Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2005, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2005
Fréttir 0V
Chihuahua-hundinum Lúlla var alltaf svo kalt að eigandi hans, Theodóra Elísabet
Smáradóttir, ákvað að sauma handa honum flíspeysu. Og nú nokkrum misserum
seinna gerir Theo-fatalínan fyrir hunda það gott hér heima og erlendis.
„Ég og kærastinn minn Sigurður
Jónsson tókum eftir því að hvolpin-
um okkar honum Lúlla var alltaf svo
kalt, þannig að ég brá á það ráð að
sauma handa honum flíspeysu,"
segir Theodóra Elísabet Smáradóttir
sem hannað hefur fatalínuna THEO
fyrir hunda. Fyrstu flíkina á Lúlla
saumaði Theodóra Elísabet í hönd-
unum því saumavélin var biluð en
þegar búið var að gera við vélina fór
Theodóra að sauma fleiri flíkur á
hvolpinn.
„Fólk var farið að stoppa mig úti á
Hringir til kisunnar
á hverju kvöldi
Gömul kínversk kona sem býr í borginni Chengdu f Sichu-
an-héraði í Kína er þessa dagana í heimsókn hjá dóttur
sinni sem býr í suðurhluta Kína. Það væri svo sem
ekki í frásögur færandi ef sú gamla hringdi ekki á
hverju kvöldi til kisunnar sinnar sem dvelur á katta-
hóteli í heimaborginni, þúsund kílómetra í burtu.
Hu Zhongyun sem rekur kattahótelið segir hjart-
næmt að hlusta á samtal þeirra. „Sú
gamla spyr í hverju samtali köttinn
m.a. hvort hann hafi borðað nóg og
hagað sér vel yfir daginn og köttur
svarar hverri spurningu með mjái.“
Bergljót Davíðsdóttir
skrifar um dýrin
sín og annarra á
miðvikudögum í DV.
Kuldakastið í
Bandaríkjunum
Miklir kuldar hafa gengið yfír
mörg fylki Bandaríkjanna að und-
anförnu og hafa dýraverndarfélög
séð sig knúin til að senda frá sér
þarfar leiðbeiningar um hvernig
búa eigi að dýrunum í kuldanum.
Hunda- og kattaeigendur eru
hvattir til að halda dýrum sínum
inni og efþau þurfi nauðsynlega
að fara út veröi að kiæða þau. Þá
þurfí dýrin meira fóður í köldu
veðri til að halda á sér hita. Þeim
sem eiga sjálfstæða hunda sem
vilja vera í hundakofum sínum er
bent á að raki getur verið mikill
óvinur, gott sé að hækka gólfíð
um nokkra sentimetra og strá heyi
á gólfíð. Og síðast en ekki síst eru
bíleigendur hvattir til að berja á
húddið á bílunum sinum áður en
þeir ræsa vélina þvi dýr leiti oft i
hitann frá vélunum.
Fjórtán gæludýrum
bjargað úr bruna
Slökkviliðsmönnum iSeminole-sýslu í
Flórída tókst á mánudaginn að bjarga
74 gæludýrum úr alelda húsi. Það var
slökkviliðsmaður [ »
á frívakt sem sá A , j
húsinu og fór jjLSjjö'".*?-
til að athuga W B a M
hvortþaðværi V ™ »
mann/aust. IIjós % i
kom að inni var •» ’
fjöldi dýra i sjálf-
heldu, meðal annars heimilshundur-
inn, köttur, einn skúnkur, snákar og
fleiri gæludýr. Þegar var kallað eftir
aðstoð slökkviliðs sem fékk hjálp ná-
granna við að bjarga öllum dýrunum
sem i húsinu voru. Þegar húsráðendur
fréttu um brunann og björgunina
fengu þeir þegar í stað áfallahjálp.
iílFJÖLSKYLDU-OC
HÚ$ DÝRA6 ARDURIN N
Opið alla daga frá kl. 10-17
Barngóð kisustelpa
Þessa svörtu og hvítu og loðnu kisustelpu vantar nýtt heimili.
Hún er afskaplega góð kisa, hrifin af börnum og finnst gaman
að leika sér. Það er búið að taka hana úr sambandi og hún er
eyrnamerkt og bólusett. Þeir sem áhuga hafa á henni eða öðr-
um góðum kisum er bent á að hafa samband við Kattholt eða
Ifta á heimasíðuna kattholt.is.
iwmm
W %
götu til að spyrjast fyrir um fötin sem
Lúlii var í. Ég fór að gefa því síma-
númerið mitt og síðan fór síminn að
hringja í tíma og ótíma," segir Theo-
dóra Elísabet. Hún hefur alltaf haft
áhuga á saumaskap en amma henn-
ar kenndi henni að sauma.
„Þegar saumaskapurinn var far-
inn að vaxa mér einni yfir höfuð
ákváðum við Sigurður að ráða til
okkar saumakonu. Og í desember
2003 fóru við með afraksturinn á
sýningu í Svíþjóð þar sem óhætt er
að segja að fatnaðurinn hafi slegið í
gegn. Þá varð okkur ljóst að við hefð-
um ekki undan pöntununum tvær á
saumastofunni og gerðum fram-
leiðslusamning við fyrirtæki í út-
löndum," segir Theodóra Elísabet
sem á síðasta ári hefur setið við og
endurhannað og útfært fatnaðinn í
samráði við hundana sfna.
„Fötin sem eru komin í sölu núna
eru hversdagsvetrarföt, peysur, úfp-
ur og gallar og í sumar verða á
boðstólum smekkbuxur, skotapils og
stuttermabolir. Þá er líka í hönnun
sparifatalína en um síðustu jól var
Lúlli í smóking og Nala dóttir hans
sem er líka Chihuahua í bleikum
silkikjól," segir Theodóra Elísa-
bet.
„Fatalínan er hönnuð fyrir
smáhunda sem eru yfirleitt mjög
kulsæknir. Lúlli og Nala neita að
fara út nema klædd. Það eru margir
hundar sem þurfa á þessum fötum
að halda.. Fötin henta líka hundum
með mikinn feld. Þótt feldurinn
haldi á þeim hita þá geta snjór og
rigning sett strik í reikninginn. Oftar
en ekki þurfa feldhundarnir að fara í
bað eftir slíkan göngutúr. En nú hef-
ur fólk verið að biðja mig um föt á
stærri hunda og ég er að fara með
númerin upp um 3 stærðir. Fyrir
Doberman, Boxer og aðrar stærri
tegundir," segir Theodóra Elísabet.
„Við ædum að sýna fatalínuna
THEO í Iðu í Lækjargötu á laugar-
daginn og hefst dagskráin sem við
viljum kalla fjölskylduskemmtun kl.
13. Svo ætla hundar úr Hundarækt-
unarfélagi íslands að sýna fatalínuna
kl. 15 og aftur kl. 16. I Iðu verður
margt áhugavert að gerast fyrir
hundavini á öllum aldri," segir Theo-
dóra Elísabet.
Hönnuðurinn og fyrirsætan
Theodóra Elísabet og Nala undirbúa sig
fyrirtískusýninguna á laugardaginn
Þess má geta að fatnaður THEO-
fatalínunnar fyrir hunda er til sölu í
Iðu, Dýraríkinu á Grensásvegi og
Dýrarfkinu á Akureyri. Þá hafa Theo-
dóra Elísabet og Sigurður gert sölu-
samning við stóran sænska dreifing-
araðila og er THEO-fatnaður seldur í
mörgum gæludýraverslunum í Sví-
þjóð.
30% VETRAR AFSLÁTTUR
Allar gæludýravörur og fóður
með 30% afslætti.
Full búð af nýjum vörum
Opið alla daga
Tokyo Hjallahrauni 4 Hafnarfirði S: 565 8444
slfcSgfcÉmfc
Handsaumaða flispeysan
sem vatt npp á sig
Ingenya snyrtivörurnar tryggja fljótvirkari
árangur og eru það fullkomnasta i
gæludýraumönnun á frábæru verði.
Allar vörumar eru framleiddar án natríum
klóríös sem er ekki einungis skaðlegt fyrir
þig heldur líka gæludýrið þitt.
Vorsýning Hundaræktarfélagsins
Á föstudaginn rennur út skráningar-
frestur fyrir vorsýningu Hundaræktarfé-
lags íslands sem haldin verður í Kópavogi
fyrstu helgina í mars. Dómarar á sýning-
unni sem er alþjóðleg ræktunarsýning
verða Moa Person frá Svíþjóð, Miklos
Levente frá Ungverjalandi og Ðiane And-
erson frá Bandarrkjunum. „íslenskur
dómari dæmir unga sýnendur í yngri
flokki og Sigríður Pétursdóttir á Ólafsvöllum
dæmir hvolpa ffá 4 til 6 mánaða," segir Þórhildur
Bjartmarz formaður Hundaræktarfélags íslands.
„Þá dæmir Diane Anderson eldri sýnendur í yngri
flokki og eldri hvolpana. Hundaræktarfélagið
heldur alþjóðlegar ræktunarsýningar tvisvar á
ári, á vorin og haustin og venjulega höfúm við
verið að fá 2 nýjar hundtegundir á sýningarnar."
Vorsýningin stendur yfir helgina 4., 5. og 6. mars.