiti í Reykjavík á árinu mældist 31.
júlí, 17,4 stig, en kaldast varð 27. febrúar, en þá mældist 10,2
stiga frost. Mest úrkoma í Reykjavík varð 16. júní, 28,3 mm.
Á Akureyri var meðalhiti ársins 4,1 stig, sem er 0,9 stig-
um yfir meðaltali áranna 1961-1990. Sólskinsstundir voru
1.063,8, sem er 17 stundum yfir meðaltali. Úrkoma varð
435,2 mm, sem er 92% af meðalúrkomu. Mestur hiti á Ak-
ureyri á árinu mældist 17. júlí, 24,5 stig, en kaldast varð 24.
nóvember, en þá mældist þar 16,6 stiga frost. Mest úrkoma
á Akureyri varð 6. ágúst, 27,7 mm.
I janúar var mikil veðurblíða um allt land, og er það til
marks, að auð jörð var í Fljótum í byrjun þorra. Hvassviðri
var þó á Vestfjörðum 17. janúar og fuku bílar á Hnífsdal.
Ekki var skíðafært í Bláfjöllum fyrr en 25. janúar. - I febrú-
ar kólnaði og tók að snjóa, og var fyrsti snjómokstursdagur
í Reykjavík 5. febrúar. Hinn 21. febrúar gekk suðvestan-
stormur yfir landið og náðu vindhviður í Reykjavík 64
hnútum eða 12 vindstigum. Sjór stóð hátt, og urðu nokkrar
skemmdir vegna flóða á Álftanesi, Seltjarnarnesi og við
Ólafsvík. - í marz var svo milt og snjólétt, að Lágheiði var
opnuð hinn 12. þess mánaðar. Um svipað leyti var víða
kominn grænn litur á tún í Skagafirði. Á Akureyri var mest
sólskin frá upphafi mælinga 1924 og úrkoma hin minnsta
síðan 1944. - í apríl og maí var hlýtt, einkum um suðvest-
(99)