Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2005, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2005, Blaðsíða 31
DV Síðast en ekki síst MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2005 31 Kiallari Sjálfstæðismenn hafa nefnilega einmitt verið mjög duglegir að skipta um fólk en málin eru hins vegar gömul og þrá. þetta atriði sé þeirra eina stefnumál í menntamálum Reykvíkinga. Því þarf gengi þeirra í síðustu þremur kosningum kannski ekki að koma á óvart - Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík hugsar ekki í takt við fólk- ið í borginni. Sjálfstæðisflokkurinn ætti því kannski ekki að eyða allri orkunni í að velja sér enn einn nýjan oddvita heldur að endurskoða stefnuna og bjóða nú borgarbúum upp á eitt- hvað nýtt, en ekki sömu harma- kveinin og þrisvar áður. Hver veit nema flokkurinn næði þó að syngja í aðeins meiri takt við fólkið í borg- inni. Úrtakti viðallt • Á mánudaginn var sagt frá bréfum hér í '> blaðinu sem Pétur Gunnarsson, fyrrum blaðamaður og nú- verandi fram- kvæmdastjóri þing- > flokks Framsóknarflokksins, hafi skrifað til fréttastjóranna á Ríkisút- varpinu, Friðriks Páls Jónssonar, 0- ínar Hirst og Boga Agústssonar. Bréfin vöktu mikla undrun þar á bæ og kom það út eins og Pétur væri að skammast yfir vinnubrögðum fréttamanna og segja þeim hvernig þeir ættu að vinna/Þegar Pétur átt- aði sig á því að bréf sem átti að vera tiltölulega saklaust, væri túlkað svo, sendi hann afsökunarbréf þar sem fram kom að hann áttaði sig á því að eitthvað hefði getað misskilist... • Samfylking og Framsókn fagna bæði niðurstöðum í skoð- anakönnun Gallups. Þar er Samfylkingin stærsti flokkurinn og Framsókn tapar engu þrátt fýrir innan- flokksdeilur og umfjöllun um fraks- málið og HalldórÁsgrímsson. Átökin halda áfram því sagt er að Ámi Magnússon þurfl að leita sér að nýju kjördæmi en hann bauð fram í Reykjavík norður síðast og komst á þing með örfáum atkvæðum. Krón- prinsinn þarf öruggt sæti og þá þarf hann annaðhvort að hjóla í Siv eða Guðna... Sjálfstæðisflokkurinn í borgar- stjórn Reykjavíkur hefur hamast mikið að undanförnu enda þegar kominn kosningahugur í flokkinn fyrir sveitarstjórnarkosningar 2006. Þegar Reykjavíkurlistinn vann borg- ina af Sjálfstæðisflokknum 1994 - sem var einmitt fyrsta skiptið sem ég kaus - þótti sjálfstæðismönnum það mikill álitshnekkur. Enn meira varð þó áfallið þegar sjálfstæðismenn töpuðu aftur árið 1998. Og enn meiri varð ósigurinn í seinustu kosn- ingum. En nú ætla sjálfstæðismenn að leggja allt í sölurnar, þeir hafa verið á vinnustaðafundum og stefna á mikinn sigur 2006. En hvað ætla þeir að leggja til málanna? Ör leiðtogaskipti Jú, borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins hafa rekið baráttu sína á nokkrum málum, reyndar þeim sömu og þeir hafa rekið baráttu sína á undanfarin tíu ár án mikils árang- urs. Þau eru nokkur og ber lfldega hæst meinta skuldasöfnun Reykja- víkurborgar. En sá er galli á gjöf Njarðar að Reykjavík er stöndug. Skuldir á íbúa eru mun minni í Reykjavík en í mörgum nágranna- sveitarfélögum, s.s. Garðabæ. Enn sorglegri er svo bilaða platan um „glundroða vinstrimanna" sem notuð var í gamla daga til að standa vörð um hreinan meirihluta Sjálf- stæðisflokks en er ekkert annað en áróður gegn samsteypustjórnum margra flokka. Á ú'u ára valdaferli hefur enginn orðið var við glund- roða í Reykjavíkurlistanum og Sjálf- stæðismenn hafa neyðst til að grípa til þess ráðs að blása upp borgar- stjóraskipti í valdatíð núverandi meirihluta sem hafa þó jafnan átt sér eðlilegar skýringar. Á hinn bóginn hafa sjálfstæðis- menn ekki verið síður duglegir við að skipta um leiðtoga seinustu árin og yfirleitt rétt fyrir kosningar. Miðað við það sem gerðist árið 1994 og 2002 geta kjósendur flokksins þannig engan veginn treyst því að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson verði oddviti í næstu kosningum. Ekki einu sinni þó að flokkurinn stæði vel í könnunum og ekki einu sinni þótt hann ynni prófkjör. Einkaskólar ekki ósk foreldra Sjálfstæðismenn hafa nefnilega einmitt verið mjög duglegir að skipta um fólk en málin eru hins vegar gömul og þrá. Til viðbótar við sönginn um skuldirnar og glundroð- ann er helsta baráttumál flokksins að einkavæða skólakerfið og þess vegna eru þeir síklifandi á meintum misgjörðum Reykjavíkurlistans gegn einkareknum skólum í borginni. Nú hafa framlög til einkarekinna grunn- skóla reyndar aukist mjög í U'ð Reykjavíkurlistans þó að þeir séu ekki á sömu reksUarkjörum og borg- arreknir skólar. Hér eru enda á ferð einkaaðilar sem taka skólagjöld af nemendum þó að þeir fái ríflegan styrk frá borginni. Hið áhugaverða við þennan mál- flutning sjálfstæðismanna er að í viðhorfskönnun sem Gallup gerði fyrir Fræðslumiðstöð Reykjavíkur á vormánuðum 2004 meðal reyk- vískra foreldra kom fram að það at- riði sem foreldrar lögðu minnsta áherslu á í skólastarfi í Reykjavík er að fjölga einkaskólum og efla þá. Þó að annað mætti ráða af síbylju sjálf- stæðismanna er þetta það auiði sem reykvískir foreldrar leggja minnsta áherslu á. Ekki bjóða sömu harma- kveinin f sömu könnun kom ennfremur fram að foreldrar leggja mun meiri áherslu á ýmis önnur atriði sem reykvísk fræðsluyfirvöld hafa einmitt verið að sinna af kostgæftii, svo sem forvarnir gegn einelti og vímuefnum, aukna sérkennslu fyrir þá sem dragast aftur úr í námi, há- degismáltíðir fyrir börn, góðan tölvukost og aukið námsframboð fyrir nemendur með óvenju mikla námsgetu. Það sem reykvískir foreldrar telja upp er einmitt það sem fellur undir fimm höfuðmarkmið reyk- vískra fræðsluyfirvalda í skólamál- um. Því er ljóst að áherslur reyk- vískra fræðsluyfirvalda og foreldra hafa farið saman þó að auðvitað megi gera betur. En áherslur borg- aryfirvalda hafa skilað því að um 83% foreldra eru ánægð með skóla barnsins síns. Það er hins vegar lýsandi fyrir Sjálfstæðisflokkinn að Katrín Jakobsdóttir segirstefnu Sjálfstæðis- flokksins í borgarmál- um vera úr takti við íbúa Reykjavíkur. UTSALfl í MÚRBÚÐINNI Allt að 60% afsláttur út þessa viku m 2,5títrar —5 Marmarahvít innimálning, gljástig 7' 670 kr. Stigar og tröppur 30% afsláttur Velkomin á Smiðjuveg 72 MURBUÐIN Opið mán-fös kl. 8-18 laugard. kl. 9-15 ^Smiðjuvegur 72 ■ 200 Kópavogur Simi 544 5470 ■ Fax 544 5471 • sala@murbudin.is ■ www.murfaudin.isy Upp með hendur niður með brækur Þórir sendi DV bréf: „Það er nánast skömmustulegt hvernig þjóðin hagar sér fyrir ffaman imbakassann á föstudagskvöldum. Lesendur Hún fleygir 99 krónum, í gegnum símann, í málstað sem erfitt er að réttlæta. Mörg hundruð þúsundir króna fljúga út um glugga lands- manna, og árangurinn; brostnar vonir lítilla sála og niðurlæging. Og landinn horfir á þann særða, með bros á vör, berjast við að syngja lagið sem varð honum að falli. Þessi svana- söngur minnir mig alltaf óþægilega atvikið þegar kennarinn minn lét mig gyrða niður um mig fyrir framan bekkinn minn í barnaskóla, sem refs- ingu fýrir að gyrða niður um bekkja- bróður minn. Ég átú það kannski skilið en ég hef aldrei verið eins nið- urlægður á ævinni! En eiga þessi grey þetta skilið? Á einhver svona refsingu skilið? Þegar vel er að gáð erum við að safría saman í púkk til þess eins, að niðurlægja óhamaðan einstakling sem oftast veit ekki hvað hann hefur komið sér í. Frægðin og framinn sem var innan seilingar er fokin út í veður og vind og hann stendur allsnakinn einn eftir, uppi á sviði fyrir framan alþjóð. Þegar ég hugsa betur út í það þá er ég feginn að mín refsing var eingöngu fyrir framan 25 manna bekk, úff. Nú er bara að bíða eftir næsta föstudegi með að segja; „upp með hendur eða niður með brækur" og hlæja svo af hinum berskjaldaða. Svona er nú innræti okkar Islendinga!"

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.