Freyr - 01.02.1951, Page 7
FREYR
31
sem búið er að færa þunga á inn í eitt
ærbókarhefti.
Meðalþungi 188 einlembinga .... 44 kg
Meðalþungi 156 tvílembinga .... 38 —
Á þessu sézt, að tvílemban hefir gefið
rúm 30 kg af kjöti en einlemban rúm 17.
Tel ég því fulla ástæðu til að stefna að því
að fá ærnar sem flestar tvílembdar þó að
því fylgi eitthvað aukinn fóðurkostnaður
og snúningar.
Verðmunurinn á I. og II. gæðaflokki
dilkakjöts er mjög lítill nú orðið (allt of
lítill) enda þurfa tvílembingar ekki að
lenda margir í II. flokk, ef vaxtarlag fjár-
ins er svipað því, sem alíra hluta vegna
er bezt að hafa það.
Eggert Ólafsson.
III.
Aðeins þegár um fóðurskort er að ræða
eða harðæri, sækjast bændur ekki eftir
því að hafa ærnar tvílembdar. En annars
ber að stefna að frjósemi ánna. Það mega
vera léleg lömb tvö, sem ekki leggja sig
betur en einlembingur, þó að góður sé.
Tvílembur endast nokkuð verr ef þeim
er ekki sýndur nægilegur sómi og yfirleitt
þarf meiri vinnu við tvílembur og að
nokkru aukinn fóðurkostnað.
Ég tek hér dæmi úr fjárbúi mínu frá
síðasta hausti.
Ég vel einlembing, 44 kg og tvo tvílemb-
inga 40 kg hvorn, eða 80 kg samtals, á
fæti. Þyngri einlembing mætti að vísu
velja og léttari tvílembinga, en þetta dæmi
er rétt fyrir það.
Ég reikna með líflambasölu á fjárskipta-
svæðið, en þar voru kr. 4,00 greiddar. Til
samanburðar tek ég sömu lömb til frá-
lags, með því verði sem greitt var síðast-
liðið haust að Kaldrananesi. Reikna ég hér
með 40% kjöti, sem er mjög lágt reiknað,
miðað við lömb hér um slóðir.
Þó að minni mismunur kynni að vera á
milli einlembinga og tvílembinga, en hér
greinir, verður munurinn alltaf það mik-
ill, að stefna ber að því að fá sem flestar
ær tvílembdar.
Dæmin eru þá þannig:
Til frálags:
Einlenibingar, 44 kg. á fœti:
Kjöt (40%) = 17.6 kg á 9.00 ........... 158.40
Gæra 4.5 kg á 5.00 ............... 22.50
Mör 2.5 kg á 7.50 ..................... 18.75
Slátur ................................ 15.00
Tvílembingar, 80 kg. á fæti:
Kjöt (40%) = 32 kg á 9.00 ..... 288.00
Gærur 8 kg á 5.00 .................. 40.00
Mör 4.8 kg á 7.50 .................. 36.00
Slátur, 2 stk., á 15.00 ............ 30.00
Samtals kr. 214.65 Samtals kr. 394.00
Mismunur, tvíl. í vil, kr. 179.35
Líflömb seld á fjárskiptasvæðið:
Lifandi þungi 44 kg á 4.00 ....... 176.00 2 lömb, samtals 80 kg á 4.00 .... 320.00
Mismunur kr. 144.00
Dæmi þetta sýnir, að langtum hagkvæm-
ara er að hafa ærnar tvílembdar, og það
sýnir ennfremur hversu mikill munur það
er fyrir fjárbændur að geta hagnýtt sér
góðan haustmarkað í stað þess að vera
þvingaðir og sviptir fjárforræði vegna
f j árskiptanna.
Bændur, sem lentu í miklum fjárútlát-
um — auk gífurlegrar vinnu — vegna
hinna einstöku harðinda á árinu 1949,
munar eflaust um minni upphæðir en kr.
38.65 — kr. 74.00, sem þeir fá minni greiðslu
fyrir líflömbin eftir hverja á.
Ingimundur Ingimundarson.