Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.02.1951, Qupperneq 27

Freyr - 01.02.1951, Qupperneq 27
FREYR 51 með þýðviðri. Hélzt beit sæmileg yfir þennan mánuð. Febrúar varð miklu veðraverri. Hinn 7. gekk til norðaustanáttar með snjókomu, sem hélzt nær óslitið mánuðinn út. Frost voru marga daga frá 8—15°. Varð mjög þröngt um hagbeit og margir innistöðu- dagar fyrir kindur. Marz. Sömu veður héldust fram eftir mánuðinum. Frostið komst hér hæst í 18 stig. Varð lítið beitt þar til hinn 20., en þá lægði veðrin og héldust hægviðri með vægu frosti til mánaðarloka, en snjór mikill og haglítið. Apríl varð veðraverstur þessara mánaða. Hélzt stöðug norðaustanátt með mikilli fannkomu og byljum, einkum var páska- bylurinn vondur frá 9.—11. og svo bylur- inn hinn 26. og 27. í lok mánaðarins var fannfergi orðið mjög mikið. Reyndist erf- itt að beita þennan mánuð til verulegra muna, og mátti telja haglaust í lok mán- aðarins. Maí. Aðfaranótt hins 4. gerði frostlaust og hafði þá aldrei komið frostlaus nótt í 13 vikur. Gerði þá haga, þýður nokkra daga, svo að snjó tók, fyrir það mesta, af túnum, og hægt var að koma út áburði. Hinn 10. kólnaði aftur með norðaustlægri átt og hörðum næturfrostum, sem hélzt mánuðinn út. Þó var nær frostlaust næt- urnar fyrir þann 22. og 23. Mátti telja hér nær alveg gróðurlaust í lok mánaðarins og lambfé allt á húsi. En geldfé slepptum við hér hinn 11, eða 3 vikur af sumri, en síðustu lambám var ekki sleppt fyrri en 10. júní eða í byrjun 8. viku sumars. Vorið áð- ur var fyrstu lambánum sleppt í 9. viku sumars. Júní. Fyrstu 6 dagar mánaðarins voru hlýir og þaut þá upp gróður. En þá kóln- aði og hélzt eftir það mánuðinn út köld norðaustlæg átt með lítilli úrkomu nema dagana 19. og 20., en þá var mikil og köld norðan rigning. Nokkra daga í kring um Jónsmessu komst hitinn ekki upp fyrir 2 stig. Aðfaranótt 26. renndi í skafla norður á heiðum og frostkali var sumar nætur um þetta bil niður við sjó. Nægur kúahagi var ekki kominn í lok mánaðarins. Júlí. Fyrstu 8 daga mánaðarins var úr- komulaust og sólfar mikið, en sláttur þá almennt ekki byrjaður hér um slóðir sök- um grasleysis. Hinn 9. brá til norðaustlægr- ar áttar með úrkomum og rigndi hér alla daga mánaðarins það sem eftir var nema tvo, en ekki var töðuþurrkur. Almennast hófst hér sláttur síðustu þurrkdagana. Eftir það tók gras að spretta hér fyrir al- vöru. Þennan mánuð byrjuðu sumir bænd- ur að láta í súrgrafir og þeir sem höfðu súgþurrkun hirtu töluvert af töðu. Ágúst. Austan og norðaustan átt allan mánuðinn að telja mátti, aðeins einn og einn þurrkhæsudagur, en aldrei heill þurrk- dagur. í þessum mánuði dundu yfir meiri úrhellisrigningar en fólk mundi til á þess- um tíma. Mest var rigningin aðfaranótt hins 17. Eftir þá nótt féllu víða fram ný vatnsföll og fóru þá áveituengjar undir vatn og urðu ekki heyjaðar, því að vatnið þorrnaði aldrei af þeim. Marga daga þess mánaðar var ekkert hægt að vinna úti sökum stórrigninga. Fyrstu 4 daga mánaðarins var rigningar- lítið og var þá kúldrað inn töðum. Þessi mánuður var versti ágústmánuður til hey- skapar, sem ég man. September. Almennt vonaðist fólk eftir því að skipta mundi um tíð um höfuðdag og ganga til sunnanáttar eins og mjög oft hefir komið fyrir eftir stöðuga norðaustan átt um langan tíma. En sú von brást og var þessi mánuður hinn versti, sem fólk mundi. Stórfelldar og stöðugar úrkomur, en við og við þurrir dagpartar. Vatnselg- urinn fór vaxandi. Hér á Laxamýri fór tún- ið, sem lægst liggur, undir vatn og varð ekki slegin sú há, sem ætlað var. Víða komu nýjar uppsprettur og það jafnvel úr túnum sem lágu í halla og jörðin gekk í bylgjum undan fótum manns. Nú tók líka að kólna í veðri. Hinn 3. var 0 gráða við sólarupprás kl. 6 fyrir hádegi, en þann dag skein til kl. 2 e. h. En þannig var það allt sumarið, að aldrei var sólskin heilan dag, eftir 8. júlí. Síðustu daga mánaðarins voru stórfelldar krapahríðar. OJctóber byrjaði með stórfelldri norð- austan úrkomu. Tók nú mjög að kólna og

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.