Freyr

Årgang

Freyr - 01.02.1951, Side 16

Freyr - 01.02.1951, Side 16
40 FREYk þurft að spara til menntunar og frama barna sinna. Búið er líka svo stórt, móts við vinnuafl það, sem til þess er lagt, að það hlýtur að skila góðum arði. Þetta er fyrirtæki aðeins lítillar fjölskyldu, en ár- legar tekjur þess eru afurðir 14—17 kúa, er skilað hafa yfir 3000 lítra meðalnyt á hverju ári, 100—300 hænsna, auk mikilla garðávaxta. Ég hefi heyrt menn skýra gengi Jóns Guðmanns við búskapinn með því, hve mik- ill bóndi hann sé að upplagi. Ég vil engar brigður bera á þá skýringu. Hann gengur að búskapnum eins og frækinn íþróttamað- ur að íþrótt, býr sér til skemmtunar og lífs- fyllingar, jafnframt því sem hann býr til þess að sjá fyrir sér og sínum. Hann hefir á síðari árum einbeitt sér svo við búskap- inn, að hann hefir fremur lítinn þátt tek- ið í félagsmálum, þó að hann hafi áhuga á þeim og þar sé hann vel liðtækur, hvenær sem hann snýst þar að. Því má segja, að búskapurinn fullnægi að mikiu bæði starfs- þörf hans og félagsþörf, og má það vera vitnisburður um, að hann hæfi upplagi hans. En misskilningur er það, ef menn halda, að hann gangi að bústörfum eftir eðlisávísun einni saman. Hann á bezta bókasafn í búfræðum, sem ég hefi séð hjá íslenzkum bónda, honum er fátt ókunnugt, er öðrum hefir vel heppnazt í íslenzkum landbúnaði, og er fljótur að taka það upp, sem er við hæfi hans búskapar, og hann hefir kynnt sér furðu margt í erlendum búnaði af bóklestri og einkum það, er helzt má að gagni verða hér. — En að endingu verð ég að gera þá játn- ingu, að hinn ágseti búskapur Jóns Guð- manns hefir á einn veg valdið mér áhyggj u, er ekki vill við mig skilja: Er ekki arfur okkar íslendinga í búskap til byrði einnar saman? Á ekki Jón Guðmann afrek sín og gæfu í búskapnum mjög því að þakka, hve óbundinn hann er af íslenzkri búskapar- erfð, því, að hann varð ekki bóndi ungur á föðurleifð, heldur fullorðinn og marg- reyndur maður, óháður og víðsýnn, er tók búskapinn sem nýtt viðfangsefni á nýrri jörð? Mér hefir sýnzt að þessu leyti líkt komið með öðrum afreksbónda í nágrenni mínu, Halldóri Albertssyni á Neðri Dálks- stöðum á Svalbarðsströnd, er að vísu var yngri kallaður í böndastöðu, en þó með öllu arfslaus til slíks og snauður að öðru en miklum gáfum og alúð við störf, jörð, fé og fólk. Enn víðar hafa mér sýnzt þau dæmin, að þeir bændur hafi verið bezt vaxnir sínum tíma í stöðu sinni, er óháð- astir hafa verið búskapararfi þjóðarinnar. Þetta hefir orðið mér enn meira áhyggju- efni vegna þess, að því hefi ég trúað, að raunverulegur menningararfur væri hin bezta kjalfesta, er fengin yrði. Athugun mín á íslenzkum búskap og trú mín á menningararf hafa því í sameiningu leitt mig til þeirrar ályktunar, aö við ættum engan þann menningararf í búskap okk- ar, sem hald og traust er í, eins og nú er komið og verða vill, heldur verðum við þar flest að reisa frá nýjum grundvelli. Mundu þá ekki reynast bezt, sem frum- herjar, menn eins og Jón Guðmann, menn með fjölþætta reynslu að baki, víðsýnir og óháðir? Ef til vill er þá ekki annar búnað- arskóli betri en að hafa rekið verzlun um nokkur ár, því að vissulega er búnaður öðr- um þræði viðskipti, viðskipti við jörðina, sem tekin er til yrkingar, viðskipti við bú- féð, sem er undir handleiðslu okkar, og viðskipti við aðra menn heima og heiman, í sömu atvinnugrein og öðrum. Og vel get- ur það líka verið fullgilt búnaðarnám, að hafa lært iðngrein, svo að ég ekki tali um það, að hafa vaknað til áhuga á lands- málum, því að það er hið sama og að vakna til þátttöku í lífinu, hvar svo sem stríðið er þreytt. Mér hefir sýnzt, að íslenzkur nútíma- búskapur þarfnist fyrst og fremst mikils framtaks og mikilla gáfna bændanna. Þessi þörf hans stafar ekki aðeins af fá- tækt okkar af menningararfi í búskap, heldur líka af því, hve aðstaðan við bú- skap hér á landi er margvísleg, svo að taka þarf hann sérstökum, frumlegum tökum á hverri jörð. En þrátt fyrir þessa brýnu þörf landbúnaðarins á framtakssömu og snjöllu fólki, er það nærri undantekning, að

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.