Freyr

Árgangur

Freyr - 01.03.1947, Blaðsíða 38

Freyr - 01.03.1947, Blaðsíða 38
118 FREYR Svo kom veturinn. Lengi hafði gott gengið og óvenjulegt að sumarveðrátta ríki því nær samstætt frá veturnóttum og fram á góu, enda voru ís- lendingar erlendis og aðrir á þeim slóðum, sem búið hafa við frost og fannkingi mán- uðum saman, með uppástungur þess efnis að gefa íslandi nýtt og hlýlegra nafn en það nú hefir. Sunnan lands gerði stillur og bjartviðri laust fyrir miðjan febrúar og samtímis hófust hríðarveður í öðrum landshlutum. Þetta veðurfar hélzt óbreytt vikum saman. Þegar þessar línur fara í prentun er allt sem verið hefir, frost sólskin og fagurt veður sunnanlands, en fannkyngi hylur fjöll og sveitir vestan lands, norðan lands og austan. Svo mikil voru snjóalögin á Norðurlandi að allir vegir reyndust ófærir. Snjóýtur fóru um vegi í Eyjafirði svo lengi sem gengið gat, en þar að kom að þau mikilvirku tæki stöðvuðuzt. Fann- kyngi var svo mikið að engu varð áorkað. Lengi ruddu þær frá sér og hlóðu sköflum á báða vegu á daginn, en að nóttunni fyllti gangana og náttúruöflin urðu tækn- inni ofjarl. Því tepptust bílferðir með öllu og mjólk- urflutningar um leið. — Menn urðu að taka skíðin til hjálpar um skemmri leiðir, en þegar um langvegu var að ræða t. d. milli landshluta, var gripið til flugvélanna. En fyrst varð þó að ryðja flugvelli. Fundahöld bænda. eru venjulega mest þegar líður á vetur og dagur lengist. — Veðrátta og færi hefir að þessu sinni ekki gert þeim auðvelt um að komast að heiman til fundahalda. Fregnir hafa þó borizt um að fundafært hafi orðið og það um leið, að stórhugur ríki meðal bænda um framkvæmdir, enda er knýjandi þörf á því að skipa ýmsu í beta horf í sveitunum. Aðalfundur Búnaðarsambands Húna- vatnssýslu var haldinn á Blönduósi 22. febr. Voru þar gerðar ýmsar ályktanir og sam- þykktir og skal hér drepið á þær helztu. Ráðstafanir voru gerðar til þess að skipu leggja för héraðsmanna á landbúnaðar- sýninguna í Reykjavík á komandi sumri. Fulltrúa héraðsins á Búnaðarþingi var falið að vinna að því, að Búnaðarþing hlutist til um, að S.Í.S. og kaupfélögin geri allt sem unnt er til þess að hafa fyrir- liggjandi nægilegt af varahlutum í hey- vinnu- og jarðyrkjuvélar. Fundurinn beinir þeim tilmælum til Búnaðarþings og Stéttarsambands bænda, að lögð verð áherzla á minni álagningu J

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.