Freyr

Árgangur

Freyr - 01.03.1947, Blaðsíða 24

Freyr - 01.03.1947, Blaðsíða 24
104 FREYR bæði félaga og einstaklinga. Félags- og eftirlitsstarfsemin hefir •— aðallega fyrir atbeina sauðfjárræktarfélagsins — rist mjög djúp spor á þessu sviði. Stofnaður hefir verið aragrúi minni félaga (Bagför- eninger). Eru þessi félög aðallega fyrir þá, sem eiga aðeins fáar kindur. Kaupa félögin — með styrk frá yfirvöldunum — kynbóta- hrúta, sem síðan eru notaðir innan félags- ins. Fjöldi eftirlitsfélaga (Kontrolfören- inger) starfa undir eftirliti aðalfélagsins, og mynda þannig megingrundvöll ættbók- arfærslunnar. Einnig eru starfandi fjögur „kynjafélög“ (Racklubber), eða eitt fyrir hvert aðalsauðfjárkyn í landinu: Lantrac sænskt kyn), Cheviot, Shropshire og Ox- forddown. Mörg kynbótabú eru rekin fyrir hvert kyn. Allir þeir, sem eiga kynbótabú, verða að merkja lömbin nákvæmlega strax eftir fæðingu, vega þau og færa inn í þar til gerðar bækur. Er þá tekið fram, hvort lambið er fætt sem einlembingur, tví- lembingur o. s. frv. Ennfremur eru lömbin vep'in tveggja og fimm mánaða og þegar þeim er slátrað. Þau lömb, sem sett eru á, eru vegin sem veturgamlar og aftur sem fullvaxta kindur. í hvert skipti, sem tekið er af — oftast vor og haust — er ull- in vegi og vigtin bókfærð. Á sama hátt er fylgst með öllum öðrum afköstum fjárins. Á hverju hausti kemur umsjónarmaður sauðfjárkynbótanna — annað hvort mað- ur ,frá sauðfjárræktarfélaginu, ríkisráðu- nauturinn eða héraðsráðunauturinn 1 bú- fjárrækt — skoðar bækurnar og alla hjörð- ina, velur lömb til lífs og færir vetur- gamlar kindur og hrúta — sem verðug reynast — inn í ættarbækur. Eldri ær og hrútar, sem ekki hafa reynst vel til und- aneldis, eru merkt til slátrunar. Til eru þrenns konar ættbækur: 1) „Undirbúningsættbók" — í hana eru færð öll yngri dýr, sem vel eru byggð, hafa góða ull og eru af góðum ættum, — 2) „Ríkis- ættbók“ — þar eru færð inn öll þau dýr úr hinni fyrrnefndu bók, sem þroskast vel og skila miklum og góðum afurðum — og 3) „Úrvalsættbók sauðfjárræktarfélagsins,“ en í hana eru aðeins færð eldri dýr, er skilað hafa sérstaklega miklum og góð- um arði og reynst framúrskarandi til und- aneldis. Við sölu allra kynbótadýra er talið sjálf- sagt og eðlilegt að fullkomin ættartafla, með öllum æskilegum upplýsingum, fylgi dýrunum úr garði. Til þess að viðhalda og bæta fjárstofn- inn hafa verið flutt inn fleiri hundruð kynbótadýr. Frá Noregi hefir verið keypt Cheviot og kindur af norsku kyni (stutt- rófur), frá Finnlandi finskar kindur (stuttrófur) og frá Englandi Cheviot, Shropshire, Oxforddown og lítilsháttar Leicester og Border Leicester. Af hreinum fjárkynjum áttu Svíar 1937: 95.000 Lantrac, 68.000 Cheviot, 26.000 Shropshire og 13.000 Oxforddown kindur, auk þess lítið eitt af Leicester og Border Leicester ásamt Karakúl. Þessi þrjú síð- astnefndu kyn eru þó hverfandi. Hlutföll- in milli kynjanna munu vera svipuð nú og fyrir stríð. Sænska kynið (Lantrac) er merkilegt að því leyti, að það er innlendur stofn, sem — einkum þar sem náttúruskilyrði eru erf- ið — virðist ætla að útrýma hinum inn- fluttu kynjum, meira að segja Cheviot. Þegar sauðfjárræktarfélagið var stofnað, var þetta kyn víða úr sögunni eða um það bil að hverfa og ýmsir töldu, að ekki væri vert að sinna því. Eitt af fyrstu verkefn- um félagsins var að endurbæta kynið. Notuð hefir verið hreinrækt af beztu stofn- unum, sem fyrir hendi voru, en auk þess

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.