Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2005, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2005, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2005 Fréttir DV Meiddust yfir íslandi Skelfing greip um sig meðal flugfarþega SAS á laugardagipn j|egar flugvél féll niður 200 nietra í ókyrrð yfir íslaiidi. Nokkrir farþeganna skrámuðust og skárust á höfði ög norsk flugfreyja slasaðist, sam- kvæmt frétt norska blaðsins Verdens Gang. Vélin var á leið frá New York til Kaup- mannahafnar og hafði ílug- ið gengið að óskum þar til komið var yfir ísland. Að sögn talsmanns SAS var ekki um alvarlegt flugatvik að ræða, þó svo að farþegar hafi verið sem í lausu lofti og metið þetta sem hræði- legan atburð. Fimm póst- kassar brotnir í fyrrakvöld barst lög- reglunni í Keflavík til- kynning um skemmdar- verk í félagsmiðstöðinni Hvammi við Suðurgötu í bænum. Þar höfðu fimm póstkassar í anddyri ver- ið brotnir. Um morgun- inn sama dag var til- kynnt um innbrot í iðn- aðarhúsnæði á Sjávar- götu í Sandgerði. Úr bif- reið sem er inni í húsinu var stolið Pioneer-hátöl- urum, bassakeilu og geislaspilara. Vinnuslys í slæmum sjó Skömmu eftir hádegi í fyrradag barst lögreglunni í Keflavík tilkynning um vinnuslys um borð í flutn- ingaskipi sem var að leggj- ast að bryggju í Njarðvíkur- höfn. Skipverji hafði slasast við störf í mikl- um veltingi skipsins á leið til landsins. Skipverjinn var fluttur á sjúkrahús í Reykja- nesbæ til aðhlynningar. Meiðsl hans reyndust minniháttar. núna og maöur er bara alveg slakur/ segir Jón Sigurðar- son, vefstjóri og bræöslu- starfsmaöur á Vopnafirði.„Viö erum aö bræöa loðnu á fullu og eigum von á fleiri skipum og þá veröur jafnvel athugaö Landsíminn ingu. Samruninn við HB- Granda hefur reynst vel og lofar satt best að segja góöu og nóg að gera í kjölfarið á því. Svo var þorrablót hérna á bóndadaginn, hörku fjör og árið gert upp aö vopnfirskum sið og enginn sár eftir. Svo er slðan mín, vopnafjörður.is, að komast I gagnið aftur og fleiri breytingar eru væntalegará henni. Svo fer maður að mega skjóta rjúpuna aftur, ég vona aö þaö sé að rofa til með þau mát." Tryggvi Ingólfsson sendi fólki með húsnæði í nauðungarsölu bréf þar sem hann bauðst til að kaupa af þeim milliliðalaust. DV hafði samband við Félag fasteigna- sala og í kjölfarið dró Tryggvi allt sem stóð í bréfunum til baka. Tryggvi sem ekki er fasteigansali segir efni bréfa sinna hafa verið misskilið. Braskari ágirntist íbúðir nauöstaddra Tryggvi Ingólfsson Sendibréftil fjölda fálks með eignir sinar i nauðung- arsölu og bauðst til að kaupa þær af þeim án afskipta fasteignasala og borqa beintá borðiö. Tryggvi Ingólfsson sendi hópi fólks sem hefur lent með hús- eignir sínar í nauðungarsölu bréf þar sem hann lýsir sig viljug- an til að kaupa eign þeirra án milligöngu fasteignasala. Hann býður fólkinu peninga beint á borðið sem hann segir bjarga lánstrausti og fjárhagsstöðu þeirra. „Kolólöglegt athæfi," segir Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala. Fær peninga með lánum „Það eina sem ég er að gera er að losa fólk við sölulaunin í ferlinu," Umrætt bréf byrjar svo: „Kæri fasteignaeigandi. Ég vill kaupa fast- eignina þína. Ég er ekki fasteignasali og vinn ekki fyrir fasteignasölu. Ég hef ekki áhuga að setja fasteignina þína á söluskrá eða sýna öðrum þessa eign." Gerðu það núna - strax f bréfinu er talað um að sala fast- eigna sé dýrt ferli og fasteignasalar græði hundruð þúsunda á því. „En ef ég kaupi eignina þína, lofa ég þér því að það verði ekki nein óhófleg gjöld eða sölulaun sem þú þarft að greiða," segir Tryggvi í bréfinu. Tryggvi ábyrgist að gera skriflegt tilboð í eignina innan 48 klukku- stunda og ef samkomulag náist verði allt greitt í reiðufé og gengið frá kaupunum. Neðst eru eftirfarandi skilaboð: „Ef þú vilt selja fasteignina þína á fljótlegan og á sem auð- veldasta hátt, þá verður þú einfald- ega að hafa samband. Ekki hika - gerðu það NÚNA STRAX." sagði Tryggvi í samtali við DV fyrir helgi og sagðist ekki vita til þess að slíkt söluferli væri ólöglegt. „Mað- ur finnur fólk sem vill selja fljótt og reddar þeim úr vandræðum. Yfir- leitt fær fólk ekki mikið frá nauð- ungarsölum og lánstraust þeirra er í klessu." Tryggvi segist redda peningum fyrir kaupunum með lánum. „Ég á ekki endalausa peninga til að leggja út. Ég fæ peninga með lánum. Maður hefur ágætt nafn og þeir eru tilbúnir til að lána manni í alls konar verkefni." Grafalvarlegt mál Grétar Jónasson, framkvæmda- stjóri Félags fasteignasala sagði það vera klárt mál að svona bréfasend- ingar til fólks í bágindum væru . kolólöglegar: „Það eru einvörðungu fasteigna- salar sem hafa lagalega heimild tii að hafa milligöngu í fasteignavið- skiptum. Umrætt fólk berst við slæma fjárhagsstöðu og getur átt erfitt. Fasteignasalar verða og eiga að sjá um hagsmuni beggja aðila. Þetta athæfi byggir á gróðasjónar- miðum og það er illa farið með fólk." Grétar segir Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteigna- sala Segir mikilvægt að fólk vari sig á svik- urum i fasteignaleit. félagið hafa fengið símhring- ingar vegna bréfsins. „Þessi bréf fóru í tals- vert miklu magni til fjölda fólks sem hefur haft samband við okkur, miður sín yfir þessu." Ógeðfellt Grétar segir að allir þeir sem hafa átt í viðskiptum á þennan hátt eða ætli sér að gera það ættu að hafa samband við félagið. „Við myndum aðstoða fólk að vinda ofan af þeim viðskiptum. Fólk þarf að huga að því að þegar eitthvað er boðið frítt eða ókeypis gæti ýmislegt misjafnt legið þar að baki, eins og í þessu tilfelli," segir hann. Að sögn Grétars geta „menn úti í bæ“ tekið upp svona kauphætti. „En hvernig meta þeir íbúðina, vinna skjalagerð og annað sem fast- eignasalar eru sérhæfðir í að vinna?" spyr Grétar sem telur það vera ógeðfellt að sjá aðstöðumun- inn milli aðila í þessu tilviki. „Þetta eru menn sem eiga peninga og þykjast geta frelsað fólk á staðnum og unnið góðverk. Það er mikilvægt að brýna fýrir fólki að vara sig á slíku." Dregur allt til baka Tryggvi er ekki fasteignasali. Hann sagðist í samtali við DV í gær hafa ákveðið, samkvæmt ráðlegg- ingum, að draga tflboðin tfl baka og senda fólki afsökunarbréf. Tryggvi segist þó ekki líta svo á að hann hafi gert neitt ólöglegt. „Ég dreg þetta til baka vegna þess að þetta fór fyrir brjóstið á fólki. Það dró ályktanir um að við værum að gera eitthvað annað, hélt að við myndum ekki fara með kaupin í gegnum fasteignasala," segir hann. í bréfinu sem var sent út er það margendurtekið að fasteignasali komi hvergi nálægt kaupunum og Tryggvi taki að sér alla pappírsvinnu og „vesen". Tryggvi segir það vera misskfln- ing sem hefði átt að orða betur. „Við gáfum það óvfljandi í skyn. En þetta átak er dottið upp fyrir," segir hann. tol@dv.is Sérkennilegur snúningur í Jackson-málinu Sigurjón fær ekki svör á þingi Móðir fórnarlambsins er orðin Janet Jackson Allsérskennilegur hliðarsnúningur er komiim á málaferlin gegn söngvar- anum Michael Jackson vestur í Banda- ríkjunum. Móðir drengsins sem Jacko er sak- aður um að hafa misnotað kynferðis- lega, Janet Arvizo, gifti sig nýlega í Las Vegas. Eiginmaður hennar er major í bandaríska hernum sem heitir Jay Jackson og því heitir móðirin nú Janet Jackson. Réttarhöldin yfir Michael Jackson em loks byrjuð vestan hafs með vali á kviðdómi í málinu. Það val virðist ætla að dragast á langinn vegna ýmissa vandamála eins og t.d. þess að sá sem velst í kviðdóminn má ekki hafa vit- neskju um málið fyrirfram. Er erfitt að finna slíka persónu miðað við allt fjöl- miðlafárið í kringum málið. ir ' — Janet Jackson Eiginmaður hennar er major i bandariska hernum sem heitirJay Jackson og þvi heitir móðirin nú Janet Jackson. Fórnarlamb Jackos í málinu hinn 15 ára gamli krabbameinsveiki Gavin Arvizo er nú kominn í verndaða réttar- gæslu ásamt móður sinni, nýbökuðum föður og tveimur systkinum. Verjendur Jackos em þegar byrjaðir að skjóta föst- um skotum á fjölskylduna og segja að Gavin og systkini hans hafi farið í búðarferð með saksóknara málsins í Beverly Hills. Dmdge Report segir frá. Þingmaður segir þingið einsog sirkus Sigurjón Þórðarson þingmaður Frjálslynda flokksins hafði í gær ekki fengið svör við fyrirspurn sinni um það hvað forsæúsráðuneytið hafi greitt fyrir lögfræðiálit frá Eiríki Tómassyni. Sigurjón segist ekki skilja hvers vegna fýrirspurnin hafi ekki fengið afgreiðslu en yf- irskrift spurningarinnar var hvað kattarþvottur ríkisstjóm- arinnar hefði kostað: „Hvað greiddi forsæúsráðuneyúð fyrir lögffæðiálit Eiríks Tómas sonar sem samið var fyrir ráðuneyúð, sunnudaginn 23. janúar 2005, um lögmæú ákvörðun- ar um að styðja taf- arlausa afvopnun íraks?" spurði þingmaðurinn. „Halldór Ásgrímsson vfll ekki svara þessari spurningu," segir hann. „Svo frétú ég að Halldór Blöndal hefði stoppað þetta. Ég er ekki efstur á vinsældarlistanum hjá honum," segir Sigurjón. „Þetta þing er að verða sirkus," segir þingmaður frjálslyndra. Síðar í gær féll Halldór Blöndal frá því að hafna fyrirspurninni, sem hann hafði upphaflega gert vegna þess að spurt væri um einkahagsmuni Eirfks Tómassonar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.