Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2005, Blaðsíða 55

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2005, Blaðsíða 55
DV Helgarblað LAUGARDAGUR 12. MARS 2005 55 Níunda listgreinin - myndasagan - hefur fylgt okkur frá upphafi. Með list hennar gat kirkjan náð beinu sam- > bandi við hina ólæsu. Hún var notuð í pólitískum tilgangi sem spott um þá háttsettu og færði fjöldanum ein- faldar móralskar kenningar. í prentmiðlum flutti hún fréttir og skemmtun. í Listasafni Reykjavíkur opnar í dag glæsileg kynning á myndasögunni í mörgum aðskildum deildum. Hún er sterkur vottur um stöðu grein- arinnar hér á landi og ætti að verða mörgum undrunarefni. Myndasagan hefur aldrei troðið sér fram riJ I *fI r J u 11 M u Hetjíii' og þeíp unMlÍu Nían - Myndasögumessa, er sýn- ingin kölluð. Hún varð til fyrir for- göngu Gisp!-hópsins tmdir forystu Bjarna Hinrikssonar en um þessar mundir eru um þrettán ár síðan hópurinn tók sig saman og hélt stóra sýningu á Kjarvalsstöðum þar sem sýnd voru verk íslenskra og franskra myndasöguhöfunda. Upp frá því húa sprottið upp nýir, íslenskir myndasöguhöfundar, og staða myndasögunnar breyst umtalsvert. Hún hefur orðið athafnasvæði myndlistarmanna með annan til- gang en hreina þjónkun við afþrey- ingu, stigið fram sem fullgildur tján- ingarmiðill. íslenskir og erlendir kraftar Á sýningunni í Hafnarhúsinu skoðar Gisp!-hópurinn nýja og breytta stöðu myndasögunnar á ís- landi og býður til liðs við sig höfund- um frá Bandaríkjunum, Kanada, Bretlandi og Qestum Norðurland- anna auk þess að varpa sérstöku ljósi á tengsl Erró við myndasöguna. Meðal þeirra sem eiga sögur og verk á sýningunni eru höfundar Optimal Press í Svíþjóð sem gefur út marga norræna höfunda, fulltrúar Drawn & Quarterly í Kanada, Kaninn Art Spiegelman, höfundur hinnar kunnu Maus-sögu, og Bret- inn Dave McKean sem hefur mynd- skreytt verk Gaimans. íslendingarnir eru þeir Bjarni Himiksson, Jóhann L. Torfason, Þorri Hringsson, Halldór Baldurs- son, Ólafur J. Engilbertsson, Hall- grímur Helgason, Helgi Þorgils Frið- jónsson, Þorvaldur Þorsteinsson, Hugleikur Dagsson svo fáeinir séu nefndir. Stór hópur hinna erlendu höf- unda mun koma hingað til lands til að vera viðstaddur opnun sýningar- innar. Níunda tölublaðið á Níunni í tilefrii af sýningunni gefur Gisp!-hópurinn út viðamikla og vandaða sýningarskrá sem inniheld- ur greinar um íslenskar og erlendar myndasögur, yfirlitsgrein um myndasögur á íslandi og íslensku myndasöguna eftir Ingu Maríu Brynjarsdóttur, greinar um Dave McKean og Art Spiegelman eftir Úlf- hildi Dagsdóttur, grein um sögu Gisp! eftir Bjama Hinriksson að ógleymdu viðtali við Erró sem Bjarni tók fyrr á þessu ári. Sá kálfur sýningarinnar sem helgaður er Erró varpar einstaklega skýru ljósi á vinnsluaðferðir Guð- mundar og hvernig hann heflir með skipulegum hætti notað efrii úr myndasögum í verk sín. Bara sá þáttur sýningarinnar er einstaklega fróðlegur og spennandi hverjum áhugamanni um myndlist. Sýningin vekur einnig athygli á því athyglisverða starfi sem starf- andi myndlistarmenn hafa unnið í þögn: Gisp, Bandormurinn og Blek eru tímarit sem fáir hafa lagt sig eft- ir en ættu frá þessari sýningu að verða spennandi söfriunarefni þeim sem áður beittu öllum ráðum til að ná undir sig eldri árgöngum mynda- sagna. Gissur gullrass Myndasagan á íslandi hefur gengið í gegnum nokkra fasa. Með þróun prenttækni tóku vikublöð og dagblöð að birta myndasögur: Fálk- inn og Vikan báru skærasta kyndla í framgangi myndasögunnar, en blöð á borð við Mogga, Tímann og Vísi voru engir eftirbátar þeirra á eftir- stríðsárunum. Tarsan, Gissur gullrass, Knold og Tott, Dreki, Eirík- ur rauði, Terry og sjóræningjarnir að ógleymdum Hvell Geira voru um langt árabil fastur liður í daglegu lífi margra kynslóða. Til hliðar við svarta dagblaða- strípuna komu hasarblöðin amer- ísku og Andrés í dönsku útgáfunni, uns hér námu land harðspjaldasög- Hluti myndraðar eftir Gunnar Karlsson urnar sem voru ættaðar frá megin- landi Evrópu. Sigga Vigga og Stebbi stæl- 9» Innlendir höfundar áttu alltaf erfitt uppdráttar því einstaka strípur litu snemma dagsins ljós: Haraldur Guðbergsson og Birgir Bragason birtu báðir sögur á sjöunda áratugn- um og Gísli Ástþórsson hafði þá ver- ið að um langa hríð með Siggu Viggu. Gisp!-hópurinn kemur til sög- unnar um það leyti sem neðanjarð- armyndasagan er að hverfa og verð- ur að ofanjarðarfyrirbæri. Mynda- sagan hefur á fjölmennum mál- svæðum skapað sér sjálfstæða til- veru sem er víðast afskipt í menn- ingarumræðu en nýtur ákafrar virð- ingar þeirra sem á annað borð leggja sig eftir kröftum hennar og h'fs- magni. Hún hefur haft afgerandi áhrif á myndmál kvikmyndarinnar á síðustu áratugum og ræður miklu um hvernig við skoðum heiminn. Við sjáum heiminn í myndasögum. M Sfe« Halldór Baldursson hengir upp kunnuglega kerlingu sem birtist um tíma í DV sem hann vann ásamt Þorsteini Guðmundsyni. Útlán og sala Samstarfsaðilar Listasafnsins að sýningunni eru Borgarbókasafriið og Nexus en báðir þessir aðilar munu gera myndasögunni hátt undir höfði á sýningartímabilinu með viðburðum og uppákomum. Borgarbókasafnið mun auka úr- val sitt á myndasögum til útláns og einnig mun Reykjavíkurtorgið í Grófarhúsinu verða vettvangur myndasagna. Undir lok sýningar- tímabilsins er fyrirhugað að hafa þar sýningu á vinnu ungra teiknara sem tekið hafa þátt í myndasögunám- skeiðum og öðrum áhugasömum. Einnig er þar íyrirhuguð dagskrá þar sem unga fólkið spjallar um myndir sínar og myndasöguáhuga. í Nexus verður einnig stórlega aukið úrval myndasagna og fjölbreytileiki þeirra þar sem aldrei fyrr. Leiðsögn og áritanir Sérstök athygli er vakin á því að á sunnudag, kl. 15.00 mun sýningar- stjórinn Bjarni Hinriksson ásamt nokkrum hinna erlendu mynda- söguhöfunda vera með leiðsögn um sýninguna. Fyrr um daginn mun afþreying- ar- og bókaverslunin Nexus svo skipuleggja áritanir hinna erlendu gesta í höfuðstöðvum sínum að Hverflsgötu 103 og er dagskráin sem hér segir. Kl. 13.00-Matti Hagelberg, Kati Kovács og Katja Tukiainen, kl. 13.30-Pentti Otsamo, Anneli Fur- mark og David Collier, kl. 14.00- David Liljemark, Henrik Lange og Ása Grennvall og kl. 14.30-Julie Doucet og Jason. Þá munu Listasafti Reykjavfkur og Borgarbókasafnið gangast fyrir málþingi og pallborðsumræðum um myndasöguna og önnur listform 2. og 3. aprfl undir yfirskriftinni Myndasaga og bókmenntirnar/ Myndasagan og myndlistin. Áskorun Ekki verður hjá því vikist að vekja athygli á því einstaka tækifæri sem Grunnskólar Reykjavflcur og ffarn- haldsskólar hafa nú til að nýta sér ^ áhuga nemenda á myndasögunni sem fullorðnir gera sér fæstir grein fyrir hvað er mikill. Sýningin í Lista- safni ætti í raun að kalla á sömu at- hygli yfirvalda í Reykjavík og vænt- anleg Listahátfð, en hér storkar lif- andi og áköf fjöldahreyfing neyt- enda í hópi barna og unglinga hinni „viðurkenndu" og menntuðu list hinna fullorðnu. Myndasagan getur í höndum ungra handa orðið virkur tjáningarmáti og stendur áhugafull- um eldsálum nærri. Sýningin stend- ur til 24. aprfl. pbb@dv.is i BORGARLEIKHUSIÐ Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3, 1 03 Reykjavík STÓRA SVIÐ DRAUMLEIKUR e. Stríndberg. Samstarf: Leiklistardeild LHÍ í kvöld kl 20, Lau 19/3 kl 20, Su 20/3 kl 20, Lau 9/4 kl 20, Su 10/4 kl 20 HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar eftír vesturfarasögum Böðvars Cuðmundssonar Su 13/3 kl 20 - UPPSEU. Fi 17/3 kl 20 - UPPSEU, Fi 7/4 kl 20, Fö 8/4 kl 20, Lau 16/4 kl 20, Su 17/4 kl 20 e. Coline Serreau Lau 23/4 kl 20, Fö 29/4 kl 20 LINA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Lau 2/4 kl 14 - Aukasýning Su 3/4 kl 14 - Aukasýning Lokasýnmgar HOUDINI SNÝR AFTUR Fjölskyldusýning um páskana. Mi 23/3 kl 20, Fi 24/3 kl 15, Fi 24/3 kl 20, Lau 26/3 kl 15, Lau 26/3 kl 20 LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA “’PSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDI Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsifl - kynning á verki kvðldsins Kl 19:00 Matseflill kvöldsins Kl 20:00 Leiksýning kvöldsins NÆRING FYRIR SAL OG LÍKAMA - BÓKIÐ I TÍMA TT?mrrt i1J" WTFr— e. Kristínu Ómarsdóttur Su 13/3 kl 20, Lau 19/3 kl 20, Su 20/3 kl 20 BELGÍSKA KONGO e. Braga Ólafsson, Críman fyrír besta leik í aðalhlutverki í dag kl 16 - AUKASÝNING í kvöld kl 20 - UPPSEU, Lokasýningar AUSA eftir Lee Hall í samstarfí við LA. Su 13/3 kl 20, Su 20/3 kl 20, Su 3/4 kl 20 - Ath: Miðaverð kr. 1.500 AMERICAN DIPLOMACY eftir Þoríeif Örn Arnarsson. í samstarfi við Hið lifandi leikhús. Lau 18/3 kl 20, Fi 31/3 kl 20, Fö 1/4 kl 20 Síðustu sýningar SAUMASTOFAN 30 ARUM SIÐAR eftir Agnar Jón Egilsson. í samstarfi við TÓBÍAS. Fi 17/3 kl 20 Sfðasta sýning ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Einleikur Eddu Björgvinsdóttur. í kvöld kl 20 - UPPSEU, Fö 18/3 kl 20 - UPPSEU, Lau 19/3 kl 20 UPPSEU Su 20/3 kl 20, | Mi 23/3 kl 20, Fi 24/3 kl 20, Fö l/4kl20-UPPSELT. Lau 2/4 kl 20 UPPSEIT. : eftír Harold Pinter ' Samstarf: A SENUNNl.SÖCN ehf. og LA [ kvöld kl 20, Lau 19/3 kl 20 Börn 12 ára og yngri fá frltt í ■ Borgarleikhúsið í fylgd fullorðinna - gildir ekki á barnasýningar Miðasölusími 568 8000 • midasala@borgarleikhus.is Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is Miðasalan i Borgarleikhúsinu er opin: 10-18 mánudaga og þriðjudaga, 10-20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga 12-20 laugardaga og sunnudaga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.