Freyr

Volume

Freyr - 01.10.1951, Page 5

Freyr - 01.10.1951, Page 5
REYKJAVÍK, OKTÓBER 1951. félagstTðindi STÉTTARSAMBANDS B/íNDA Jhexnx ab gböZum Það var á sunnudagsmorgni, hinn 26. ágúst, að hópur sá, er stefnt var að sunn- an til aðalfundar Stéttarsambandsins, á Hólum í Hjaltadal, lagði upp í leiðangur- inn klukkan 9 að morgni. Eigi voru allir jafn árrisulir, en þó munaði það minnstu að farið væri á tilsettum tíma. Til fararinnar höfðu tveir bílar verið leigðir — sterkir bílar og góðir, er veita skyldu þægindi einvalaliði því, sem bænd- ur höfðu kjörið sem fulltrúa sína til setu á fundinum. í björtu veðri og fögru var ekið um Kjalarnes, Kjós og Hvalfjörð, sem leið liggur, og skyggnst eftir klerki frá Klaustri, sem þar hugði að veita fyrirsát, við Fer- stiklu. En þar var enginn prestur og urðu menn því að sætta sig við að hafa prófast í öðrum bílnum, en hinn bílinn guðsmanns- lausan fyrsta kastið. Ekkert gerðist til tíðinda fyrr en í Anda- kíl er bílarnir náðu Jeppa, er í sat hinn horfni klerkur og svo þingmaður Borgfirð- inga, og mátti af aðförum þeirra ljóst vera, að þingmaðurinn hugði rétt sinn mikinn til borgfirzkra vega, en aðkomumanna þaðan- af minni og urðu þeir, sem á eftir fóru, að láta sér líka aðfarirnar, enda höfðu þeir ekki átt mikinn hlut að vegalagningu á þessum slóðum. Áfram var ekið og inn í umdæmi hins ný- kjörna þingmanns Mýramanna og ekki áð fyrr en litlu neðar en Grábrók og fyrr en komið er að Hreðavatnsskála Vigfúsar, en þar heitir BIFRÖST, sem af var stigið.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.