Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2005, Blaðsíða 46
46 LAUGARDAGUR 12. MARS 2005
Sport DV
Traðkarinn
Taylor kærður
Stjórn Keflavíkur í Intersport-
deildinni í körfuknattleik hefur
ákveðið að leggja fram kæru á
hendur Terrel Taylor, leikmanns
Grindavíkur, eftir atvik sem átti sér
stað í viðureign liðanna í gær.
Stjómin heldur því íram að Taylor
hafi stigið á háls Jóns N. /®r
Hafsteinssonar og að
um viljaverk hafi verið
að ræða. Keflvíkingar
munu leggja fram
myndbandsupptöku af
atvikinu, máli sínu til
stuðnings, og verður það
afhent KKI. Málið verður
tekið fyrir hjá aganefnd
KKÍ fyrir næsta leik
Keflavíkur og Grindavík-
ur sem fram fer í
Grindavík á morgun
Keflavík vann fyrri leik-
inn ömgglega, 101-80, og
getur tryggt sér sæti í
undanúrsiitum með sigri
í Grindavík.
M
Henry og
Vieira verða
um kyrrt
Arsene Wenger, knattspymu-
stjóri Arsenal gefur h'tið fyrir sögu-
sagnir sem verið hafa í gangi um
að aðalstjörnur félagsins séu að yf-
irgefa það. Franskir
fjölmiðlar hafa und-
anfarið leitt llkum að
því að Patrick Viera og
’ Thierry Henry gætu
verið á leið frá
( Arsenal, sumpart
vegna lélegs gengis
liðsins í vetur.
Arsenal á orðið litla
möguleika á að ná
enska meistaratitl-
inum og er dottið út
úr meistaradeild
Evrópu. „Það er ekk-
ert til í þessum
sögusögnum og ég
blæs á þær. Það er engin
ástæða til að stökkva frá
borði þó að skútan mggi
aðeins", sagði Wenger,
sem mun fá væna fúlgu til
að kaupa leikmenn í sumar
og styrkja hóp Arsenal.
Makelele
með báða
fætur á
jörðinni
Claude Makalele, miðjumaður
Chelsea, er með fætuma á jörð-
jnni þrátt fyrir að liöið hafi yfir-
stigið þá hindrun sem Barcelona
var í meistaradeildinni á þriðju-
daginn. I lann segir liðið verða að
læra af reynslunni - ella muni
liðið ekki ná að fara alla leið f ár.
„Þetta var ekki fullkomið hjá okk-
ur,“ segir Makalele. „í stöðunni 3-
0 skorti okkur reynslu. Við hefð-
um aldrei átt að gefa þeím færi á
að komast aftur inn í einvígið. Við
verðum að læra af þessum leik ef
, við ætlum okkur að komast í
undanúr-
sUt."
mi
#.
iv %
í
KR getur slegiö út Hópbílabikarmeistara Snæfells út úr úrslitakeppninni meö sigri í
DHL-Höllinni. Það eru liðin sjö ár siöan lið sem endar í 7. eða 8. sæti deildarkeppn-
innar komist í undanúrslit. Fyrir ári síðan voru Vesturbæingar í sömu stöðu en þá
missti liðið af sæti í undanúrslitunum.
KR-ingar Hafa þeir
lært af reynslunni?
Skagamenn náðu sögulegum árangri í úrslitakeppninni vorið
1998 þegar þeir slógu út deildarmeistara Grindavíkur með eins
stigs sigri í framlengdum oddaleik í Grindavík. Það er í eina
skiptið í sögu úrslitakeppninnar þar sem tvö efstu lið deildar-
keppninnar eru ekki með í undanúrslitum úrslitakeppninnar.
KR-ingar gætu bæst í hópinn í dag þegar þeir fá tækifæri á
heimavelli til þess að slá út Hópbílabikarmeistara Snæfells en
viðureignir liðanna í vetur hafa verið hnífjafnar og mikil
skemmtun fyrir áhorfendur.
KR-ingar eiga þegar metið yfir þá
íslandsmeistara sem hafa endað
neðst í deildarkeppninni um vetur-
inn en KR-liðið varð íslandsmeistari
fyrir fimm árum eftir að hafa endað í
5. sæti í deildinni. Þá sló KR Uð
Tindastóls út 2-0 eftir að hafa unnið
fyrsta leikinn á Sauðárkróki en KR-
ingar hafa nú í sjötta sinn stolið sigri
á útivelh sem er það langmesta sem
eitt félag hefúr náð í sögu úrslita-
keppni karla. Þetta er í fimmtánda
sinn sem lið vinnur fyrsta leik á úti-
velli í tveggja sigra einvígi - 11 af 14
hafa farið áfram í næstu umferð en
hin þijú hafa setið eftir sárt ennið
vitandi að kjörið tækifæri hafi verið
misnýtt.
Harper hetja KR-liðsins
KR vann fyrsta leikinn gegn Snæ-
felh í Hólminum með þriggja stiga
sigurkörfú Aarons Harper 7 sekúnd-
um fyrir leikslok en Harper hefúr nú
tiyggt sínu Uði sigur tvo leiki í röð og
hefur ítrekað tekið af skarið á úr-
sUtastundu. Harper skoraði átta síð-
ustu stig Uðsins og sigurkörfuna f 88-
90 sigri í Grindavík í lokaumferð
defldarkeppninnar og var síðan með
5 síðustu stigin og glæsUega þriggja
stiga sigurkörfu á lokasekúndum
fyrsta leiksins í Hólminum. Hann
skoraði ennfcemur aUs eUefu stig í
lokaleikhlutanum þar sem KR vann
upp 14 stiga forskot SnæfeUs.
KR-ingar ættu að vera reynslunni
ríkari að þessu sinni því í fyrra
komust þeir í sömu lykUstöðu í átta
Uða úrsUtunum eftir að hafa endað í
7. sæti í deUdarkeppninni. KR-ingar
unnu þá fyrsta leik átta Uða úrsUt-
anna í Grindavík, 95-99, en í stað
þess að klára dæmið, mættu þeir
heiUum horfiiir í fyrsta leikhluta
annars leiksins. Grindavík skoraði
þá 42 stig fyrstu tíu mínútur leiksins
og unnu þær með 29 stiguih og leik-
inn á endanum með 13 stigum, 95-
108. Eftir þessa skelfilegu byrjun þar
sem nánast aUt gekk upp hjá
GrindavíkurUðinu dugði það ekki
KR-ingum að vinna síðustu þijá
leikhlutana með 16 stigum, 82-66,
forustan var of mikfl hjá
um sem síðan kláruðu dæmið í
Röstinni tveimur dögum
seinna.
Snæfellingar settu met í
fyrra þegar þeir unnu sex
fyrstu leiki sína í sömu úr-
sUtakeppni en síðan þá hef-
ur gengi Uðsins gjörbreyst
og hefur Uðið nú tapað
fjórum leikjum í röð í
úrsUtakeppni, þrem-
ur gegn Keflavík í úr-
sUtunum í fyrra og
svo fyrsta leik átta
Uða úrsUtanna
gegn KR í fyrra-
kvöld. Tap í dag
þýðir fimmta
tapið í röð í úr-
sUtakeppni og
ennfremur sum-
arfií í upphafi mars-
mánaðar.
Mikil pressa á Snæfelli
Það er því mikil pressa á SnæfeU-
ingum í þessum leik í kvöld og af
gefiiu tílefni má búast við frábærri
mætingu úr Hólminum á leikinn
enda stuðningsmenn liðsins þekktir
að standa vel á bak við sína menn.
SnæfeU hefur sýnt ótrúlega
seiglu og sigurvflja undan-
farið ár og nú er að sjá
hvort SnæfeUingar sætti
sig við að fá það á bak-
ið að hafa tapað fimm
leikjum í úrsUta-
keppninni í röð.
Mikil veisla
KR-ingar hafa
einnig gott tilefni að
styðja við sína menn
tíl að ná sögulegum
árangri og þá mun
hinn almenni körfu-
boltaáhugamaður fá
mikið fyrir pen-
inginn
DHL-
HöUinni í dag enda hafa leikir þess-
ara Uða í vetur verið ffábær
skemmtun þar sem úrslitin eru
að ráðast í um þann mund
sem leikklukkan rennur
út.
ooj@dv.is
Harper hef-
ur nú tryggt
sínu liði sig-
ur tvo leiki í
röð og hefur
ítrekað tekið af
Haroer fribær Aaron Harper hefur klárað tvo
S£leiki ¥ir KR-inga I lntersP°"^*nn'
körfubolta og hefur sannað sig scm m,kmn.
leiðtoga á lokamfnútum leikjanna. HarPf J,ef“
spilaðupp félaga sfna alla leikina og sett sfðan
Heil umferð í DHL-deild karla í dag.
Spennan eykst
Næstsíðasta umferðin í úrvals-
deUd karla í handbolta fer fram í
dag. í Austurbergi fá heimamenn í
ÍR Þórsara í heimsókn. Norðan-
menn eru í næstneðsta sæti deUdar-
innar með átta stig en ÍR-ingar eru
aftur í toppbaráttxmni með 14 stig,
einu stigi á eftir toppUði Hauka.
Valsmenn taka á móti HK í Vals-
heimilinu og þar má búast við
hörkuslag, enda skUja aðeins tvö stig
Uðin að í deUdinni og Vaismenn
aUtaf erfiðir heim að sækja. í Vest-
mannaeyjum taka heimamenn í ÍBV
á móti KA-mönnum, þar sem norð-
anUðsins bíður hið erfiða verkefiii
að mæta sjóðheitu Uði Eyjamanna,
sem hefur verið á mUdu skriði und-
anfarið og unnið þrjá leiki í röð.
f Víkinni mætast að lokum Vik-
ingur, sem er í neðsta sæti deUdar-
innar og toppUð Hauka. Víkingar
verða að sigra ef þeir ætla sér að eiga
möguleika á að ná sæti í úrslita-
keppninni, en Haukar eru auðvitað í
harðri baráttu um efsta sætið í deUd-
inni og heimavaUarréttinn í úrsUta-
keppninni. LeUdrnir hefjast aUir
klukkan 16.30 í dag.
Málin rædd Toppliö Hauka sækir
botnliö Víkings heim f DHL-deildinni
klukkan 16.30 fdag