Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1998, Page 194
Getraunir, happdrœtti og lottó. í janúar var dreginn út 24
milljón króna lottóvinningur. Hann var sagður skiptast
milli fjögurra fjölskyldna á Selfossi. - í nóvember fengu
ung hjón á ísafirði 32,6 milljónir króna í heita potti happ-
drættis Háskóla Islands. Þetta var talinn næsthæsti happ-
drættisvinningur hérlendis.
Giftist inn í norsku konungsfjölskylduna. Islenzk stúlka,
Margrét Guðmundsdóttir úr Reykjavík, og Alexander
Ferner bflasali og systursonur Haralds Noregskonungs
voru gefin saman í hjónaband 27. júlí.
Gjaldþrot AB. Almenna bókafélagið var lýst gjaldþrota í
júní. Lýstar kröfur í þrotabúið námu 143,5 milljónum
króna. AB var stofnað árið 1955 til mótvægis við Mál og
menningu. Fyrsti formaður stjórnar var Bjarni Benedikts-
son, en fyrsti framkvæmdastjóri Eyjólfur Konráð Jónsson.
Baldvin Tryggvason var framkvæmdastjóri 1960-76, en síð-
an voru Brynjólfur Bjarnason, Kristján Jóhannsson, Óli
Björn Kárason og Friðrik Friðriksson framkvæmdastjórar.
Grunnskólinn til sveitarfélaga. Hinn 1. ágúst tóku sveitar-
félögin í landinu við öllum rekstri grunnskóla.
Hafréttardómstóll. Guðmundur Eiríksson þjóðréttar-
fræðingur var í júlí kosinn dómari við nýjan hafréttardóm-
stól SÞ. Kosningin er til 6 ára og í dómnum situr 21 dómari.
Dómstóllinn tók til starfa í Hamborg 18. október.
Hár aldur. Guðrún Björg Björnsdóttir Árnason í Gimli í
Manitoba varð 108 ára 20. október. Hún er elzt Vestur-
íslendinga, fædd í Vopnafirði 1888. í október 1996 voru 24
Islendingar 100 ára eða eldri, 17 konur og 7 karlar. Elzta
konan var 104 ára.
Heiðursborgari. Jón Baldvin Hannibalsson alþingismað-
ur var í maí kjörinn heiðursborgari í Vilnius í Litháen.
Heilbrigðismál. Sjúkrahús Reykjavíkur tók til starfa í
ársbyrjun við samruna Borgarspítala og Landakots. I
febrúar var gjald hækkað á heilsugæzlustöðvum og lyfja-
verð til elli- og örorkulífeyrisþega. Boðuð var lokun vist-
heimilisins á Bjargi, en af henni varð ekki. - í marz greind-
ust yfir 100 manns í Reykjavík með salmonellusýkingu.
(192)