Freyr - 01.02.1951, Blaðsíða 21
FREYR
45
Bréfaskóti S./.S.
Landbúnaðarvélar.
Bréfaskóli S. í. S. hefir nú nýlega hafið
kennslu í námsgreininni „Landbúnaðar-
vélar og verkfæri". Er námskeið þetta að
nokkru sniðið eftir erlendum fyrirmynd-
um, einkum sænskum.
Hin gífurlega aukning véla og verkfæra
við landbúnaðarstörf, sem hér hefir orðið
á síðari árum, kallar að sjálfsögðu á stór-
aukna tækniþekkingu bænda og annarra,
er við störf þessi fást. Vélaþekkingin á því
að gefa margfaldan ávöxt. Hún hefir í för
með sér aukin afköst vélp.nna og minna
viðhald þeirra. Það er því stórkostlegt fjár-
hagslegt atriði fyrir hvern bónda að þeir,
sem á búi hans vinna með vélum, hafi til
að bera nokkra þekkingu í þessu efni.
Bréfaskólanámsgreinin um landbúnaðar-
vélar og verkfæri fjallar bæði um almenn
undirstöðuatriði þessara véla og um sér-
stakar vélar og verkfæri, svo sem sláttu-
vélar, plógi, herfi o. s. frv.
Kennari í þessari grein er Hjalti Páls-
son, framkv.stj.
Mótorfræði.
Mótorfræði er einnig kennd i bréfaskól-
anum. Kennslubréfin eru samin af Þor-
steini Loftssyni, vélfræðing. Kennd eru
undirstöðu-atriði mótorsins, um tvígengis-
og fjórgengisvélar, um lágþrýsti- og mið-
þrýstivélar, um rafkveikjuvélar o. s. frv.
Aðsókn að mótorfræði hefir verið mjög
mikil. Á rúml. einu ári hafa stundað nám
í bréfaskólanum í þessari grein 130 nem-
endur. Meðal þessara nemenda eru marg-
ir bændur og aðrir, er í sveit vinna og
reyndar fólk úr öllum stéttum, úr bæjum
og byggðum. En á þessu er hér vakin sér-
stök athygli vegna þess að fjöldi bænda á,
og rekur ýmiskonar mótorvélar, t. d. í bif-
reiðum, dráttarvélum, ljósavélar o. fl. o. fl.
Það eru því margir bændur, sem og aðrar
stéttir manna, sem hafa hagsmuna að
gæta í sambandi við aukna þekkingu á afl-
vélum og ættu þeir að athuga, að í bréfa-
skólanum er kostur á tilsögn hinna fær-
ustu kennara.
Búreikníngar.
Þá er enn ein námsgrein í Bréfaskóla
S. í. S., sem sérstaklega snertir bændur og
búskap. Þetta eru búreikningar.
Kennslubréfin eru samin af Guðmundi
Jónssyni, skólastjóra.
Kennari er Eyvindur Jónsson, cand.
agro.
Færsla búreikninga á að vera áhugamál
sem flestra bænda. Búreikningarnir gera
bóndanum kleyft að fylgjast með rekstri
sínum. Hverjum atvinnurekanda er það
nauðsynlegt til þess að geta hagað rekstri
og framkvæmdum á hinn fjárhagslega
hagstæðasta hátt. Margt fleira mætti upp
telja um hagfræðilega og uppeldislega
þýðingu búreikninga, ef rúm væri til nú i
þessu blaði.
Orðsendíng til bænda.
Vegna rannsókna á listerellosis (súrheyseitrun, Hvann-
ej'rarveiki), eru það vinsamleg tilmæli vor, að bændur
sendi okkur líffæri (haus, Iungu, hjarta, lifur, milta og
nýru) úr kindum ,sem drepast með þeim hætti, að iík-
ur séu tii að um áðurnefndan sjúkdóm sé að ræða. Sjúk-
dómur þessi lýsir sér oftast á eftirfarandi hátt: Kindin
verður dauf, fær hita og missir lyst, gangurinn verður
óstyrkur og reikandi, stundum gengur kindin út á hlið
eða í hringi, oft „hallar hún á“ og annað eyrað eða bæði
hanga máttlaus. Aðrar lamanir koma brátt í ljós, svo að
kindin liggur að lokum ósjálfbjarga og drepst þá vana-
iega á fáum dögum. Samfara þessu sjást einatt melting-
artruflanir og stundum gula. Þar sem oft virðist bera á
sjúkdómi þessum í sambandi við gjöf á skemmdu vot-
heyi, er einnig nauðsynlegt að fá send sýnishorn af hinu
skemmda heyi.
Hraða skal sendingu líffæra, svo sem unnt er, séu þau
send með skipi, skal geyma þau í frystiklefa. Vothev
skal sent í þéttum umbúðum.
Tilraunastöð Háskólans í meinafrceði, Keldum.