Freyr

Árgangur

Freyr - 01.02.1951, Síða 20

Freyr - 01.02.1951, Síða 20
44 FRE YR Bór Eitt þeirra frumefna, sem telst til hinna nauðsynlegu jurtanæringarefna, er bór. Frumefni þetta þarf að vísu ekki í miklum mæli og virðist ekki vera nauðsynlegt nema fyrir vissar jurtir. Það telst til hinna svonefndu míkrónæringarefna, af því að þess er aðeins þörf í örsmáum skömmt- um. Eigi að síður getur það haft mikil á- hrif á uppskerumagnið og gæði uppsker- unnar, hvort það er notað eða ekki. Þess vegna hefir því verið gefinn mikill gaum- ur hin síðari ár, eða síðan menn uppgötv- uðu hina miklu þýðingu þess. Tilraunir hafa verið gerðar með bór um áraraðir erlendis. Má þar nefna t. d., að prófessor Ödelin, við Búnaðarháskólann á Ás, hefir lagt stund á þær um undanfarin 12 ár. í samræmi við það, sem annars- staðar hefir verið sannað með hliðstæðum tilraunum, hefir hann komizt að raun um, að það eru fyrst og fremst rófur og græn- meti, sem gera kröfu til þessa áburðarefn- is. Sem áburður á kornekrur virðist það litla eða enga þýðingu hafa og engu máli skipta á graslendi. Þar sem ræktað er verulegt magn af rófum, hefir það svo mikla þýðingu, að próf, Ödelin hefir gert að tillögu sinni, að bóri verði framvegis blandað í tilbúinn áburð. Verðsins vegna telur hann það engu máli ssipta, þó að það sé einnig borið á þar sem þess er ekki brýn þörf, en mikið hagræði að hafa bað annaðhvort í kalí eða fosfóráburðinum svo að því verði dreift með honum. Bórskortur er hvergi greinilegri en í róf- um. Kemur hann þar í ljós, sem hörgul- kvilli, er gerir sín vart á þann hátt, að rófurnar verða harðar og varla eða ekki mannamatur, því að þær verða ekki soðn- ar meyrar. Ef mikið kveður að bórskort- inum, verða þær dökkar innan eða svart- ar, og rotna þegar verst fer. Hér á landi, eins og annars staðar, hefir bórskortur verið staðfestur á ýmsum stöð- um og virðist ekkert benda til þess, að ís- lenzk jörð geymi þetta efni svo að án þess megi vera. Því verður að gera ráðstafanir til að fyrirbyggja bórskort og það verður gert með því að kaupa bórax. Það kostar smámuni þar eð af því þarf sáralítið magn. Eðlilegast er að afla þess í tæka tíð og er því bezt að panta það ásamt öðrum tilbún- um áburði. Þar eð bórþörfin er ákaflega lítil, aðeins 2 g á hvern fermeter lands, (20 kg á ha) er ekki hægt að dreifa því tómu, svo að í lagi sé, nema leysa það upp og úða síðan með upplausninni, eða blanda það öðrum áburði og dreifa með honum. Hægt er að vísu að blanda bóraxinu í sand, en hvort sem sú aðferð er viðhöfð eða úðun, með bórupplausn ,er það aukavinna, sem hægt er að losna við með því að blanda bórinu í kalí- eða fosfóráburðinn. Því má telja hyggilegt, fyrir þá bændur, sem ætla að rækta rófur eða grænmeti, eða hvorutveggja, á komandi sumri, að panta bórax samtímis og pöntun er gerð í tilbúinn áburð í vetur. Magnið sem þarf er 2 kg bórax á 1000 fermetra lands. Þessi forskrift er að vísu fengin frá öðr- um löndum, en jurtasjúkdómadeild At- vinnudeildar Háskólans hefir að undan- förnu notað þennan mælikvarða og telur hann viðeigandi . Áburðarsala ríkisins selur bórax eins og aðrar tegundir áburðar. G. Piltar og stúlkur, sem óska að vinna við sveitastörf í Danmörku á kom- andi sumri, geta komizt þangað á vegum fólksskiptafé- lagsskapar landbúnaðarins. — Piltar, sem óska að taka þátt í þessum skiptum, þurfa að tilkýnna sem fyrst, ef þeir vilja fara ! vor. Kaupið er kr. 2S0 danskar á mán- uði -þ fæði og húsnæði. Auk þess frítt vikunámskeið í búfræðum, leyfi til að heimsækja landbúnaðarsýningar og þátttaka í landbúnaðarstörfum ungmennafélaga. Hlut- aðeigandi piltar skulu ganga að algengum bústörfum. Um kjör kvenfólks er vitneskja ekki fengin enn. Þeir, sem vilja sinna þessu, snúi sér hið fyrsta til Bún- aðarfélags Íslands.

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.