Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2005, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2005, Blaðsíða 19
DV Helgarblað LAUCARDAGUR 20. ÁGÚST2005 19 Ásta Ágústsdóttir er eiginkona Tryggva Jónssonar, semer fyrrverandi aðstoðarforstjóra Baugs og hægri hönd Jóns Ásgeirs. Vinir og kunningjar Ástu segja þau hjónin samstillt og samrýmd og að þau standi saman í gegnum súrt og sætt. Ásta er mikil fj ölskyldumanneskj a og hún valdi að vera heima með dæturnar á meðan Tryggvi vann fyrir fjölskyldunni. Heilsteypt kona 09 stendur sem klettur við hlið manns síns Ásta Ágústsdóttir er eiginkona Tryggva Jónssonar. Tryggvi er vitorðs- maðurinn í ákærum ríkislögreglu- stjóra. Hann var aðstoðarforstjóri Baugs og hægri hönd Jóns Ásgeirs. í dag er hann aðaleigandi og starfandi stjómarformaður Heklu. Ásta fæddist árið 1961 og ólst upp í góðu atlæti á Kleppsholtinu og í Smá- íbúðahverfinu. Foreldrar hennar em Ágúst Geirsson, fyrrverandi umdæmi- stjóri Pósts og síma og Kristín Zoega. Kristíh var lengst af heimavinnandi en fór síðar að vinna fyrir Samtök veit- inga- og gistihúsa sem í dag heita Samtök ferðaþjónustunnar. Þau em bæði hætt að vinna úti. Ásta er elst af þremur systkinum. Geir Valur bróðir hennar er þremur árum yngri og Kristján 11 árum yngri en hún. Var heima með dætrunum Ásta er stúdent fiá Menntaskólan- um í Reykjavík. Hún og Tryggvi kynnt- ust í gegnum skátahreyfinguna og fóm að vera saman þegar Ásta var 17 ára. Eftir stúdentspróf vann hún hjá Sláturfélagi Suðurlands þar sem hún sá um tollpappíra í innflutningsdeild. Þar vann hún þangað til elsta dóttir þeirra Tryggva fæddist árið 1987. Ásta og Tryggvi eiga þrjár dætur, sú elsta er fædd 1987, næsta 1989 og sú yngsta árið 1996. Ásta valdi að vera heima hjá dætrunum en skellti sér síðar í guð- fræðideildina í Háskóla íslands. Hún stefnir að því að verða djákrú og mun ljúka náminu fljótlega. Mikil fjölskyldumanneskja Geir Valur bróðir Ástu segir að námsvalið hafi komið honum þægi- lega á óvart. „Ef ég hefði átt að giska á fyrir nokkrum árum hvað hún myndi leggja fyrir sig þá hefði mér aldrei dottið guðfræðin í hug,“ segir Geir Valur. „En rnn leið og ég var farinn að hugsa málið þá fannst mér þetta eðli- leg leið fyrir hana. Ásta er trúuð og einnig mikill pælari og ég veit að hún hefur gaman af þessu fagi," segir hann. Kristín Einarsdóttir er ein af bestu vinkonum Ástu og ein af þeim sem hefur þekkt hana lengst. Kristín tekur undir orð Geirs Vals og segir að guðfræðin henti Ástu afar vel. ,Að mínu mati hefur námið gefið henni ofsalega mikið. Fyrir utan trúna þá er svo margt í þessu námi, eins og gildi mannsins, að það sé ofar öllu,“ segir Kristín og bætir við að betri vin sé erfitt að finna. „Hún er mjög góður vinur og í gegnum öll þessi ár höfum við gengið saman í gegnum súrt og sætt en Ásta er alltaf til staðar fyrir mann. Hún er samt ekki þessi týpa sem flíkar tilfinningum sínum, hún er indæl og góð en safnar ekki fólki í kringum sig því þótt hún sé aðlaðandi í návist fólks þá velur hún vini sína af kostgæfni." Kristfn segir Ásm ákaflega skemmtilega konu, hressa og káta án þess að láta mikið fyrir sér fara. „Fjöl- skyldan skiptir Ástu miklu máli og sambandið innan fjölskyldu hennar er mjög gott. Hún passar vel upp á sína og gefur stelpunum sfnum sinn tfrna." Heiðarleg, skynsöm og greind „Hún hefur alltaf reynst mér mjög vel sem stóra systir og sú manneskja sem ég hef lagt mest traust á í lífinu," segir Geir Valur, en hann starfar sem framkvæmdastjóri hjá Heklu. Geir Vcdur segist alltaf hafa getað leitað til Ástu og að þau hafi ávallt verið náin systkini og einstaklega góðir vinir. „Að mínu mati er Ásta einstaklega heil- steypt, heiðarleg, skynsöm og greind manneskja. í lífinu skiptast á skin og skúrir og ef ég hef þurft á hjálp að halda þá hef ég alltaf getað leitað til hennar," segir Geir Valur og bætir við að eftir því sem verkefnin sem þau mæti séu erfiðari því sterkara verði samband þeirra. „Við stöndum sam- an, það er engin spurning," segir hann og bætir við að mikill samgangur sé á milli fjölskyldna þeirra. „Ásta er fyrir- taksmamma og er einnig mjög vinsæl hjá bömunum mínum, þau sækja mikið í hana.“ Samrýmd hjón sem standa saman Þeir sem þekkja Ástu segja að hún sé skemmtileg og að það sé létt að fá hana til að hlæja. Vinir hennar em einnig sammála um að staða og auður eiginmanns hennar hafi aldrei haft truflandi áhrif á líf Ásm og að hún sé h'tið fyrir að flagga því sem hún eigi. Hún og Tryggvi hafi byrjað ung saman og því þekki hún ekkert annað. Hann hafi alltaf verið vinnuþjarkur en á meðan hafi hún séð um heimilið. „Hún hefur náttúrulega engan sam- anburð en samband þeirra hefur alla tíð verið afar heilsteypt. Hún var rétt orðin 17 ára þegar hún kynntist Tryggva og fólk þroskast með sfnum maka," segir Geir Valur og bætir við að Ásta hafi staðið eins og klettur við hlið Tryggva í gegnum þetta erfiða tímabil, á því hafi aldrei neitt hik orðið. Kristln tekur undir orð Geirs Vals og segir að Ásta og Tryggvi hafi ávallt verið sterk eining. Þau séu búin að vera lengi Ásta Ágústsdóttir og Tryggvi Jónsson Ásta er í guðfræði íHáskóla Is lands. Hún stefnir að því að verða djálkni og mun Ijúka náminu fljótlega. saman og standi saman í gegnum súrt og sætt. „Þau em einstaklega nánir vinir, háð hvom öðm og tengd. Hún hefur staðið eins og klettur við hlið manns síns í gegnum þessa erfiðleika og það góða er að hann myndi gera það sama fyrir hana.“ indiana&dv.is Ása Ásgeirsdóttir er fyrrverandi eiginkona Jóhannesar Jónssonar og móðir barna hans. Ása hefur ekki látið auðævi fjölskyldunnar hafa áhrif á sitt líf. Hún hefur haldið sínu striki og er enn í sömu vinnunni og í upphafi. Jarðbundin og heldur sig til hlés Mamman Ása Asgeirsdóttir ermóðirJónsAs- geirs og Kristínar og fyrrverandi eiginkonaJó- hannesar í Bónus. Ása Ásgeirsdóttir fyrrverandi eiginkona Jóhannesar og móðir þeirra Jóns Ásgeirs og Kristínar er Vesturbæingur. Foreldrar henn- ar, þau Ásgeir Matthíasson og Þorgerður Magnúsdóttir, áttu íbúð í verkamannabústöðunum við Hofsvallagötu. Ása er fædd 1942 og ólst upp í þessu barn- marga hverfi, þar sem alltaf var eitthvað um að vera, ásamt tví- burasystur sinni önnu og tveim- ur eldri systrum. Ása var aðeins sautján ára þegar hún kynntist Jóhannesi á dansleik í Sigtúni við Austurvöll en um svipað leyti kynntist Anna fyrri manni sínum Ellerti Schram. Þær systur voru afskaplega líkar og erfitt var að þekkja þær í sund- ur. Margir rugla þeim enn í dag saman en þær eru vanar því og kippa sér lítt upp við að á þeim sé ruglast. Þær eru afskaplega sam- rýmdar og samstiga, hugsa á svipaðan hátt og finna ósjaldan á sér hvenær önnur þarfnast hinn- ar. Eftir að þær giftu sig fylgdust þær að í barneignum en Ása hætti eftir að hafa eignast Jón Ás- geir og Kristínu, en Anna hélt áfram og eignaðist fimm börn með sínum manni. Tekur ásakanir á hendur barna sinna nærri sér Ása er afskaplega róleg og hæg kona sem ekki má vamm sitt vita. Heiðarleg fram í fingurgóma og á ekki létt með að fylgjast með því fári sem leikur um börn hennar þessa dagana. Tvíburasystir hennar, Anna, er hennar stoð og stytta í þessu moldvirði í kringum þau en það er ekki djúpt í árina tekið að segja að Ása taki ásakan- ir á hendur börnum sínum afar nærri sér. „Þessi aðför er hræði- leg og þeir sem þekkja þau Jón Ásgeir og Kristínu skilja ekki hvernig hægt er að ásaka þau svona og draga fyrir dóm. Það er algjörlega út í hött og ég veit að Ása tekur þetta afskaplega nærri sér," segir hún og bætir við að svona ásakanir sem fram koma í Baugsmálinu á hendur systra- börnum hennar séu ofar hennar skilningi. Anna bendir á að systir hennar sé einstök manneskja, hrein perla sem innrætt hafi börnum sínum allt það besta í uppeldinu. „Ása hefur unnið úti frá því börnin voru lítil og gerir enn. Rúm fjár- ráð hafa ekki breytt henni á nokkurn hátt. Hún hefur haldið sínu striki og er enn í sömu vinn- unni og í upphafi, fyrir Bónus. Ég get bara lýst henni með þeim orðum að hún sé yndislegasta manneskja á jarðríki, hún Ása,“ segir Anna. Nánar tvíburasystur Öllum sem rætt var við ber saman um kosti Ásu. Hún sé hæg og róleg og henni sé afskaplega illa við að láta bera á sér. Heldur haldi hún sig til hlés. Það hafi þau Jón Ásgeir og Kristín örugglega frá henni. Ása er jarðbundin og lætur ekkert hagga sér en vita- skuld taki ásakanirnar í Baugs- málinu á hana. Ekki sé auðvelt fyrir hana að fylgjast með allri fjölmiðlaumræðunni í kringum börnin hennar og fyrrverandi mann. Eftir að þau Ása og Jóhannes skildu keypti Ása sér íbúð í blokk á Seltjarnanesinu. Hún hélt áfram að vinna eins og áður fyrir Bónus og lifir afskaplega rólegu lífi. Þær Kristín dóttir hennar eru nánar og gott samband er á milli þeirra. Nú nýlega flutti Ása í nýja íbúð í háhýsi við Vatnstíginn þar sem hún hefur útsýni yfir flóann, Esjuna og Snæfellsjökulinn rétt eins hún naut svo lengi af Barða- ströndinni Þar bjuggu þau Jó- hannes lengi og hún saknaði þess alltaf í litlu blokkinni á Nesinu. Eins og fram hefur komið er vinskap og sterkum tengslum þeirra systra viðbrugðið. Ævin- lega finni þær á sér ef eitthvað er að hjá hinni og eru fljótar að koma hvor annarri til aðstoðar. Anna segir að oft hafi þær farið hvor í sínu lagi í bæinn og komið heim með sömu hlutina án þess að vita af hvor annarri. Ása er í góðu sambandi við börn sín og barnabörn. Sam- bandið við Jóhannes er eðli máls- ins samkvæmt ekki mikið en þau búa yfir þeirri skynsemi að geta talað saman ef þau þarfnast þess og virða hvort annað. bergijot@dv.is í Framhaldá l næstusíðu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.