Freyr

Volume

Freyr - 01.10.1951, Page 17

Freyr - 01.10.1951, Page 17
FREYR 303 Fjárskipti með flugvél Starfslið Flugfélags íslands, á Reykjavík- ur-flugvelli, hafði lokið við að lesta Gló- faxa. Lestað var síldarmjöl, er flytja skyldi til Fagurhólsmýrar og nota sem vetrarfóð- ur handa sauðfé þeirra Öræfinga, sem þess hefðu þörf. Smá pinklar, af ýmsu tagi, voru síðastir í röðinni og svo var lestun lokið og mér — sem einasta farþega ■— var vís- að til inngöngu í vélina um hinar víðu dyr, sem brátt lokuðust að baki með vængja- hurðum. Og hér sat ég innilokaður í þess- um málmbúk, sem flytur fénað úr Öræf- um til Borgarfjarðar í öndverðum október árið 1950, en frá Reykjavík ýmiss konar varning til baka, handa þeim, sem í Ör- æfum búa — vetrárforðann þeirra. Sauð- féð, sem þaðan er flutt, eru lömb, er setja skal á vetur hjá þeim bændum í Mýra- sýslu, sem slátrað höfðu fé sínu vegna sauðfjárkvillanna, en óskuðu í þess stað að kaupa lömb í Öræfum. Flugmennirnir eru komnir í sæti sín, en ég sit á síldarmjölspoka í einni stíunni á meðan hreyflarnir eru prófaðir. Átök þeirra hrista vélina þegar þeir drekka benzínið í ákafa og leysa orku þess úr læð- ingi, en bremsurnar eru enn á vélinni, svo að hún hreyfist ekki úr stað. Málmbáknið nötrar, bremsur eru losaðar og af stað þýt- ur þetta farartæki loftsins yfir húsin, sem sýnast eins og brúðubústaðir, austur, yfir græn tún og gripi á beit, í grösugri sveit,

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.