Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.03.1947, Qupperneq 22

Freyr - 01.03.1947, Qupperneq 22
102 FREYR kostnaðarsama tilraun og þetta lengur en í 10 ár. Það verður því að framkvæma fjárskipti eins fljótt og við veröur komið. Það verður að gera það með djörfung og festu og géra allt ,sem er í mannlegu valdi til þess að fjárskiptin beri tilætlaðan ár- angur. Fjárskipti kosta mikið, en það kostar líka mikið fyrir þjóðina að missa 60.000—70.000 ær úr mæðiveiki árlega um ófyrirsjáanlegan tíma. Ef þröngt er í búi hjá ríkissjóði er ekki um annað að ræða en að slá á frest um nokkurra ára skeið byggingu einhverra halla, kirkna, safnhúsa og annarra steinbjálka 1 höfuðstað landsins, sem á döfinni er að byggja og nota féð til fjár- skiptanna. Þjóðin getur lifað menningar- lífi þótt eitthvað færri miljónir séu settar í stein á næstu árum en gert er ráð fyrir, en hún lifir ekki heilbrigðu lífi hvorki fjár- hagslega né menningarlega, nema bænda- stéttin geti stundað arðbæran atvinnu- veg á ókomnum árum. Halldór Pálsson. Sauðfjárrækt í Svíþjóð Enda þótt flatarmál Svíþjóðar sé nær 4,5 sinnum stærra en íslands og býlatalan liðlega 60 sinnum hærri, eru Svíar ekki jafn sauðmargir og íslendingar og veldur hin mikla skógrækt þar nokkru. Fyrir stríð áttu þeir ekki nema rúmar 200 þúsund ær, en á stríðsárunum (1939—45) fjölgaði þeim upp í liðlega 400 þúsund. Var það einkum ullarskorturinn í landinu, sem olli þessari aukningu. Þrátt fyrir hina litlu hlutdeild sauðfjár- ins í þjóðarbúskapnum, gera Svíar miklu meiri gagnskör að því en íslendingar að bæta fjárstofninn. Skal það strax tekið fram, að sauðfjárkynbætur þeirra eru af fróðum mönnum taldar meðal hinna merk- ustu í Norður- og Mið-Evrópu. í mjög stuttu máli vil ég leitast við að skýra lesendum „FREYS“ frá helztu að- gerðum Svía á þessum vettvangi. Um ullar- kynbætur og rannsóknir get ég þó ekki fjallað í þessum fáu línum. Vera má að mér gefist tækifæri til þess síðar. Árið 1917 var sauðfjárræktarfélagið sænska, Svenska Fáravelsföreningen, stofnað’. Hefir það síðan verið brautryðj- andi fjárræktar þar í landi. Var félagið svo heppið, þegar á stofnári, að ná í ungan, duglegan mann, að nafni Nils Insulander. Gerðist hann gjaldkeri og ritari félagsins og hefir gegnt því starfi síðan. Ennfremur hefir Insulander verið ríkisráðunautur í sauðfjárrækt síðan 1918. Störf hans í þágu félagsins og í þágu sænskrar sauðfjár- ræktar almennt, verða vart metin, enda hefir hann hlotið verðskuldaða viðurkenn- ingu fyrir, bæði utan lands og innan. Störf félagsins eru mörg og umfangs- mikil, enda hefir það á að skipa — auk ráðunautarins — tveim faglærðum aðstoð- armönnum og skrifstofustúlku. Gefur félagið út tímarit, Svenska Fáravelsfören- ingens Tidsskrift, sem kemur út sex sinn- um á ári. Flytur það niðurstöðutölur vís- inda- og eftirlitsstarfsemi á sviði sauðfjár- ræktar, fræðandi greina, áróðursgreinar o. fl. Fyrir milligöngu félagsins hefir verið sett á stofn „ullarmiðstöð,“ A.—B. Svensk ull, og er mikjll hluti ullaþframleiðslunnar

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.