Freyr

Volume

Freyr - 01.10.1951, Page 22

Freyr - 01.10.1951, Page 22
Féð i réttinni — fjárkaupamenn að starfi. Ljósm.: G. K. Skaftafelli og, að sögn kunnugra, einatt gengið sjálfala árum saman. Þegar komið er til réttar má sjá, að Odd- ur bóndi er sauðamaður. Nú eru heilar sýsl- ur hér á landi með öllu „sauðlausar", en hér í réttinni á Skaftafelli má sjá sauði vetur- gamla, tvævetra og máske þrevetra, væna sauði, sem eflaust gefa væn föll, og gott er kjötið af sauðunum hans Odds í Skaftafelli, um það get ég borið vitni, hvort sem um er að ræða hupp eða síðu, svíra eða læri. En nú er Oddur dáinn. Hvort mun þá sauða- eignin í Skaftafelli einnig falla niður? En hingað, að réttinni, erum við ekki komnir til þess að spjalla um sauði, því að í fjárkaupum, vegna skipta þeirra, sem kvillarnir hafa komið af stað, er ekki um önnur fjárkaup að ræða en lambakaup. Þeir Ólafur og Gunnar verða að láta sér nægja að gjóta hornauga til sauðanna, en leggja alla stund á að meta og merkja lamb- gimbrarnar og svo fáeina hrúta. En hér fara ekki fram kaup eins og þau gerðust við réttarvegg í gamla daga, þegar markaðirnir voru haldnir — þegar seljandi og kaupandi „þrúkkuðu“ um verðið þangað til sam- komulag varð um það fyrir einstakling eða heilan hóp. Hér eru lömbin bara vegin og merkt, en verðið er ákveðið af hlutlausum aðila, nefnd, sem situr á stólum í stofu í Reykjavík og reiknar út meðalverðið fyrir yfirstandandi ár. Nokkuð er borgað strax, en afgangurinn þegar hið endanlega meðal- verð hefir verið fundið. En þess skal getið, að féð, hérna í Skafta- felli, er sýnilega úr ýmsum áttum komið. Það leynir sér ekki þegar horft er á hópinn í réttinni. Hér gætir einkenna þeirra, sem

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.