Freyr

Árgangur

Freyr - 01.03.1947, Blaðsíða 7

Freyr - 01.03.1947, Blaðsíða 7
FREYR 89 Hlöðugólfin eiga að liggja í sömu hœð eða aðeins lítið eitt lœgra en gólf peningsliúsanna. Svíar byggja hlöðúr sínar á þennan hátt og hafa þær háar. Máttviðir í hlöður, eru nú framleiddir í verksmiöjum. Myndin sýnir nýreista hlöðu af þessu tagi. Hún var til cýnis á landbúnaðarsýningunni í Stockhólmi í fyrra. °g jarðvinnsluverkfæri grafa skurði og tæta landið. Fræi er sáð, áburði er dreift, illgresi hreinsað, upp er skorið og uppskeru bjargað undir þak með aðstoð véla og verkfæra. Þau bústörf, sem unnin eru undir ^úsþaki, hafa til þessa notið tækninnar í tiltölulega takmörkuðum mæli. Einkum gildir þetta hirðingu búfjárins. Um und- anfarna áratugi hefir útbreiðsla mjaltavéla yerið nokkur og farið vaxandi, en í þeim hefir líka verið fólgin sú tækni, er mestri útbreiðslu hefir náð innan peningshúsa. Onnur tækni við gripahirðingu og með- ferð afurða hefir og verið notuð hér og þar en ekki verið almenn. Má í því sambandi nefna sjálfmokstur mykjunnar úr fjósinu, fóðurvagna, er ganga á sporbrautum o. fl:, en þessi útbúnaður hefir hingað til verið fágsetur og reynst misjafnlega. Meir hefir kveðið að því að leitað nafi verið hagkvæms byggingafyrirkomulags til þess að gera hirðingu búfjárins sem auðveldasta. Þannig er með öllu talið óverjandi að byggja peningshús dreifð, og fóðurgeymslu fráskilda, eins og fyrr gerö- ist. Samstæð peningshús, með áfastri hlöðu, veita skilyrði til þess aö hagnýta tækni og undir þeim kringumstæðum er það í dag talið meðalmannsverk að hirða t. d. 20—25 kýr, en fyrr þótti hirðing 12—15 kúa meðalmannsverk. Menn gera kröfu til þess að áburðar- lögurinn renni sjálfkrafa úr flórnum í þvagþró, að léttvirk eða sjálfvirk tæki flytji mykjuna í mykjuhús eða haugstæði, að fóðrinu sé ekið í hjólbörum eða vögnum sem knúðir eru með rafmagni eða öðrum vélrænum aflgjafa, að vatnið renni sjálf-

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.