Freyr

Árgangur

Freyr - 01.02.1951, Blaðsíða 8

Freyr - 01.02.1951, Blaðsíða 8
32 FRE YR IV. í flestum tilfellum er heppilegra að ær séu tvílembdar en einlembdar, því að tví- lemburnar skila meiri arði víðast hvar, sér- staklega þó í þeim sveitum, sem sumar- hagar eru góðir og meðferð einnig í lagi. Aftur á móti, í rýrum sveitum, og þar sem meðferð er ekki svo góð sem skyldi, er enginn hagur í því að ærnar séu tvílembd- ar. Mun ég nú leitast við að skýra þetta með dæmum. Geng ég út frá því verði, sem Sláturfélag Suðurlands greiddi bændum á síðastliðnu hausti, en hefi áætlað gæru- verð á 5 krónur kg og flutningskostnað á slátrunarstað á 5 krónur á lamb, en það dreg ég frá ásamt sjóðatillagi 1.5% af verði sláturfjárins. Kjöt af I. og II. flokki reikna ég á 9.35, kjöt af III. flokki á 7.30, slátur kr. 12.00 úr vænum lömbum, en kr. 7.50 úr hinum rýrari og mörverð kr. 7.50 kílógram. Á þessum forsendum byggt verður yfir- litið þannig: Gott fé: Eitt lamb Tvö lömb á á á á kg kr. kg kr. Kjöt 17 158.95 28 261.80 Mör 1.5 11.25 2.0 15.00 Gæra 3.5 17.50 6.0 30.00 Slátur 12.00 24.00 Samtals kr. 199.70 330.80 Frá dregst sjóð- tillag og flutn. 8.00 15.00 Nettó kr. 191.70 315.80 Rýrt fé: Kjöt 13 121.55 18 131.40 Mör 0.8 6.00 1.0 7.50 Gæra 2.8 14.00 4.0 20.00 Slátur 12.00 15.00 Samtals kr. 153.55 173.90 Frá dregst sjóð- tillag og flutn. 7.30 12.60 Þessi dæmi eiga að skýra sig sjálf. Með- alær, á allgóðu landi, skilar einu lambi með 17 kg falli og bóndinn fær fyrir það kr. 191.70 en hefði sama ær gengið með tveim lömbum, þá fengi bóndinn 124.10 umfram, og er það góður hagnaður. Svo er það rýra féð, sem gengur á slæmu landi. Þar getur ærin komið fram einu lambi, sem ætti alltaf að komast í I. eða II. flokk með 13 kg kjötþunga, sem gæfi bóndanum kr. 146.25 í aðra hönd, en ef að sama ær væri með tveim lömbum má al- veg ganga út frá að þau lentu ekki ofar en í III. flokki, með 18 kg kjötþunga til samans og gæfu aðeins kr. 15.05 framyfir það eina. Nú er vitað mál, að tvílemban er fóður- frekari en einlemban, eða að öðrum kosti verður hún rýrari og þar af leiðandi hætt- ara við vanhöldum. Þegar tillit er tekið til þess, er enginn hagur að því að hafa rýrt fé tvílembt, nema síður sé. Sigurður Loftsson. V. Það er áreiðanlega hagkvæmara að ærn- ar séu tvílembdar, þegar miðað er við af- urðamagn og verðmæti þess. Tvílembdar ær virðast mér skila þriðj- ungi meira afurðamagni eða um það bil, stundum meira — stundum tæplega það. Eitt tölulegt dæmi vil ég nefna. N. N. lagði inn, haustið 1944, 30 dilka undan 20 ám. Einlembingarnir 10 skiluðu til jafnaðar 18 kg kjötþunga en tvílembingarnir um 13 kg. Þarna skilaði hver ær um 8 kg. meira af kjöti og getur hver maður reiknað það til verðs. Eftir er svo að athuga slátur, gær- ur o. fl. og er það vel í lagt að reikna þann mismun er fram kemur milli ein- lembinga og tvílembinga fyrir mismun á fóðurkostnaði og fyrirhöfn við tvílemb- una fram yfir einlembuna. Jón P. Buch. Nettó kr. 146.25 161.30

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.