Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2005, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2005, Blaðsíða 27
DV Helgarblað LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST2005 27 Afi snýr aftur „Aíi er að flytja og mun hreiðra um sig á nýjum stað," segir Örn Árnason, umsjónarmaður Bamatímans hans Afa á Stöð 2, en þáttur- inn vinsæli mun snúa aftui um miðjan september eftir langt sumar- frí. „Það er ekki nóg með að afi sé að flytja heldur mun dagskrár- gérðin einnig breytast. í þáttinn mun bætast sagnaskápurinn þar sem þjóðsögur verða sagðar auk þess sem litlar mýs, sem flutt hafa upp á háaloftið hjá afa, verða reglulegir gestir í þættinum." Örn verður í samstarfi við Sorpu en í ruslutunninni hans afa býr karakt- erinn Hreinn. „Afi og Hreinn spjalla um landsins gagn og nauðsynj- ar og fara út í umhverfismál á léttu nótunum. Barnatíminn hans afa hefur alltaf verið uppbyggjandi og á glaðlegum og fræðandi nótum og þar verður engin breyting á,“ segir örn og bætir við að málverk uppi á vegg heima hjá afa muni einnig lifna reglulega við. „Við erum með íslenska dagskrá fýrir íslensk börn og aii er alltaf að verða meira innlendur þótt hann sýni líka teiknimyndir." Bamatíminn hans afa er að hefja sitt 19. starfsár og það er skemmtilegt frá því að segja að örn hefur slegið íslandsmet í þáttar- stjóm. „Enginn annar umsjónarmaður hefúr verið svona lengi. Ýmsir þættir hafa lifað lengur en ekki með sama umsjónarmann frá byrjun." Kímið hversdagsdrama \ Nýtt fólk og nýir dómarar „Þetta er alltaf jafn skemmtilegt enda nýtt fólk á hveiju ári," segir Sigmar Vilhjálmsson, annar kynnanna í Idol Stjömuleit, en ný þáttaröð hefst í lok september. Þór Freysson, framleiðandi þátt- anna, tekur undir orð Simma og bætir við að þátt- urinn verði áfram með svipuðu sniði. „Við mun- um samt fjölga þáttum auk þess sem við emm búin að fá nýja dómara inn. Þorvaldur Bjami sá sér ekki fært að vera með okkur en Páll Óskar og Einar Bárðar munu taka við af honum. Þeir hafa báðir verið gestadómarar hjá okkur svo þeir hafa þegar farið í pmfu sem er mjög gott," segir Þór. Áheymarprufur hefjast í Reykjavík en svo verður farið til Egilsstaða og á Ákureyri. „Við munum sjá fleiri þætti frá Reykjavík og verðum með fleiri þætti þar sem áhorfendur heima kjósa. Að lokum munum við svo enda með tólf manns í Smáralindinni í staðinn fyrir tíu svo úrslitaþætt- irnir verða einum fleiri en hingað til." Þór segir 1400 manns hafa skráð sig sem er svipaður fjöldi og í fyrra. „Þetta h'tur allt mjög vel út og við hlökkum mikið til að byrja." Idol Stjömuleit verður á dagskrá á föstudagskvöldum á Stöð 2. Fyrsti þátmr verður 30. september. Allt annað en fótbolti og handbolti „Við ætlum að sinna öllu því sem er ekki fótbolti eða handbolti," segir Bjarni Bærings, umsjónarmaður Super- sports. í þættinum er ijallað um allskyns jaðarsport, svo sem mótorkross, þolakstur, vatnasport, áhættuatriði, sportbílaakstur, fallhlífarstökk, ísklifur, klettaklifur, flt- ness og drekasiglingar. „Við tökum á öllu sem er bæði spennandi og hættulegt," segir Bjarni sem er sjálfur adrenalínfíkill. „Áhorfendur eiga eftir að sjá mig í fallhlíf- arstökki og í ísklifri en það svakalegasta verður fram- kvæmt af áhættuleikurum. Annars höfum við fullt af töff- umm og gellum með okkur í liði sem gera hluti sem fáir aðrir þora." Bjami segir áhugasama geta sent hugmyndir á supersport@supersport.is. Þátturinn er á dagskrá Sirkuss á fimmtudögum klukkan 19.50. „Sagan fjallar um Kalla og Margréti sem em að skilja en hafa ákveðið að reka saman fyrirtækið sitt, Kallakaffi," segir Maríanna Friðjónsdóttir hjá Sagafilm en Ríkissjónvarpið mun hefja sýning- ar á þáttunum í haust. Um tólf þátta röð er að ræða en Maríanna lýsir syrpunni sem kímnu hversdagsdrama. „Hjónin eiga tvítuga dóttur og svo tengjast sögunni tveir vonbiðlar hennar auk hálf- bróður Margrétar, sem leikinn er af Ladda, sem er fastagestur á veitingahúsinu. Hann er strætóbílstjóri með ákveðnar skoðanir á lífinu og tilverunni," segir Maríanna og bætir við að hver þáttur hafi sína sérstöku sögu og að í hvern þátt muni frægir gestaleik- arar koma í heimsókn. „Svona efni hefur ekki sést á íslandi í langan tíma," segir Maríanna. „Við vorum ekkert að fitla við þetta vikum saman heldur gerðum þetta eins og í útlöndum og tókum upp einn þátt á dag. Útkoman sýndi okkur að við getum þetta alveg og því höfum við góð fyrirheit um hvernig hægt er að framleiða leikið íslenskt sjónvarpsefni." Aðalleikarar eru Valdimar örn Flygering, Rósa Guðný Þórs- dóttir, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, Laddi, Davíð Guðbrandsson og ívar Öm Sverrisson. Piparsveinninn slær í gegn „Markmið þáttarins er að sýna fram á að það er alveg hægt að deita á íslandi," segir Jón Ingi Hákonarson, þáttarstjórnandi ís- lenska Bachelorsins, sem hefur göngu sína á Skjá einum með haustinu. Jón Ingi fýlgist sjálfur með ameríska þættinum og segir að íslenska útgáfan verði svipuð. „Aðsókn í þáttinn hefur verið mjög góð," segir Jón Ingi og bætir við að í fyrstu ijómm þáttunum muni áhorfendur fá að kynnast þátttakendum, sem koma úr öllum áttum. Fjórir piparsveinar sem standi upp úr muni keppast um að verða hinn eini sanni piparsveinn. „í þessum fjórum þátt- um munum við fá að kynnast piparsveinunum og stúlkunum sem keppa um þann heppna auk þess sem við ætlum að fjalla um stefnumót og vera með viðtöl við fullt af fólki." Jón Ingi bíður spenntur eftir fyrsta þættinum. „Ég hef fundið fýrir mikilli eftirvæntingu og miðað við það sem maður heyrir og sér, þá held ég að þessi þáttur eigi eftir að slá rækilega í gegn." Flest pörin í Bachelor hafa hætt saman en Jón Ingi hefur trú á aðferðinni. „Ég held ekki að þetta sé vonlaus aðferð til að finna ást- ina. En annars fylgist ég ekki mikið með fólkinu eftir að þáttunum lýkur." Jón Ingi segist ekki vita hvort næsta þáttarröð muni snúast um dömu og þá karlmenn sem beijast um hennar hylli. „Af hverju ekki? En við höfum lítið spáð í þetta. Við skulum byrja á þessum og gera hann vel áður en við förum að hugsa um næstu seríu." Reykvískur samtímakrimmi „Þetta er reykvísk samtíma-sakamálasaga," segir Anna Rögnvaldsdóttir kvikmyndagerðarmaður en þáttaröðin Allir litir hafsins eru kaldir verður sýnd á RÚV í vetur en um þriggja þátta seríu er að ræða. „Sag- an gerist í Reykjavík þegar aldraður maður verður fyrir fólskulegri árás á heimili sínu. Hann fellur í dá vegna höfuðáverka og í kjölfarið fer rannsókn málsins af stað," segir Anna og bætir við að aðalpersóna þáttanna sé ungur lögfræðingur sem skipaður er sem veijandi hins grunaða. „Böndin berast fljótt að síbrotamanni einum sem er handtekinn og settur í gæsluvarðhald en auk hans kemur fjöldi annarra persóna við sögu." Tökum er þegar lokið og Anna segir að um stórt verkefni sé um að ræða. „Um 15 fastar persónur koma fram í öllum þremur þáttunum sem eru 50 mínútur hver svo þetta er þokkalega stórt verkefríi á íslenskan mælikvarða." Aðalleikarar eru Hilmir Snær Guðnason, Þórunn Lárusdóttir, Jón Sæmundur Auðarson, Björn Floberg og fleiri. Hægt er að skoða „trailer" úr þáttun- um á netinu á slóðinni axfilms.com.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.