Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2005, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST2005
Fréttir DV
Sturla vígði í
Grímsey
Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra vígði í gær
nýja flugbraut og véla-
geymslu í Grímsey. í frétta-
tilkynningu frá Flugmála-
stjórn kemur fram að flug-
brautin hafi verið endur-
byggð, lögð á hana klæðn-
ing og byggð við hana
öryggissvæði á enda henn-
ar. Hún er nú 1.030 metrar
á lengd löng og 23 metrar á
breidd. Loka þurfti flug-
brautinni í þrjá daga á
meðan framkvæmdum
stóð. Einnig var byggð ný
vélageymsla á flugvellinum
og hýsir hún slökkvibifreið
og snjóruðningstæki svo
eitthvað sé nefnt. Heildar-
kostnaður við framkvæmd-
ir á Grímseyjarflugvelli var
um 142 milljónir króna.
Kjötfjallið
horfið
Það er ekki bara
Hvannadalshnjúkur sem
lækkar og lækkar. Kjötfjall-
ið hefur einnig lækkað og
er í raun alveg horfið.
Neysla á lambakjöti hefur
aukist svo mikið að ailt kjöt
frá síðustu sláturtíð er búið.
Til þess að landinn fái nú
samt sitt lambakjöt hefur
því þurft að bregða á það
ráð að flytja inn hátt í
fimmtíu tonn af því. Það er
ekki bara skortur á lamba-
kjöti því íslenskri nauta-
kjötsframleiðendur hafa
ekki náð að anna eftir-
spurn.
Menguní
Skutulsfirði
Mengunarský lá yfir
sorpbrennslustöðinni
Funa á ísafirði í gær.
Stöðin liggur í botni
Skutulsfjarðar, í faðmi
fjalla. Reykslæðu lagði
frá Funa, íbúum til
nokkurs ama. Sam-
kvæmt fréttum Bæjarins
besta á ísafirði er ástæða
mengunarinnar sú að
endumýja þarf síupoka í
reykhreinsibúnaði end-
urvinnslustöðvarinnar.
Þegar stillur em mynd-
ast mistur, en það mun
vera algerlega skaðlaust.
Þingmaðurinn Gunnar Örn Örlygsson á að baki langan sakaferil. Hann hóf þing-
mannsferil sinn með því að sitja af sér þriggja mánaða fangelsisdóm og með óleyst
mál á bakinu er varðaði hótun gegn embættismanni.
Gunnar örn örlygsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fór á
heimili Þórðar Ásgeirssonar Fiskistofustjóra árið 1999 og skildi
eftir hótunarbréf undir rúðuþurrku á framrúðu bifreiðar hans.
Gunnar örn hefur 9 sinnum verið fundinn sekur um brot á um-
ferðarlögum, þar af fjórum sinnum sviptur ökuleyfi. Þá hefur
hann á sínum fullorðinsárum verið fundinn sekur um bókhalds-
brot, tugmilljóna svindl, brot á tollalögum og þjófnað.
Fiskistofa kærði Gunnar Örn fyrir
hótanir hans á hendur Þórði
Ásgeirssyni. Gunnar örn sagði í hót-
unarbréfinu, sem stílað var á Þórð,
að ef hann hætti ekki afskiptum af
„ungum manni af Suðurnesjum"
hefði hann verra af. Þetta ár skilaði
Gunnar öm engu bókhaldi fyrir fyr-
irtæki sitt, seldi fisk fyrir 44 milljónir
án leyfis og falsaði útflutningsskjöl,
svo eitthvað sé nefnt.
Rannsókn vegna hótunarbréfsins
stóð enn yfir þegar Gunnar Öm var
kjörinn til þings vorið 2003. Ríkis-
saksóknari felldi hins vegar málið
niður, þrátt fyrir að játning lægi
fyrir, sumarið 2003.
Óflekkað mannorð
Þrátt fyrir að hafa á bakinu 9 brot
á umferðarlögum, þar af fjórar öku-
leyfissviptingar, þjófnaðarbrot og
bókhaldsbrot, svo eitthvað sé nefnt,
telst Gunnar öm hafa óflekkað
mannorð. Því var hann kjörgengur
til alþingiskosninga.
Minna mátti þó ekki muna. Sam-
kvæmt lögum um kosningar til
alþingis telst sá ekki hafa óflekkað
mannorð sem dæmdur er fyrir brot
er hann framdi 18 ára eða eldri og
fengið hefur fjögutra mánaða óskil-
orðsbundinn fangelsisdóm. Gunnar
Örn fékk sex mánaða fangelsisdóm,
en þar af þrjá mánuði skilorðs-
bundna. jontrausti@dv.is
Margdæmdur
Tvisvar sviptur ökuleyfi
Á árunum 1988 til 1995 var Gunnar
fímm sinnum látinn greiða sektir og
tvisvar sviptur ökuleyfi fyrir brot á um-
feröarlögunum.
Stal löxum
20.júlí 1995 braust hinn 23 ára gamli
Gunnarinn í fiskeldisstöðina Vogavík í
Vogum ásamt fétaga sínum og stal 7
löxum. Dæmdur í 20 þúsund króna
sekt.
Ók ölvaður
8. febrúar 1999 var hinn 27 ára gamli
Gunnar sviptur ökuleyfi í 10 mánuði
þegar honum varr'efsað ísjötta skipt-
ið fyrir að brjóta umferðariögin, þá
fyrir að aka ölvaður. 27. maí sama ár
var Gunnar sektaður um 50 þúsund
krónur fyr-ir að aka án ökuleyfis.
Ók án ökuleyfis
Fjórum mánuðum eftirþriðju ökuleyf-
issviptinguna 1999 var Gunnar enn
og aftur tekinn aflögreglu fyrir að aka
án ökuleyfis. Hann hlaut 100 þúsund
króna sekt.
Ók aftur ölvaður
3.júní árið 2000 ók Gunnar aftur ölv-
aður. Hann ók austur Hverfisgötu i
Reykjavíkog vargripinn aflögreglu.
Gunnar mætti ekki fyrir dóm þegar til
þess var ætlast. Hann var dæmdur til
80 þúsund króna sektar og ökuleyfis-
sviptingar í tvö ár. Þetta var í nfunda
skiptið sem Gunnari varrefsað fyrir
brot á umferðarlögunum og fjórða
skipt-ið sem hann var sviptur ökuleyfi.
Tugmilljóna svindl
Fyrir rétt tæpum þremur árum var
Gunnar dæmdur fyrir 44 milljóna
króna svindl. Hann verkaði og flutti úr
landi 324 tonn afþorski sem hann
sveikst undan að vigta og sparaði sér
þar með tugmilljónir I kvóta. Auk þess
laug hann til um fisktegundir þær sem
hann flutti út, sagðist flytja út steinbít
þegar um var að ræða keilu. Gunnar
var einnig dæmdur fyrir að framvísa
ekki bókhaldi fyrir fyrirtækið sitt Sæ-
gæði ehf. fyrir árið 1999. Gunnar var
dæmdur í sex mánaða fangelsi, þar af
þrjá mánuði skilorðsbundna, sem
hann afplánaði i upphafi þingsetu
sinnar.
Yfirvöld ósátt við fréttaflutning
Engum hefur verið
vísað úr landi
í fréttatilkynningu frá mótmæl-
endum sem send var í vikunni
kemur fram að brottvísun hafi ekki
annan tilgang en að útiloka erlenda
mótmælendur frá Islandi næstu árin
og að nokkrir þeirra sem séu á
„brottvísunarlista" yfirvalda séu nú
þegar farnir úr landi. Hildur Dungal,
forstjóri Útlendingastofnunar segir
engan lista vera til. „Það er enginn
listi yfir aðila sem vísa á úr landi og
við höfum ekki úrskurðað um hvort
það verði gert," segir hún. „Það er
búið að birta nokkrum aðilum bréf
þess efnis að brottvísun komi til
greina," segir Hildur og ítrekar að
Hvað liggur á?
Hildur Dungal Segir
ekki enn liggja fyrir um
hvort mótmælendum
verði vlsað úrlandi.
enn hafi
engum verið
vísað frá.
Frétta-
flutningur
af máli mót-
mælenda hefur að margra mati
verið mjög einhliða og til þess
gerður að klekkja á yfirvöldum.
„Rauði þráðurinn í þessu er sá að
enginn pantar lögregluaðgerðir eins
og komið hefur fram í fjölmiðlum,"
segir Páll Winkel hjá Landsambandi
lögreglumanna. „Það er nauðsyn-
legt þegar svona langt er gengið að
tjá okkur um fréttir af þessum mál-
um," segir hann. gudmundur@dv.is
„Við erum að verða búnir að taka upp plötuna,"segir Sigurður Halldór Guðmundsson,
hljómborðsleikari f Hjálmum. „Við erum núna að stilla saman strengiokkar fyrir kvöldið en í
kvöld munum við spila á Hafnarbakkanum I kringum níu og svo ætlum við að spila á Þjóð-
leikhúskjallaranum eftir miðnætti."
Hjúkrunarfræðingar
Lausar eru stöður hjúkrunarfræðinga á
hinum ýmsu deildum heimilisins. Um er að
ræða vaktavinnu en vaktir og starfshlutfall
er samkomulag.
Eir hjúkrunarheimili rekur fjöibreytta þjónustu við aldraða, þar
eru 8 hjúkrunardeildir, dagdeild, sjúkraþjálfun, dægradvöl og
einnig heimahjúkrun og þjónusta við ibúa í Eirarhúsum sem
eru 37 eignar - og öryggisíbúðir.
Kynning fyrir hjúkrunarfræðinga á starfseminni verður
miðvikudaginn 24. ágúst 2005 kl. 16.30.
Upplýsingar veita
Hjúkrunarforstjóri, Birna Kr. Svavarsdóttir eða
fræðslustjóri, Jóna H. Magnúsdóttir
í sinia. 522 5700.
Umsóknir er einnig hægt að senda á fraedsla@eir.is
Hjúkrunarheimili
Hlíðarhúsum 7.112 Reykjavík.
Sími. 522 5700. www.eir.is