Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2005, Qupperneq 11
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 27. APRlL 2005 11
Tveggja millj-
óna síma-
reikningur
Meðlimir króatísks
kirkjusafaaðar styður prest
sinn og neitar
nú að sækja
messu fyrr en
presturinn, sem
var settur af fyrir
að hringja í
símavændislínu,
fær hempuna sína til baka.
Presturinn heldur fram sak-
leysi sínu og segist hafa ver-
ið gabbaður til að hringja af
starfskonu símavændisins,
starfsemi sem hann vissi
ekki að væri til. Hún hafi
gefið sig út fyrir að vera ný-
frelsuð eftir erfiðan skilnað.
Reikningurinn vegna þjón-
ustunnar nemur tæpum
tveimur milljónum króna.
Springandi
froskar
Gestir útivistargarða í
þýsku borginni Hamborg
eru þessa dagana
beðnir um að vara
sig á froskum sem
springa óforvarend-
is. Að sögn starfs-
manna borgarinnar
hafa þúsundir froska
drepist undanfarnar vikur.
Sjónarvottar segja að frosk-
amir byrji skyndilega að
tútna út og springa svo,
með meðfylgjandi innyfla-
slettum og líkamspörtum.
Engar ástæður hafa fundist
fyrir þessum undarlegu at-
burðum en giskað hefur
verið á veiru- eða sveppa-
sýkingu eða vamarkerfi
gegn krákum sem nýlega
hafa sest að í Hamborg.
Stingandi
hausverkur
Rússanum Artur
Dzhavanyan varð bylt við
þegar hann áttaði sig á að
það sem hann hélt vera
þynnkuhausverk var
vegna þess að hnífur
stóð í andlitinu á
honum. Artur
hafði verið að
drekka með fé-
laga sínum en
skriðið í bælið
eftir að hafa
gefistuppá 0
sjálfsvor-
kunn félagans, og sagt hon-
um til syndanna vegna
þess. Læknar segja Artur
hafa sloppið ótrúlega vel
þar sem hnífurinn stakkst í
kinnbeinið en gekk ekki á
mýkri stað. Artur neitar að
kæra félaga sinn. Hann er
bara feginn að vera á lífi.
Kennari í
klámblaði
Hollenskur kennari hef-
ur verið sendur í viku frí eft-
ir að hafa setið fyrir
á nektarmyndum í
klámblaðinu Foxy.
Kennarinn vinnur í
þorpinu Harkema.
Skólayfirvöld ætla
sér ekki að reka
kennarann sem er
kona, enda brotið
ekki nógu alvarlegt,
en vildu gefa henni
frí meðan umtalið
hjá þorpsbúum
deyr út. Tölublaðið
með myndunum seldist
upp í matvöruverslun Hark-
ema. Ritstjórn Foxy er yfir
sig hlessa á umrótinu í
kringum málið og lýsti því
yfir að fleiri myndir birtust
af kennaranum í næsta
tölublaði.
Debbie Rowe, fyrrverandi eiginkona Michaeis Jackson, fær aö bera vitni fyrir sak-
sóknara. Vitnaleiðslum saksóknara lýkur í þessari viku. Úrskuröir dómara hafa
oftar en ekki fallið verjendum Jacksons í hag.
Með pabba Jackson hefur
verið vel studdur afforeldr-
um sínum sem mæta ávallt I
réttarsalinn með honum.
-fgjpg@
voru auglvsinnabrella
Dómarinn í réttarhöldunum yfir Michael Jackson hefur leyft
saksóknara að kalla fyrrverandi eiginkonu poppstjörnunnar,
Debbie Rowe, í vitnastúkuna í þessari viku. Úrskurðurinn er sá
fyrsti sem fellur saksóknara í hag í nokkurn tíma.
Aðstoðarsaksóknarinn Ron
Zonen segir að ætlunin sé að sýna
fram á að Jackson og starfsfólk hans
hafi beitt öllum ráðum til að bæta
ímynd hans. Debbie kom fram á
myndbandsupptöku eftir útkomu
heimildarmyndar þar sem gefið var í
skyn að Jackson ætti óeðlilegt sam-
band við böm.
Forræðisdeila
Á upptökunni mærir Debbie
Jackson sem frábæran föður og
heilsteyptan mann. Saksóknarar
segja að upptakan sé eftir handriti,
líkt og myndband með fjölskyldu
Gavins Arvizo, sem Jackson er
ákærður fyrir að misnota. Þeir
halda því einnig fram að Debbie
hafi verið mútað með umgengis-
rétti við börn hennar og Jacksons í
staðinn. Rétti sem hún hafði áður
gefið frá sér. Rowe og Jackson eiga
nú í forræðisdeilu.
Þá vonast saksóknarar til að fá
Rowe til að viðurkenna að brúð-
kaup þeirra og barneignir hafi ein-
ungis verið almannatengslabragð
af hálfu starfsfólks Jacksons.
Vaselínvitni
Úrskurðurinn um vitnisburðinn
er sá fýrsti sem fellur saksóknurum í
hag í nokkurn tíma. Undanfarið hef-
ur dómarinn úrskurðað verjendum í
hag. Til dæmis mátti fyrrverandi ör-
yggisvörður Jacksons, Kassim Ab-
dool, ekki segja frá að hann hefði
sótt vaselíndollu fyrir söngvarann
þegar hann var með ungan dreng í
svefnherbergi sínu.
Abdool var hins vegar fenginn til
að renna stoðum undir framburð
annars fyrrverandi öryggisvarðar,
Ralphs Cachon, sem sagðist hafa séð
Jackson nakinn í sturtu með ungum
dreng. Verjendur Jacksons bentu
hins vegar á að Abdool hefði skrifað
undir skýrslu árið 1994 þar sem
hann staðfesti að hann hefði aldrei
séð neitt misjafnt á búgarði popp-
stjörnunnar.
Verjendur Jacksons
bentu á að Abdool
hefði skrifað undir
skýrslu árið 1994 þar
sem hann staðfesti að
hafa aldrei séð neitt
misjafnt á búgarði
poppstjörnunnar.
Rekinn
Thomas Mesereau, aðalverjandi
Jacksons, rak í gær lögmann úr liði
sínu. Sá heitir Brian Oxman. Hann
mtm hafa staðið sig einstaklega illa í
réttarhöldunum og til dæmis sofið
þegar mikilvægir vitnisburðir voru í
gangi. Heimildir herma að Meser-
eau hafi verið búinn að segja Oxman
að hans væri ekki þörf í gær, eftir
viku fjarveru. Oxman mætti eigi að
síður en Mesereau rak hann í al-
menningssætin.
Eftir réttarhöldin sáust þeir í há-
vaðarifrildi úti á bílastæði. Þá segja
heimildir að Mesereau hafi líkað ein-
staklega illa að komast að því að
Kassim Abdool Mátti ekki bera vitni um aö
hafa færtJackson vaselin þegar hann var
með ungum dreng inni I svefnherbergi sínu.
Oxman hafði í eldra máli gegn
Jackson lagt fram gögn sem gengu
þvert gegn því sem Mesereau hefur
haldið fram í núverandi réttarhöld-
um.
Týnd systkini í Georgíu fundust látin
Bandarískum matvælaiðnaöi nóg boðiö
Hulin slími í skólptjörn
Offita er ekkert vandamál
Leitin að systkinunum Jonah, 3
ára, og Nicole, 2 ára, hlaut sorglegan
endi á mánudaginn þegar þau fund-
ust látin nálægt heimili sínu. Þeirra
hafði verið saknað frá því á laugar-
dagskvöldið þegar þau hurfu af
heimili sínu.
Lík barnanna fannst í lítilli frá-
rennslistjörn úr skólplagnakerfi ná-
lægt heimili þeirra í bænum
Warrenton í Georgíu fylki á mánu-
deginum. Lögregla hafði þá þegar
leitað á þeim stað. Hins vegar var
tjörnin þakin slími sem talið er að
hafi getað hulið líkama þeirra í fyrri
leitinni.
Að sögn talsmanns rannsóknar-
lögreglu Georgíu, Johns Bankhead,
er ekki hægt að segja til um hvort um
slys eða glæp var að ræða. Þó er búið
að útiloka að bamaníðingur hafi
verið að verki. Strax var athugað
hvort slíkur væri í nágrenninu enda
Sorgaratburður Ibúar heimabæjar Nicole
og Jonah eru flemtri slegnir vegna harm-
leiksins.
nokkur tilvik um að börnum hefði
verið rænt og þau myrt undanfarið í
Georgíu og nálægum fylkjum. Krufn-
ing á líkum barnanna fór fram í gær.
Auglýsingaherferð
sem gerir lítið úr
offituvanda Banda-
ríkjamanna hefur
verið sett af stað í
öllum stærstu dag-
blöðum Bandaríkj-
anna. Samtökin Mið-
stöð fyrir frelsi neyt-
enda er pólitískur
þrýstihópur í höfuð-
borginni Washington
sem studdur er af
bandaríska matvæla-
og veitingaiðnaðin-
um.
Auglýsingaherferðin byggir á
nýrri rannsókn stofnunar banda-
rískra heilbrigðisyfirvalda sem segir
að offituvandinn sé ekki eins slæmur
og haldið hafi verið fram. Undanfar-
in ár hefur offita verið sett í sama
flokk og reykingar og hjartaáföll hvað
varðar dauðsföll.
Þetta hefur vakið upp
harða gagnrýni á
skyndibitastaði og
veitingastaði í ódýr-
ari kantinum. Þeir
eru ásakaðir um að
dæla eitri í Banda-
ríkjamenn.
Talsmaður sam-
takanna sem standa
á bak við auglýsing-
arnar vill ekki gefa
upp nákvæmlega
hverjir styrkja þau og
sömu sögu er að
segja um fyrirtæki sem spurð hafa
verið. Svar talsmanna þeirra er yfir-
leitt á þá leið að þeir viti það ekki.
Bandarísk heilbrigðisyfirvöld hafa
ekki samþykkt nýju rannsóknina og
segjast standa við fyrri yfirlýsingar
um skaðsemi offitunnar.
Vandamál eða ekki Flestir vilja
meina að offita sé vandamál I
Bandarikjunum nema þeir sem sjá
fyrir matnum.