Freyr

Árgangur

Freyr - 01.03.1947, Blaðsíða 20

Freyr - 01.03.1947, Blaðsíða 20
100 FRE YR af öðru en mæðiveikinni, einkum vegna ills árferðis. Vorið var mjög kalt og sum- arið lélegt heyskaparsumar, svo að nokkr- um heilbrigðum ám var slátrað haustið 1943. Árið 1939 var viðhald ánna ca. 10% lægra en það hefir verið nokkurt ár síð- an. Þetta mun fyrst og fremst orsakast af því að í Miðfirði voru öll lömb drepin haustið 1937 og flestar veturgamlar gimbr- ar, svo að því nær ekkert fé hefir verið þar til frá þessum tveimur árgöngum. Árið 1939 hefðu ær, fæddar 1937 og 1936 verið á þriðja og fjórða aldursári, en á þeim aldri drepst féð mest. En úr því ær á þeim aldri voru ekki til, gátu þær ekki drepist. — Einnig er ekki víst að þurra- mæðin hafi þá verið komin á alla bæi í Miðfirði. Getur það líka átt þátt í því að vanhöldin voru fremur lítil 1939. Á engum bæ í Miðfirði hefir fjárdauð- inn farið minnkandi síðustu árin, en hann hefir ávallt verið minni á bæjum í C- flokki en bæjunum í A og B-flokki. Linurit B sýnir hve mörg % af ánum í Miðfirði í hverjum flokki af hverjum ár- gangi síðan 1938 voru, í janúar 1946 lif- andi, dauðar úr mæðiveiki og dauðar af öðrum orsökum. Línurit D sýnir hins vegar hve mörg % af sömu ám í hverjum flokki af hverjum árgangi síðan 1938, hafa verið lifandi í ársbyrjun ár hvert síðan 1939. Sézt þar eins og í Reykholtsdalnum að fjárdauðinn er mestur á 3. og 4. aldursári ánna. Féð á þeim bæjum í Miðfirði, sem hér er um að ræða, var í ársbyrjun 1939 aðeins 2508 kindur, en var í ársbyrjun 1946 3680, en 1943 hefir það orðið flest síðan mæði- veikin kom upp, 3992 kindur. Fer því held- ur fækkandi nú og fjártalan er ca. helm- ingi lægri nú í Miðfirði en hún var, áður en mæðiveikin fór að geysa í Húnavatns- sýslu. Yfirlit. Þær athuganir sem gerðar hafa verið árlega síðan 1938 í Reykholtsdal og Mið- firði á viðnámsþrótti sauðfjár gegn mæði- veikinni og þurra-mæðinni, hafa leitt í ljós eftirfarandi atriði: 1. járstofnarnir hafa reynst allmisnæm- ir fyrir þessum sjúkdómum. Þó hafa engir . fjárstofnar fundist sem reynst hafa ó- næmir fyrir þeim. Síðustu sjö árin hefir árlegt viðhald ánna á þeim bæjum þar sem féð hefir reynst næmast verið um 40% og allar kindur af þessum stofnum hafa farist áður en þær náðu háum aldri. Þar sem mæðiveikin og þurra-mæðin drepa minnst, falla árlega ca. 10—15% af ærstofninum. Á þeim bæjum er ca. 10% af fénu það ónæmt, að það tekur hvor- uga þessa veiki áður en því er fargað fyrir elli sakir. 2. Misnæmi fjárstofnanna hefir all- mikla fjárhagslega þýðingu, því unnt er bændum að reka sæmilega arðsaman saúðfjárbúskap ef þeir þurfa ekki árlega meira en ca. 20 gimbrar til þess að halda við 100 ám, en ókleyft að hafa viðunandi arð af fjárbúi ef árlega þarf 35—50 gimbr- ar til viðhalds 100 ám. 3. Reynslan hefir sýnt að á mjög fáum búum er svo hraust fé að ekki þurfi a. m. k. 28—30 gimbrar árlega til að halda við 100 ám. Það orsakar að árlegt meðalvið- hald ærstofnsins verður yfir 30% á mæði- veikisvæðunum. 4. Fáir bændur hafa lagt sig fram við að kynbæta fjárstofn sinn með tilliti til hreysti gagnvart mæðiveiki og þurra-mæði. Sumir hafa þó gert verulega tilraun tii þess en aðeins einn bóndi, á þeim bæjum, sem hér um ræðir, hefir náð verulegum

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.