Freyr - 01.05.1945, Side 19
FRE YR
69
4. mynd: Ferhyrnd ungamóðir, fullsmíðuð.
oerginu. En að tveim til þrem
dögum liðnum á að gefa ungun-
um að eta og drekka fyrir utan
móðurina, hvort sem hlýtt er eða
kalt í herberginu.
Rétt er að sverta perurnar ef
hægt er, til þess að draga úr birt-
unni af þeim. Að líkindum er
þetta þó ekki bráðnauðsynlegt.
Það virðist vera betra að hafa
tjald utan á ungamóðurinni
fyrstu vikuna eða fyrstu tvær
vikurnar, sérstaklega ef hún
stendur í koldu herbergi, þó er
það ekkert aðalatriði.
Þurrt rusl skal nota bæöi inni í móður-
inni og í kringum hana. Ekki ætti að þurfa
að skipta um það fyrstu tvær vikurnar,
nema það verði rakt af einhverjum ástæð-
um. Leitast skal við að halda ruslinu nokk-
urn veginn hreinu.
Fyrstu dagana þarf að girða kringum
ungamóðurina í svo sem 50 cm. fjarlægð
með þéttu vírneti eða plötum um 30 cm.
háum, svo að ungarnir villist ekki írá
móðurinni. En brátt átta þeir sig á því
hvar hitagjafinn er; og þá má taka girð-
inguna burtu.
5. mynd. Grindin fest saman með kassajárnum.
þúrfa þeir lítils eftirlits með í þessum
ungamæðrum.
(Þýtt).
Stundum taka ungarnir upp á því, að
pikka í hliðarnar á ungamóðurinni með
nefinu. Má verja hliðarnar með því að
líma á þær þykkt bómullarklæði.
Eftir að ungarnir eru orðnir þriggja vikna
gamlir þarf að koma í veg fyrir að þeir
dríti ofan á ungamóðurina. Má gera það
með vírnetsgirðingu, svo sem 30 cm. hárri,
sem fest er á efri brún móðurinnar allt í
kring.
Að sjálfsögðu þarf að viðhafa venjulega
natni við ungana, að því er snertir fóðrun,
vatnsgjöf og þess háttar, en að öðru leyti
Þaö, sem til er af Búnaðar-
ritinu fæst ennþá fyrir kr. 30,00,
að viðbættu burðargjaldi, en
það eru 1. árg., 3.—14. árg., 36.
—46. árg. og 48.—56. árg. Alls
33 árg. fyrir kr. 30,00 og eru það
góð kaup, því að í ritinu er
margt fróðiegt að finna.