Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2005, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2005, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 12. MARS 2005 Helgarblað TfV 's-T Islendingar hafa elskað Emilíönu Torrini frá því hún hóf fyrst upp sína tæru og fallegu rödd. Nánast allar plötur hennar hafa selst í bílförmum og nýja platan hennar, Fisherman’s Woman, er ennþá í efsta sæti íslenska vinsældarlistans, sjöttu vikuna í röð. Platan er M1 af ljúfsárum sökn- uði, trega og þrá, en við enda gang- anna leynist von og gleði. Emilíana er með tónlistinni að vinna úr mikilli sorg og gerir það á svo snilldarlegan hátt að ómögulegt er annað en að hrífast með. Stóra ástin deyr Sorgin á sér upptök í harmleik sem dundi yfir í ágúst árið 2000. Emilíana hafði flutt til London árið áður og fengið samning við One Littíe Indian-útgáfuna, fyrirtæki sem varð að stórveldi við sigurgöngu Sykurmolanna og gefur út plötur Bjarkar í dag. Fyrsta plata Emilíönu í útíöndum kom út árið 1999, Love in the Time of Science; glaðleg plata o sakleysisleg sem mældist vel fyrir. þessum tíma var Emilíana yfir sig ástfangin af kærastanum sínum, Svíanum Jhoan Camitz. Hann var leikstjóri og af mörgum talinn snill- ingur á hraðri uppleið. í undirbún- ingi var fyrsta kvikmynd hans í fullri lengd. Jhoan hafði slegið í gegn með myndbandinu Wannabe sem gerði Spice Girls heimsfrægar og skemmtilegum auglýsingum, m.a. fyrir Dieselgallabuxurnar. Emilíana Þegar Jhoan var ný- kominn útafklúbbn- um vildi svo skeifílega til að skotbardagi á milli manna í tveim bílum var í fullum gangL Ungur maður í öðrum bílnum fékk byssuskot í höfuðið, lést samstundis og stjórnlaus bifreiðin rann beintáJhoan. í staðinn fyrir að gef- ast upp spýtti Emilí- ana í lófana og byrj- aði upp á nýtt, byrjaði annað líf. og Jhoan höfðu verið saman í nokkurn tíma og ijóst á öllu að hann var stóra ástin í lífi hennar. Þau voru í frfi í New York, en Emilíana þurfti að fara til Englands fyrr en áætíað var til að spila á stóru tóniistarfesti- vali. Jhoan varð eftir og kíkti á rapp- klúbbinn Club N.V. í Soho-hverfinu um kvöldið á meðan Emilíana söng fyrir áttatíu þúsund manns á festi- valinu. Þegar Jhoan var nýkominn út af klúbbnum vildi svo skelfilega til að skotbardagi á milli manna í tveim bílum var í fuilum gangi. Ungur maður í öðrum bflnum fékk byssu- skot í höfuðið, lést samstundis og stjórnlaus bifreiðin rann beint á Jho- an. Þremur tímum síðar lést hann á sjúkrahúsi. Erfiðir tímar og líkamsárás f staðinn fýrir að láta sig hverfa í svartnætti sorgarinnar ákvað Emilí- ana að vinna eins mikið og hún gat; vinna til að gleyma. Hún fylgdi fyrstu plötunni sinni eftir af miklum krafti, fór í viðtöl og myndatökur og spilaði á tónleikum með stórstjörn- um eins og Sting, Dido og Gabrielle. Ari eftir atburðinn hræðilega dundi ógæfan aftur yfir. Emilíana var á ferðinni fótgangandi í Suður- London að tala við umboðsmann- inn sinn í farsíma þegar átta ungir menn réðust á hana. Emilíana lýsir atburðinum svona í nýlegu viðtali við The Times Eye: „Það var háanna- tími, allsstaðar fólk en enginn lyfti litía fingri tii að bjarga mér þegar þessir krakkar voru sparkandi í hausinn á mér til að ná farsíman- um. Þegar Emilíana var orðin úrkula vonar um hjáip kom tólf ára stelpa hlaupandi ásamt tveggja ára bróður sínum og hrakti árásarmennina á brott. Þessi ótrúlega at- burðarrás var kornið sem fyllti mælinn hjá Emihonu. „Um kvöldið hugsaði ég bara: Ókei, nú er komið nóg, ég verð að ná valdi á lífi mínu aftur,“ segir hún. Hún íhugaði það m.a. í fullri alvöru að leggja söng- inn á hilluna. Bréf til sjómanns í staðinn fyrir að gefast upp spýtti Emilíana í lóf- ana og byrjaði upp á nýtt, byrjaði annað líf. Hún los- aði sig undan samningi við plötufyrirtækið og sagði skilið við umboðs- manninn sinn. Hún kunntist nýju fólki, m.a. nýjum kærasta, Jamie Cruisey, sem er umboðs- maður hennar í dag. Hún flutti úr grámyglulegri stórborginni og býr í dag í líflega strandbænum Brighton, sem Emilíana segir minna sig á Reykja- vík. Hún hefur smám saman verið að byggja upp sjálfstraustið um leið og ferilinn. Hún samdi lagið Gollum’s Song fyrir stórmyndina Lord of The Rings: The Twin Towers og bjó til smellinn Slow fyrir Kylie Minogue. Lagið samdi Emilíana á hálftíma ásamt samstarfsmanni sínum Dan Carey, sem er allt í öllu á nýju plöt- unni. Enska rokkfyrirtækið Rouge Trade gerði við hana samning þegar menn þar á bæ heyrðu fyrstu drögin að því sem átti eftir að verða Fis- herman’s Woman. „Platan er bréf til mannsins sem ég missti,” sagði Emilíana nýlega í viðtali við Indie London. „Ég höndl- aði það með því að ímynda mér að ég væri með sjómanni. Þeir eru að heiman svo mánuðum skiptir, eins og pabbi eins vinar míns. Mamma hans sá hann í tvær vikur tvisvar á ári." Of margir tunglgyltir lækir Og hvílíkt bréfl Dómarnir eru Einlæg tónlist Plata Emillönu er létt og geislar aflifsgleöi þó hún fjalli um aö sorgin hafi haft stór áhrif. nánast á einn veg: Stórkostíeg plata sem lætur engan ósnortinn og vex með hverri hlustun. Þessa dagana fylgir Emilíana plötimni eftir með tónleikaferð um heiminn. Hún er með þriggja manna band með sér. Eftir yfirstandandi Evróputúr taka Bandaríkin við, en Emilíana mun leyfa okkur að njóta einlægrar tón- listar sinnar í návígi og áætíar að taka lítínn tónleikatúr um fsland í sumar. Þrátt fyrir harminn og sorgina sem umvefur allt er platan líka ein- kennilega léttleikandi og geislar af lífsgleði og von. Þrátt fyrir allt það sem á undan er gengið er Emilíana bjartsýn og jákvæð. „Ég gæti aldrei gert plötu sem er sorgleg út í gegn,“ sagði hún við Indie London. „Það eru bara of margir tunglgyltir lækir í heiminum og of mörg líf sem þarf að lifa. Fisherman’s Woman var mín aðferð til að græða sárin.” Jhoan Camitz Afheimasiöu hans sem vinir hans halda ennþá úti. Bjartasta vonin Emilíana hefur náö langt siöan hún varkostin söngkona ársins og bjartasta vonin á Islensku tónlistarverölaununum 1994. Tónskáldiö Emilfana Hún er fjölhæfur tónlistarmaður sem hefur samiö tónlistfyrir aörar stórstjörnur. Nýjasta plata Emiliönu Torr- ini er sú mest selda á land- inu og hefur veriö það í sex vikur. Platan er sprottin af hræðilegum harmleik sem söngkonan lenti í fyrir nokkrum árum og hún vinnur úr með ljúfsárum textum og tónlist sem kem- ur beint frá hjartanu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.