Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2005, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2005, Qupperneq 21
DV Útivist & ferðalög MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2005 21 r Vinnuhelgi í Básum Ferðafélagið Útivist stend- ur fyrirsinni árlegu vinnu- helgi i Básum þar sem allt er gert klárt fyrir sumarið, eins og stendur í fréttatil- kynningu félagsins. Það er ýmislegt sem þarfað gera, svo sem þrífa, smíða, fúa- verja, huga að gróðri og göngustígum aukýmissa smáhluta sem þarfað dytta að. Vinnuferðir íBása hafa mælst mjög vel fyrir hjá þeim sem hafa tekið þátt í henni og stendur nú skráning yfir á skrif- stofu Útivistar. Hægt er að senda tölvu- póst á netfangið uti- vist@utivist.is eða hringja í síma 561 1000. Vinnuhelgin er fyrirhuguð þarnæstu helgi, frá 6.til 8. maí. Rómantík og menning í Nice Uppáhaldsborg Valgeirs Magnússonar, semeftil vill erbetur þekktur sem Valli Sport, er Nice i Frakklandi.„Mér finnst frábært að labba um þessa borg, götulífið er stórskemmtilegt og þar má finna mikið af góðum veitingastöðum. Best er að finna litla staði þar sem kokkarnir eru brjálaðir en mat- urinn dýrlegur. Það er lika mikið af fallegum stöðum i kringum borgina sem og uppi i fjöllunum i næsta nágrenni. Þetta er lika mjög rómantisk borg sem ég mun oft fara til aftur. Það er sérstaklega skemmtilegt að vera á litlu hóteli þvi þar finnur þú menninguna. Það er mlkill sjarmi á slikum gististöðum, þó svo að aðstaðan sé ekki i sama gæðaflokki og á flottustu hótelunum." læknisleyfi. Ég reyni að koma yfir- leitt á miðvikudagskvöldum og kem stundum í fimmtudagsgöngumar." Hann lætur þó ekki þar staðar numið heldur leggur oft land undir fót og eyðir sumarfríum sínum úti á landi. „Vissulega er gaman að ferð- ast erlendis og hef ég gert talsvert af því en númer eitt er fríið hér heima og gönguferðirnar. Og þá eru það Homstrandir sem em toppurinn. Það sem heillar mig mest er þessi sérstaka náttúrufegurð og þá er gróðurfarið alveg sérstakt og litríkt. Þá er það einstök upplifun að vera í þessari miklu einangrun en þarna em engir vegir eða símahnur og að- eins hægt að ferðast um á bátum. Það er reyndar verið að koma upp fjarskiptasambandi þarna en það er öryggisins vegna og því ekkert nema gott um það að segja." Gunnar hefur lagt stund á göngu- ferðir um áratugabil og gengið um allt land. „Ég hef líka mikið verið á hálendinu og er að fara þangað aftur í sumar en þá ætía ég á Kárahnjúka- slóðir norðan Vatnajökuls. Þá hef ég gengið líklega um 23 sinnum á Heklu þó svo að ég hafi ekkert farið þangað síðustu ár. En ég er mjög hrifinn af dagferðunum og hef til Útivistarræktin 10 ára afmælinu er fagnað iárená siðasta ári voru það um 4 þúsund manns sem gengu með Útivistarræktinni. dæmis mikið verið í sunnudags- göngum Útívistar alla tíð. Þær hafa lengst undanfarin ár og orðið erfið- ari en þátttakan er einnig mikil." Góð byrjun Gunnar segir að fyrir þá sem vilji byrja að stunda gönguferðir um ís- lenska náttúm sé Útivistarræktin góður byrjunarpunktur. „Þar er hægt að kynnast vönu fólki og leita ráða hjá þeim. Með því að fara í þær göngur, sem em stuttar og auðveld- ar, er hægt að sjá hvort þetta sé eitt- hvað sem gætí hentað líkamlegri getu viðkomandi. Ég hef líka oft sagt að ef menn komast upp Esjuna á tveimur tímum og líður þokkalega vel em þeir færir í flestan sjó.“ Hann bætir því við að úrvahð af gönguferðum hafi aukist mikið und- anfarin ár og hafa til dæmis trúss- ferðir svokallaðar notið talsverðra vinsælda. Þar er helsta farangrinum komið á milli næturstaða og göngugarparnir em með tiltölulega litía byrði á sér á göngunni. „Sjálfum finnst mér það toppurinn að labba með aht á bakinu, það er fátt betra. En það er ekki fyrir alla og fyrir áhugasama ætíum við að setja upp sérstakar æfingaferðir sem henta mjög vel fyrir nýhða. Það kostar htið og em yfirleitt þriggja daga göngu- ferðir með aht á bakinu. Það má sjá meira um þetta á heimasíðunni okk- ar, utivist.is." Gunnar segir sunnudagsgöng- urnar vera næsta þrep fyrir ofan Útí- vistarræktina. „Oft em þetta rútu- feðir þar sem gjarnan er gengið upp á fjöll, um átta tíma í senn. Það em gönguferðir sem reyna talsvert á. Svo er ahtaf ein árleg ganga hjá okk- ur mjög vinsæl en það er Jóns- messunæturgangan yfir Fimm- vörðuháls. Þá koma um 3-400 manns og er yfirleitt mikh stemning ríkjandi. En þetta reynir á, að ganga Leiðarval er I höndum fararstjóra og verður það ákveðið eftir veðri og færð. Þaö sama gildir um heimferðina, annaðhvort verður fariö yfir jökul eða Kjöl. Nánari upplýsingar á utivist.is. 30. aprfl: Fjölskylduganga á Geitafell Ferðafélag Austur- Skaftafellssýslu stendur fyrir fjölskyldugöngu frá Geitafelli að Efstafellsgili I Nesjum. Nánari upplýsingar á horn.is/ferdafelag. 30. apríl: Söguganga f Kirkju- bólsteigi Ferðafélag Fjarðamanna gengur um fornar rústir Ásmundarstaða og skoðar gamla sveitasamkomusvæðið. Mæt- ing kl. 20 við Kirkjubólsá. 1. maf: Göngugleðin Göngugleði Ferðafélags- ins er sem fyrr á sunnu- dögum. Lagt afstaö frá Mörkinniókl. 10.30. Gengið I nágrenni Reykja- vlkur 12-4 tlma. Takið með ykkur nesti. Allir velkomnir. I.maf: Göngugarpar á Úlfarsfelli I dag munu Göngu- garpar hittast viö Vetnisstöðina við Vesturlandsveg kl. 10. Genginn verður hringur eftir brúnum Úlfarsfells. Frábært út- sýni I góðu veöri. Göngutlmi 3-4 tlmar. 2. maf: Útivistarræktin I dag er farið frá Topp- stöðunni við Elliðaár ogfarinn hringurí Elliðaárdalnum. Gengið er upp I gegn- um hólmann í ánni og vestan megin viö ána upp að Vatnsveitubrú, þar sem farið erausturyfir ána. Stansað er I nágrenni Árbæjarlaugar og haldið haldiö niöur með Elliðaánni að austan. Gönguferðinni lýkur á sama stað og hún hófst rúmri klukkustund fyrr. Hópurinn hittist kl 18 og eru allir velkomnir. Gunnar H. Hjálmarsson Upphafsmaður Útivistarræktinnar og missir enn þann dag I dag ekki úrviku. 25 km í 1000 metra hækkun í einum rykk." Að síðustu bendir Gunnar á að börn eru einnig ávaht velkomin í göngur Útivistarræktarinnar og er það góð leið fyrir fjölskylduna að njóta umhverfisins saman. eirikurst@dv.is Árbók Ferða- félags íslands kynntíkvSld Útgáfu Árbókar 2005, sem Feröa- félag fslands gefur út, veröur fagnað I húsakynnum félagsins að Mörk- inni 6 í kvöld. Hjörleifur Guttorms- son, náttúrufræðingurí Nes- kaupstað og höfundur bókarinnar, mun fara yfir svæðið sem bókin fjallar um, Austfirði frá Reyðarfírði til Seyðisfjaröar. Þarámeðal veröa sýnd nokkur kort afsvæðinu. Allir eru velkomnir og verður skemmtileg dagskrá i boði, kaffí og léttar veit- ingar. Hefst fögnuöurinn kl 20.1 bókinni eru 350 litljósmyndir sem Hjörleifur hefur tekið allar en á þeim kemur fram hiö undurfagra lands- lag svæöisins. Þá er einnig mynda- syrpa frá hverjum þéttbýlisstaö á svæöinu, Reyðarfírði, Eskifiröi, Nes- kaupstaö og Seyðisfirði. 20 gamlar Ijósmyndir af mannvirkjum og merkismönnum fyrri tíðarprýða einnig síður bókarinnar. <11 , Sérkjör á dag erlendis* Bgir þú von á vinum eða öðfum gestum að utan, „ .. . „ _An. skaltu benda þeim á að hafa samband við Avis fciretianu 2.700 Kr. m.v.BM<k á Íslandí og kynna sér þau tilboð sem í boði eru Danmörk 3.100 kr. m, Afw* á bílaleígubílum. AVIS-specíal eða AVIS-sérverð er allt sem nefna þarf við sölumann okkar og þú Florida 2.300 kr. m.v. Xftokk eða gestír þínir fáið okkar hagstæðustu kjör. Frakkland 2.500 kr. mvAHokk (slandkr. 3.500,-m.v.Aiioi<k.iágm.7daoaiei9i. (talía 2.300 kr.mv BMdt (rf™«t1/03-14A»á26«8-3t/12,200S) Kanarý 1.800 kr,«A«* Spánn 2.100 kr.mv.Afiokk Bnnig tilboð á staBfri bílum. Innifalið í verði erlendís: Ótakmarkaður akstur, skattur, kaskótrygging, þjófatryggíng og afgreiðslugjatd á flugvelli. Ekkert bókunargjald. 7% afsláttur veittur af öðrum flokkum í öllum löndum. *M.v. 7 daga lágmarifsleigu. Verft háft breytingum á gengi. Gildir til 31/03 2006. V/SA www.avls.ls AV/S Víð gmum betur AVIS Knarrarvogi 2 • 104 Reykjavík • Sími: 591 4000 Fax: 5914040 • Netfang: avis@avís.ís

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.