Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2005, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2005, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 12. MARS 2005 Helgarblað 3DV Margir kannast við Helgu ísfold Magnúsdóttur en hún er einn þátttakenda í Átaki DV. Hún er ekki nema 28 ára gömul en þegar hún var 26 ára var hún búin að eignast fimm börn. „Ég eignaðist fyrsta barnið mitt þegar ég var 16 ára, það var ekkert planað en svona gerast hlutirnir stundum," segir Helga ísfold en þegar hún var 26 ára gömul var hún búin að eignast íjögur börn í viðbót. „Ég hef oft gert grín að því að það megi ekki hnerra á mig, þá er ég komin af stað. En þetta er nú búið að ganga mjög vel, þó að þetta sé auðvitað ekki alltaf auðvelt," segir hún en hún er núna í sambúð með barnsföður sínum en þau hafa verið saman í 13 ár. Hún segir það ganga mjög vel en auðvitað skipúst á skin og skúrir í því eins og öðru. Mamma líka 26 ára með fimm börn Það er gaman frá því að segja að móðir Helgu átú einnig fimm börn þegar hún var 26 ára en aðstæður hennar voru eilítið ólikar aðstæðum Helgu. „Ég er yngst af þessum börn- um en þegar ég var eins árs skildu foreldrar mínir þannig að mamma var bara ein með fimm gríslinga. Hún var þrátt fyrir það ailtaf í þremur vinnum og náði líka að mennta sig og ég hef oft sagt við hana að ég skilji bara ekki hvernig hún fór að þessu," segir Helga en tekur fram að tímarnir hafi verið öðruvísi í þá daga. „Við systkinin fómm öll í sveit á sumrin þegar við vorum lítil. Ég held að krakkar hafi ótrúlega gott af því að komast í sveit, læra að vinna fyrir sér. Nú er bara ekki auðvelt að koma börnum í sveit yfír sumartímann, það eru bara sumarbúðir en það myndi kosta mig um hundrað þúsund krónur að senda tvö elstu börnin í mánuð í sumarbúðir og það er ekki eins og hver sem er hafl efni á því,“ segir Helga ísfold. Fínt að hafa karlinn heima En hvernig skildi ganga að vera með öll þessi börn en vera samt á fullu á átakinu? „Það gengur ótrúlega vel enda er ég ákveðin í að ná þessum kílóum af mér, hvað sem það kostar. Maðurinn minn er sjómaður en sökum slyss sem hann lenti í er hann heima og ég verð nú að viðurkenna að það er ansi gott að hafa hann heima þó það sé ekki til komið af góðu. Hann stendur algerlega með mér í þessu átaki, ætlar meira að segja að fara að koma með mér í Orkuverið," segir Helga sem er búin að mæta á nánast hverjum degi í Trimform Berglindar og í Orkuverið og er farin að fmna töluverðan mun á sér, þá aðallega á fötunum sínum og hún er orðin rnikið orkumeiri. „Við systkinin fórum öll í sveit á sumrin þegar við vorum lítil. Ég held aðkrakkar hafi ótrúlega gott af þvíað komast í sveit, læra að vinna fyrir sér. Systirin einstæð með veikt barn Helga ætlar að reyna að komast tii Svíþjóðar í sumar að heimsækja systur sína, Birtu Mjöll. „Hún er tiltölulega nýflutt þangað með strák- ana sína fjóra en hún er einstæð. Mig langar rosalega að komast til hennar með krakkana í sumar, það er spurning hvort maður hafi efni á því, það er ekki ódýrt að ferðast með fimm börn en ég ætla að gera allt sem ég get til að komast út,“ segir Helga er hún segir þær systurnar vera mjög nánar. „Næstyngsti sonur hennar greindist með hvítblæði seint á síðasta ári þannig að hún hef- ur átt erfiða mánuði eftir að hún flutti út. Birta er besta vinkona mín og ég gæti alveg hugsað mér að flytja til Svíþjóðar, bæði til að vera nær henni í veikindum Hinriks litla og svo hrósar hún því líka hversu vel er gert við barnafólk þarna úti miðað við hér heima,“ segir Helga að lok- um. Mikið úrval af hornsófum með leðri eða með áklæði iusqoqn Ármúla 8 - 108 Reykjavik Sfmi 581-2275 ■ 568-5375 Opíð virka daga10-18 Laugard 11-16 Hornsófi/svefnsófi meðslitsterkuáklæðisem auðvelt er að þrífa. Verð kr. 175.000.” Verðdæmi: Ital sofa Hornsófi með slitsterku áklæði sem auðvelt er að þrífa. Verð kr.125.000.- Hornsófi með slitsterku áklæði sem auðvelt er að þrlfa. Verð kr.198.000.- Skemmtum okkur vel saman u IIIIIIIII1U 2 „iwnnsKi Kikjum við i bústað ÍSelvik og höfum það gottyfir helgina. Kjartan á fjarstýrðan bátsem við leikum okkur meðá vatni, förum í gongutúra og heitapottinn og grillum ■ isaman." oghöfum það gott „Við gerum allt mögulegt saman,“ segir Sæ-var Smári Þórð- arson sem á soninn Kjartan sem er sjö ára. Sævar Smári segir þá feöga duglega að fara í sumarbú- stað og út að hjóla en hann kenndi Kjartani að hjóla. „Við erum saman aðra hvora helgi frá fimmtudegi til mánudags. Við búum nánast hlið við hlið þannig að við getum líka hist oftar,“ segir Sævar Smári og bætir við að það sé mikill munur að hafa hann svona nálægt. Þegar Kjartan komi geti hann samt hitt vini sína og sé ekki rifinn í burtu úr sínu nánasta umhverfi. Sævar og sambýliskona hans, Ragnheiður Hauksdóttir, eiga von á sínu fyrsta barni saman í júní. Sævar er að vonum spenntur og segir Kjartan vera það líka. „Kjart- an á yngri systur en hann hlakkar mikið til að eignast annað systkini. Honum og Ragnheiði kemur afar vel saman sem er mjög fínt.“ Sævar segist gjarnan vilja hitta Kjartan mun óftar en hann skildi við mömmu hans þegar Kjartan var tveggja ára. „Hann man ekki eftir ástandinu öðruvísi. Sem betur fer er samkomulagið gott á milli okkar mömmu hans en maður hefur heyrt af leiðindum hjá öðrum og ég held að það mætti alvég endurskoða réttindi feðra." Sævar og Kjartan munu ekki hittast um helgina en eru að skipuleggja sumarbústaðaferð um næstu helgi. „Kannski kíkjum við í bústað í Selvík og höfum það gott yfir helgina. Kjartan á fjar- stýrðan bát sem við leikum okkur með á vatni, förum í göngutúra og heitapottinn og grillum og höfum það gott saman."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.