Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1998, Side 191
Bílatryggingar. Félag íslenzkra bifreiðaeigenda hóf í
september að selja félagsmönnum sínum ódýrari bílatrygg-
ingar en áður höfðu tíðkazt. Tryggt var hjá ensku félagi:
Ibex Motor Policies at Lloyd’s. íslenzku félögin tilkynntu
skömmu síðar lækkun á sínum iðgjöldum.
Björk í Time. I 50 ára afmælisútgáfu bandaríska vikurits-
ins Time í desember var rætt um Björk Guðmundsdóttur í
hópi helztu listamanna síðustu fjögurra áratuga.
Blöð og tímarit. Sú breyting varð í tímaritaútgáfu í jan-
úar, að Vikan varð ársfjórðungsblað og nýtt tímarit, Séð og
heyrt, hóf göngu sína hjá Fróða. - Lesbók Morgunblaðsins
tók miklum breytingum frá 22. júní. Hún var þá sameinuð
sérblaði um menningarmál. Útliti Lesbókarinnar var þar
með breytt í þriðja sinn, en hún hefur komið út frá 4. októ-
ber 1925. - í ágúst varð ljóst, að tvö gömul dagblöð, Tím-
inn í Reykjavík og Dagur á Akureyri, yrðu sameinuð.
Petta gerðist með þeim hætti að Frjáls fjölmiðlun, sem gaf
út Tímann, keypti Dagsprent á Akureyri, sem síðan skyldi
gefa út hið nýja blað. Hinn 29. ágúst kom út fyrsta tölublað
af Degi-Tímanum, en ritstjóri þess var Stefán Jón Hafstein.
- Páll Vilhjálmsson, ritstjóri Vikublaðsins, ásamt fleirum
keypti Helgarpóstinn af prentsmiðjunni Odda. Kom blaðið
út undir stjórn nýrra eigenda 24. október.
Breiðþotubrúðkaup. Hinn 23. júní voru brúðhjón úr hópi
flugfólks gefin saman í hjónaband í breiðþotu flugfélagsins
Atlanta yfir heimskautsbaugnum.
DNA-rannsókn. Hinn 1. febrúar sýknaði Hæstiréttur
brezkan sjómann af nauðgunarkæru á grundvelli DNA-
rannsókna, sem unnar voru í þremur löndum, Islandi, Nor-
egi og Bandaríkjunum.
Ein Kringla. Hinn 23. janúar var samið um innlimun
Borgarkringlunnar í Kringluna.
Einn, einn, tveir. Neyðarnúmerið 112 var tekið í notkun
um allt land í ársbyrjun. Nokkuð bar á kvörtunum undan
þessari nýju tilhögun.
Einkanúmer. 19. júní var fyrsta einkanúmerið sett á bíl.
Pað var ÍSLAND í eigu Árna Johnsens alþingismanns.
(189)