Freyr

Árgangur

Freyr - 01.02.1951, Síða 11

Freyr - 01.02.1951, Síða 11
FREYR 35 bæði utan húss og innan, bera þess vott, að vel geti kvenhendur hafa um slíkan gróður farið. Hér er jarðvegur djúpur og frjór á milli klappanna, þar sem fyrr voru mýrar, en grýtt var sumsstaðar í kring um klappir og þurfti bæði smáum steinum að ryðja og mörg björg niður að kveða áður en fært yrði um landið með hvers kyns vélar við jarðyrkju og framleiðslustörf. Með þremur hestum var landið brotið, með handafli voru skurðirnir grafnir og með fjölskyldu- höndum voru húsin reist að mestu; aðeins var fengin aðstoð fagmanna þar, sem nauðsyn krafði. „Bændurnir þurfa að geta gert þetta sem mest sjálfir“, segir Jón, þegar ég læt í ljósi undrun mína yfir því, hve miklu fjöl- skyldan hefir afkastað á aðeins rúmum áratug, og hve vel hvert verk er hér af hendi leyst. ★ Og hver er svo árangurinn að öðru leyti? Ýmsir hafa ræktað land og bætt býli sín á þessu tímabili. Hér var ekkert býli fyrr, svo að Skarð er nýbýli í þess orðs fyllsta skilningi — það hefir fjölskyldan reist og ræktað um undanfarin ár, og hér er land vel ræktað, því að mér telzt svo til, að upp- skeran muni að meðaltali um 50—60 hest- burðir heys af hverjum ha lands. Síðastliðið sumar hefir fóðuröflunin gengið erfiðlega hér, eins og víðar. Jón segir, að það hafi bara gengið seint, en árangurinn sé góður. Heyið var mest tekið blautt, því ekið í hlöðu og svo blásið í það látlaust, dag og nótt, vikum saman, enda virðist heyið í hlöðunni vera ágætt. Við fjósið, sem rúmar 15 fullvaxnar kýr, er stór hlaða, með votheyshlöðu í einu horni, en við ungviðafjósið, sem rúmar 10 gripi — geldar kýr og ungviði — er önnur hlaða. Allt fóður er undir þaki, nema hafrar og fóðurkál til haustbeitar. Bæði eru fjósin fullskipuð, svo að hér eru 25 gripir, og meira þó, því að lítill kálfur er að auki, afkvæmi metskepnu þeirrar, sem líklega er mest allra, er uppi hafa verið á íslandi. Og nóg fóður hefir aflast handa hóp þess- um, því að meðaleftirtekjan mun vera um 1000 hestburðir heys. Um allmörg undanfarin ár hefir eftir- tekjan eftir kýrnar verið á fjórða þúsund kg að meðaltali á fullmjólka kú, en hæst árið 1947, 3700 kg. Og í fjósi Jóns stendur nú kýrin Ljómalind, sem efalítið mun nyt- hæst þeirra kúa, sem staðið hafa í íslenzku fjósi. Árið 1949 sló hún öll önnur hérlend met, enda var nythæðin 6267 kg, en fitumagn- ið 4,26% eða 268,25 kg smjörfita. Er það afbragð, sem hafandi er til fyrirmyndar. En það er engin tilviljun, að Jón fær góð- ar nytjar úr Ljómalind og öðrum kúm sín- um, því að hirðing og fóðrun er þar til fyrirmyndar og „kýrnar borga það, sem vel er fyrir þær gert“, segir hann. Hér er ekki sauðland, en Jón hefir þó haft kindur. „Ég hafði einu sinni 70 ær, en svo kom niðurskurðurinn; ég var þá búinn að fækka nokkuð, því að sauðfjár- rækt og garðyrkja eiga ekki saman, en ég hefi nú gaman af kindunum“, tjáir Jón, og bætir við: „Ég á nú einn hest, en hann gerir lítið annað en nasla túnið, hreykja í görðunum og svo draga sleðann á vetrum, þegar ekki er bílfært í bæinn með mjólk- ina. Ég hafði 3 hesta áður, en nú er eigin- lega ekkert með hesta að gera, síðan ég fékk vélarnar, en ég hefi vélar til flestra starfa — fékk þær á undan flestum og hefi haft þeirra góð not, enda verið heppinn með tegundir. Dráttarvélin dregur sláttu- vélina, múgavélar, plóg, herfi, áburðar- dreifara, heyhleðsluvél, heyvagna og kart- öfluupptökuvél." Hér má bæta við, að búið hefir bíl til flutninga, mjaltavélar, súgþurrkunartæki og mykjuhleðslutæki, eða með öðrum orð- um vélar til allra þarfa og starfa. ★ Á meðan ég stanza er kartöfluupptöku- vélin sett í gang, því að nú skal uppskera garðaávöxtu. Ég spyr um uppskerumagnið og fæ þau svör, að það muni ekki mikið í ár, en mest var það árið 1939, eða 654 tunnur af kartöflum, en af rófum hefir

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.