Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2005, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2005, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2005 Lífið eftir vinnu DV Forsýning kl. 9. Sýnd kl. 6 og 9.10 Btn vinKflasia grlnmýnd áílra tinvA 3 vlkur á toppnum t tSA Sýnd kl. 5.45 og 9 Sýnd kl. 10 Peningabíllinn (Le convoyer) Sýnd kl. 8 Langa trúlofunin (Un long dimanche de fiancailles) ★★★ DV Grjóthaltu kjafti Sýnd kl. 5.30, 8 (Tais Toi) og 10.30 Sýnd kl. 6 Tilnefnd til 5 Óskarsverðlauna þ.á.m. besta mynd, ieikstjóri og handrit. /J Skyldu- //' áhorf fyrir // Q biófólk, / foJÉ ekki / //f'i spurning!'f~»ir-'/ **** SIDEWAYS ,FullkomIega ómissandi mynd" S.V. MBL ***** § ★★★★SV Mbl ! „Ein snjallasta mynd ársins... Ógleymanleg... Ijúf kvikmyndaperla." FJNIMNC, Neverían'D .Hfnltf \riti SmfíRH\2 B Svakalcga flott ævintýraspennumynd með hinni sjóðheitu Jennifer Carner Kl. 3.40, 5.50. 8 og 10.10 Bi. 14 ára Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40 B.í. 14 ára Sýnd i LÓXUS kl. 5.20 og 10.40 tc ★ ★★★ lan Nathan/EMPIRE m m ★ ★★■i Kvikmyndir.is ÁLEXAsKfDER ****V0/DV Ö STA.RSTA MÓBSÖON M W ALLRA TÍ.MA VAR SÖNS jH Epísk stórmynd sem fólk verður að sjá. Frá leiksljóranum Oiiver Stone. Sýnd kl. 6, 8.30 og 10.10 b.i. 14 Sýnd i LÚXUS VIP kl. 3.45 og 8.30 Kl. 4,6, 8 og 10.10 B.i. 14. ára Kl. 3.45 og 6 isl. tal kl. 3.45, 6 & 8.15 enska Kl. 3.45, 6, 8.15 & 10.30 Sýnd kl. 10.30 I aa Fndurfundir - svörtum fötum Traustur vinur - Á mótí sól Ást - Ragnheiður Gröndal Þú fullkomnar mig - Sálin Sturlaður - Páll Rósinkranz Vetrarsól - RagnheiðurGröndal Nylon á toppinn á Tónlist.is Ungstirnin íNylon hafa tyllt sér topp Tónlistans á vefsíðunni Tónlist.is og slá þar meö út Stuðmenn sem falla niður í annað sætið með hið vinsæla lag Fönn fönn fönn. Netdrottningin Ragnheiður Gröndal dettur niður i sjö- unda sætið með hið sivinsæla Ast en á þó enn tvö lög á topp tiu. Síðasta sumar-Nylon Fönn fönn fönn - Stuðmenn Þessa einu nótt - Védís Hervör Geir Olafs ætlar aö vinna Eurevlsien í vnr „Ég er búinn að panta fund með Markúsi Erni Antonssyni út- varpsstjóra og ég ætla að athuga með Eurovision. Ég hef ekki orðið var við að nein forkeppni standi hér íyrir dyrum og ætla bara að leggja spilin á borðið: Hvort ekki sé í lagi að ég fari bara og syngi fyrir íslands hönd. Ég er með lag tilbúið og allt klárt,“ segir Geir Ólafsson, dægurlagasöngvarinn snjalli. Lagið sem Geir er með tilbúið er eftir Óla Gauk en textinn er eftir hann sjálfan og fleiri. Ekk- ert nafn er enn komið á lagið. „Af því að við náðum ekki nógu langt síðast er undan- keppni núna og það er ekki málið. Úkraínska stúlkan vann reyndar eftir að hafa þurft að fara í gegnum undankeppnina. Hún var mjög vel undirbúin með frá- bært lag.“ Geir segir ekki seinna vænna en fara að huga að þessu. „Ég er akkúrat maðurinn til að rífa þetta upp. Ég fer út með því hugarfari að vinna keppnina. Það er svo einfalt. Það vefst ekki fyrir mér ef ég fæ tækifæri. Ég geri þetta ekki öðruvísi. Auðvitað getur allt gerst en hugarfarið er þetta. Sigur og ekkert annað en sigur.“ Þeir sem tekið hafa þátt fyrir íslands hönd undanfarið hafa margir hverjir kvartað sáran undan því að kostnaðurinn rjúki upp úr öllu valdi en Geir lætur það ekki vaxa sér í augum. „Reyndar er ég með smá kostnað- aráætlun fyrirliggjandi. En hvort hún verður endanlega samþykkt eður ei, það veit ég ekki. En aðal- atriðið er að leggja þetta fyrir Markús. Tjah, svona 3 milljónir.“ Fyrir liggur, ef Markús Örn gengur að þessu ómótstæðilega tilboði, að Óli Gaukur muni út- setja en óvíst er að öðru leyti hversu stórt þetta verður í sniðum. „Lagið er mjög evrópskt. Þetta er evrópskt popplag. Lag sem hægt er að spila í hvaða stefnu eða „bíti" sem er. Þetta er alhliða lag. Að okkar mati best í poppbíti. En þetta skýrist á næstu dögum og ég býst fastlega við því að Markús taki höfðinglega á móti mér eins og honum einum er lagið.“ Og DV hyggst fylgjast grannt með gangi mála. Geir leggur sjálf- an sig að veði og ljóst má vera að ef Markús Örn ræður Geir til starfans munu miklir íjármunir sparast fyrir RÚV, sleppa má und- ankeppninni og Geir mun ekki gera miklar kröfur til stofnunar- innar. Bara fara út og einfaldlega ... sigra. jakob@dv.is Geir Ólafsson Klárislag- inn. Hefur pantað fund með Markúsi Erni útvarpsstjóra til að ræða hvernig hann getur best komið Islandi á kortið i söngvakeppni Evr- ópskra sjónvarpsstöðva. Markús Orn Antonsson Bregður á leik i Útvarpshúsinu. Geir gerir fastlega ráð fyrir þviað Markús muni taka höfðinglega á móti sér. Fékk stjörnu eins og hinir Ekki eru allir sammála um leikhæfi- leika bandariska leikarans Keanu Reeves en þvier ekki að neita að hann hefur hiot- ið frægð og frama fyrirleik sinn i kvikmynd- um. Á mánudag- inn var stjarna með hans nafni afhjúpuð hjá öllum hinum stjörnun- um á Hollywood-Breiðstræti og segir sagan að Reeves hafí ieikið við hvern sinn fingur við athöfnina. í ræðu sem hann hélt við athöfnina þakkaöi hann öllum sem hann hefur unnið með i gengum tíðina og sagðist vera mjög stoltur afþvi að nafn hans fengi að vera ihópi allra þessara frábæru stjarna, lífs og iiðinna. Þá þakkaði hann einnig móður sinni fyrir að hafa hvatt sig til að gerast leikari eftir skólasýningu sem hann tók þátt i. Stone gagnrýnd- urfyrirsöfnun Velvildarsendiherrann og stórleikkon- an Angelina Jolie segir að fátt sé hættulegra þurfandi fólki en fávisar stjörnursem vilja rétta hjáiparhönd. Jolie lét þessi ummæli falla eftir að samlanda hennar og samstarfsmaður Sharon Stone gerði sér lítið fyrirá dögunum og safnaði á 5 minútum rúmum 60 milljónum íslenskra króna á fundi fjármáiamanna i Davos i Sviss. „Stjörn- ur verða að vita ná- kvæmlega um hvað þær eru að tala þegar þær standa upp fyrir þurfandi og þær þurfa líka aö vera tilbúnar i að standa með þeim sem minna mega sin tiiiang- frama," sagði Jolie. Angelina Jolie vekur athygli á góðu hliðinni sinni í kjölfar sögusagna um sambandið við Brad Pitt Eina ánægjan er í góðgerðarstarfinu Angelinu Jolie finnst alltaf erfitt að snúa sér aftur að leiklistinni eftir að hafa sinnt störfúm sínum sem velvildarsendiherra fyrir Sameinuðu þj óðirnar. Óskarsverðlaunaleikkon- an elskar hreinlega að ferðast um heiminn með syni sínum og sækja ráðstefnur og heimsækja flótta- mannabúðir. Jolie segir að eina ástæðan fyrir því að hún haldi áfram að leika í kvikmyndum séu pening- arnir sem hún vinnur sér inn - hún þurfi á þeim að halda til að geta sinnt góðgerðar- verkefnunum. „Eféghefgetað eytt nokkrum mánuðum í burtu finnst mér erfitt að fara aftur að vinna því mér flnnst það gefa mér meira að eyða tíma með syni mínum og starfa að mannúðarmálum. Það er einfaldlega mikilvæg- ara,“ segir hin 29 ára gamla leikkona. „Það vekur bara engan áhuga hjá mér að mæta á tökustað. En um leið veit ég að það Angelina Jolie Segist bara leika í kvikmyndum til þess að geta sinnt góðgerðarstörfum. að mæta og vera í sviðsljósinu gefur mér tækifæri til þess að styrkja fleiri góðgerðarverkefni og benda á það sem betur mætti fara. Því veit ég að ég verð að gera bæði - en það er samt erfitt að mæta í vinn- una. Með syninum Maddox/lnge/ ina elskar að ferðast með hann og sinna góðgerðarstörfum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.