Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2005, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2005, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ2005 Sport DV Eggert þjálfar Val Eggert Maríuson, fyrrverandi þjálfari ÍR, iiefur verið ráðinn þjálfari Vals í meistaraflokki karla í körfuknattleik til næstu tveggja ára. Valur hefur næsta haust sitt þriðja tímabil í röð í næstefstu deild og stendur til að byggja upp sterkt lið að Hlíðarenda sem muni sóma sér vel í slag þeirra bestu. Eggert hefur núverið fenginn til aðleiða . - ?’ ■ ' þaðátak. * . BirgirGuð- * \|*|'| finnsson hefur stýrt Valsliöinu V undanfarin tvö ár en Eggert hef- urnáðgóðum árangri með ÍR og stýrði liðinu í undanúrslit í úrslitakeppni íslandsmóts- ins í vor. Menn leiksins hjá áhorfendum Aiiorfendur völdu menn leiksins í Landsbankadeildinni fram á sunnudag með því að hringja og senda skilaboð til Og Vodafone. í leik FH og Grinda- víkur var Tryggvi Guðmundsson maður leiksins og kom það fáum á óvart. Frammistaða Kristjáns Finnbogasonar með KR gegn Fram féli vel (kramið. Annar markvörður, Fjalar Þorgeirsson hjá Þrótti, þótti bestur gegn Fylki og Pétur Runólfsson hjá IBV var maður fólksins í leik ÍBV og Keflavík. Slæmf gras á Siglufirði Leikmenn KS eiga enn eftir að leika fyrir heimamenn á Siglufirði í 1. defldinni í knattspymu. Liðið hefur leikið tvo leiki, gegn Þór og Víkingi Ólafsvfk og hafa báðir leikimir tapast en þeir voru báðir á útivelli. I þriðju umferöinni er áætlað að KS taki á móti FIK næst- komandi laugardag en fram kem- ur á heimasíðu liðsins að heima- völlurinn verði tæpast tiibúinn í tæka tíð og því ailar líkur á að leikurinn verði á heimavelli HK. Völiurinn mun einfaidlega ekki vera leikhæfur og er ekki útlit fyrir hiýindi á næstu dögum norðan heiða. Golfarar fá fersk föt Atvinnukylfingarnir Birgir Leif- ur Hafþórsson, Ólafur Már Sig- urðsson og Ólöf María Jónsdóttir liafa gert þriggja ára samning við 66‘Norður. Þau munu æfa og keppa í fatnaði frá fyrirtækinu og auk þess taka þátt í hönnun á nýrri línu fatnaðar fyrir golfara sem iiafin er framleíðsla á. Fyrstu flíkurnar úr þessari nýju línu hjá 66*Norður koma í verslanir í byrj- un júní en þær verða bæði seldar hér heima og erlendis. Birgir, Ólafur og Ólöf munu takaþáttí fjölda mótaá þessu ári en þau eruað reyna fyrir sér á at- vinnu- manna- mótumí Evrópu. Hinn íslenski rallíheimur missti mikið á dögunum þegar bræðurnir Rúnar og Baldur Jónssynir ákváðu að taka ekki þátt í mótum sumarsins Rúnar Jónsson er einn sigur- sælasti íþróttamaður sem ís- land hefur alið af sér. Fyrir um þremur árum greindist hann með æxli í höfði og þurfti að ljúka keppni en hann sigraðist á erfiðleikunum og hélt áfram að vinna íslandsmeistaratitla. Nú hefur hann tekið þá ákvörðun að vera ekki með í sumar eftir að hafa ráðfært sig við lækna en segir þá ákvörð- un hafa verið auðvelda því nauðsynlegt hungur í titla sé ekki lengur til staðar - hann hafi unnið allt sem hægt sé að vinna. „Málið er svo sem ekki flókið. Ég hef ákveðið að vera ekki með í sum- ar af persónulegum ástæðum. Ég er ekki alveg í nógu góðu standi til að keyra rallí núna og þess vegna höf- um við ákveðið að hvfla þetta alveg núna bræðurnir, enda orðnir mjög saddir. Þetta hefur verið ein sam- felld sigurganga hjá okkur og okkur þótti bara kominn tími til að hægja ferðina," sagði Rúnar við DV Sport en þeir bræður keppa með liði JR Ragnarsson sem hefttr verið áskrif- andi af íslandsmeistaratitlinum allar götur síðan 1975. Frábær endurkoma „Það lá strax fyrir í haust hjá okk- ur að fara jafhvel ekkert af stað í ár og við vorum í rauninni lítið farnir að horfa til sumarsins. Svo kemur það upp að ég er ekki alveg í nógu góðu standi sjálfur sem ég hef í raun vitað í nokkra mánuði. Þegar styttist í fyrstu keppni þá lá ákvörðunin Nánir feðgar Jón Ragnarsson kyssir hér Rúnar son sinn á góðri stundu. endanlega á borðinu. Ég veiktist árið 2002 og hætti það árið til að að fara í aðgerð í Svíþjóð. Síðan kom ég enn aftur 2003 og vann titilinn bæði þá og í fyrra þegar við keyrðum hraðasta rallí sem hef- ur farið fram á íslandi. Eftir þetta var maður orðinn ansi saddur eiginlega eftir að koma svona til baka og sýna að maður gæti þetta enn þá,“ sagði Rúnar. Bræðurnir bestir Engir ökumenn á íslandi hafa komist með tærnar þar sem þeir Rúnar og Baldur hafa haft hælana undanfarin ár og því er kannski ekki óeðlilegt þó hugur þeirra bræðra hafi stefnt annað. „Við erum búnir að vera ansi lengi í þessu bræðurnir og höfum unnið allt sem hægt er að vinna. Við höfum verið í ákveðnum sér- flokki hvor í sinni stöðu á þessum mót- um eins og úrslitin bera með sér. Við erum þess vegna alveg sáttir við stöðuna eins og hún er í dag,“ sagði Rúnar sem hefur unnið þrjá íslandsmeist- aratitla sem aðstoðarökumaður og tíu sem aðalökumaður. Blaðamanni lék forvitni á að vita hvort hann væri endanlega búinn að leggja stýrið á hilluna. Stýrið ekki á hilluna „Ég er búinn að leggja það á hill- una þetta árið, það er alveg útséð með það,“ sagði Rúnar. „Eg hins vegar ætla ekki að fullyrða neitt meira um það. Maður tekur bara eitt ár í einu og ég vil ekki lýsa meiru yfir en að ég verð ekki með í ár. Svo verður maður bara að sjá til í framtíðinni hvert hungrið leiðir mann eða hvort það verður þá til staðar." Blaðamaður spurði Rúnar að lok- um hvað væri eftirminnilegast á ferl- inum fram að þessu. „Það er erfitt að segja. Ætli það sé ekki eftirminnilegast þegar ég vann fyrsta íslandsmeistaratitilinn minn. Þá vann ég nokkuð óvæntan sigur á ekkert mjög aflmiklum bfl man ég. Annars er síðasti titiilinn alltaf sá sætasti í minningunni hverju sinni," sagði rallkappinn magnaði Rúnar Jónsson. baidur@dv.is A hraðferð Olfsbíllinn verður ekki á ferðinnií sumar en þessi bfll hefur unnið ansi mörg mót sfðustu árin. irsælir Bræðurnir Baldur og jr Jónssynir hafa fagnað an mörgum sigrum. Þeir eru tir saddir enda hafa þeir ð allt sem hægt erað vinna. Leikmenn Chelsea fögnuðu um helgina Eiðurviðhlið Romans 250 þúsund stuðningsmenn Chelsea flykktust út á götur Lund- únaborgar um helgina til þess að hylla Englandsmeistara Chelsea sem keyrðu um í vel skreyttum, tveggja hæða strætó. í fremstu röð í strætónum var Eiður Smári lengst til vinstri við hlið eiganda félagsins, Romans Abram- ovich, og sonar hans. Einnig voru í fremstu röð þeir Joe Cole og John Terry og segir þessi uppröðun ansi margt um það hver staða Eiðs Smára er innan Chelsea. Fyrir aftan í næstu röð voru síðan Fratflc Lampard, Arjen Robben og fleiri snillingar. Jose Mourinho, stjóri félagsins, kaus að láta fara lítið fyrir sér og sat aftast í strætónum með varamönnum liðsins sem lítið fengu að leika í vetur. Allir leikmenn liðsins nema Ricardo Carvalho, Paulo Ferreira og Damien Diff tóku þátt í fagnaðarlátunum. Gleði, gleði, gleði... Leikmenn Chelsea fögnuðu vel og lengi með stuðningsmönnum sínum um helgina þegar þeir keyrðu um götur Lundúna í opnum strætó. A þessari mynd má meðal annars sjá Eið Smára Guðjohnsen, Roman Abramovich, Arjen Robben, John Terry og Frank Lampard. Reuters

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.