Freyr

Árgangur

Freyr - 01.02.1951, Blaðsíða 28

Freyr - 01.02.1951, Blaðsíða 28
52 FRE YR hinn 6. fór að snjóa og hinn 8. að draga saman í skafla í lágsveitum, en í hásveit- um gerði mikinn snjó, svo að haglítið varð fyrir sauðfé á sumum stöðum. Hrakveður þetta hélzt til veturnótta. En þá gekk til suðaustlægrar áttar og þíðu, er hélzt til mánaðarlokanna. Kom þá einn og einn dagur með þurrablæstri, en helliskúrir á milli, og föstudaginn 27.', eða viku af vetri, var eiginlega fyrsti verulegi þurrkdagurinn. Þessa síðustu daga mánaðarins var miklu súldrað inn af heyjum; voru þau að von- um harla léleg, þar sem mikið af þeim hafði verið slegið í ágúst. Hér á Laxamýri lukum við hirðingu heyja hinn 31. okt. Nóvember. Fyrstu dagana héldust hæg- viðri og litlar úrkomur, en fremur kalt. Hinn 3. var 6 stiga frost kl. 8 f. h. og hinn 7. var frost allan daginn. Hinn 9. gekk til norðaustanáttar með snjókomu, sem hélzt til mánaðarloka. Hinn 12. varð að hér á hús. Ekki voru þó meiri hríðar en það, að flesta daga mátti beita fé. Flesta daga þessa tímabils var 7—8 stiga frost. Desember. Sama veðurlag hélzt til hins 17., en þá stillti til og voru hæg og úr- komulaus veður þar til á gamlársdag, en þá gekk aftur til norðaustanáttar með hríð. Frost komst í þessum mánuði upp í 18 stig hér á Laxamýri. Síðasta nóvember og fyrstu daga desember gerði bleytuhríð og varð þá sumsstaðar haglaust og alls staðar þröngt á haga og varð lítið beitt fé í þessum mánuði hér um slóðir. Veðurlýsing þessi er ófögur, enda mun þetta vera langversta ár það sem af er öld þessari, til búsafkomu, hér um norðaust- urhluta landsins. Hér í sýslu man fólk næst versta sumar 1893. Þá gekk í norðan rign- ingar upp úr miðjum júlímánuði og kom ekki þurrkur fyrr en 15. september, en þá brá til langvarandi sunnan- og suðvestan- áttar með hitum og hlákum og varð hey- skapur furðanlega góður. Hér eru hvergi hey með verkun nema hjá • þeim, sem höfðu súgþurrkun. Jafnvel gekk þeim líka erfiðlega vegna hinna stórfelldu rigninga. Þetta sumar hefir fært bændum heim sanninn um það, að þeir hafa of lítið af súrheysgryfjum og súgþurrkunartæki þurfa að vera til á hverjum bæ. Hér um slóðir súldruðu menn inn ögn af heyjum alla mánuðina, en á norðaustur- horni landsins munu hafa verið til bæir, þar sem enginn þurr baggi náðist fyrr en um veturnætur. Veit ég ekki til að um hlið- stætt dæmi sé getið í annálum. Frá 9. júlí og til seint í ágúst voru hlý veður og spruttu því kartöflur furðu vel, en eru þó víða linar og vatnsmiklar. Dilkar reyndust í meðallagi þrátt fyrir vorharðindi og sól- arlaust sumar frá 9. júlí. Bændur hér kaupa fóðurbæti í stórum stíl, því að sumt af heyjum þeirra er eins og tréspænir til fóðurs. Fóðurbætirinn hefir hækkað frá haustinu 1949 um allt að 150%. Ber því margt til þess, að búsafkoma hér um slóðir verði léleg. Ásetningur lamba varð hér um slóðir sama og enginn og fjöldi bænda fækkuðu nautgripum að mun. Sundurlausir skamm- degisþankar Til er á Vestfjarðakjálkanum, þá votheysgryfjur bænda rúma ekki allt það heymagn, sem slík verkun er ætluð, að heyinu er hlaðið í slakka og fergt síðan. Þykir það vel gefast. Þar finnast dæmi þess að votheys- gryfjur, sem grafnar eru í þurra og þétta jörð, séu að- eins múraðar innan. Líta þær vel út, þó að komnar séu á annan tug ára, og reynast með ágætum. Vothey er misjafnt að gæðum. Sennilega hafa fáar efnagreiningar á því verið gerðar. Set ég hér eina frá Broddanesi í Strandasýslu. Sýrustig PH 4,7 Hráprótein Hráfita Aska Vatn Tréni Önnur lífræn efni Hreinprótein Meltanl. þess 4,12% 2,30% 2,08% 78,1% 6,12% 7,28% 1,84% 53,2%

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.