Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2005, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2005, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST2005 Helgarblað DV Með haustinu batnar dagskrá sjónvarpsstöðvanna til muna. í vetur verða margir spennandi islenskir þættir a dagskrá og ber þar fyrst að nefna Stelpurnar á Stöð 2 og íslenska Bachelorinn á Skjá einum. Fjöldi nýrra og forvitnilegra þátta fer í loftið þegar sól tekur að lækka a lofti. DV kynnti sér það sem í boði verður. Allur fjandinn dettur upp úr stelpunum „Þetta verða stuttir og hraðir grín-sketsar sem íjalla um hvers- dagsleg viðfangsefni og það hvernig er að vera manneskja í Reykjavík í dag," segir Óskar Jónasson kvik- myndagerðarmaður og leikstjóri Stelpnanna. Óskar segir konur í meirihluta þáttanna, bæði sem leik- endur og skrifendur, en annars verða þættimir af svipuðum toga og Svínasúpan og Fóstbræður. „Kynjahlutverkin em önnur en viðfangsefnið er af svipuðum toga, uppákomur sem allir kannast við." Ýmis atriði í Svfnasúpunni og Fóst- bræðmm þóttu fara yfir strikið en Óskar segir það ekki vera markmiðið með Stelpunum. „Við spjölluðum mikið um þetta og komumst að því að það grófasta er ekki alltaf það fyndnasta og því ætlum við ekki að róa markvisst á þau mið. Frá mínum bæjardyrum séð verða þetta fjöl- skylduvænir þættir þó einn og einn grófur brandari eigi eftir að slæðast inn á milli en þá er bara að grípa fyr- ir eyrun á börnunum," segir Óskar en bætir við að engir berrassaðir strákar eigi eftir að sjást í þáttunum. Vala Matt á ferð og flugi „Þátturinn byggist á fjölbreyttri blöndu af efiti þar sem ég held áfram að fjalla um hönnun og arkitektúr," segir Vala Matt um nýja hönnun- ar- og lífsstílsþáttinn sem nefnist Veggfóður. Vala ætlar að halda áfram að heimsækja fólk, skoða falleg heimili og sýna skemmtilegar hug- myndir. „Við verðum með ráðgjafa sem sýna ýmsar breytingar og sniðugar lausnir auk þess sem við verðum með heilmikla lífsstílsumfjöllun þar sem við útvíkkum heimsóknir til einstaklinga og spjöllum meira um það sem viðkomandi er að sýsla, bæði í vinnunni og í frístundum," segir Vala og bætir við að hún ætli að vera mikið á ferð og flugi, bæði til útlanda og út á land. „í fyrsta þætt- inum verðum við í New York þar sem við ætlum að hitta spennandi íslendinga og skoða ýmsa skemmtilega hluti enda ætlum við að skoða allt það heitasta sem er í gangi hverju sinni." Hálfdán Steinþórsson verður Völu til aðstoð- ar ásamt flokki hönnuða, hugmyndasmiða og iðnaðarmanna. „Þetta verður allt mjög skemmtilegt fólk og mottóið er að gera skemmtilegt efni." Veggfóður verður á dagskrá Sirkuss á mánu- dögum klukkan 21. Lífsþáttur með léttu yfirbragði „Þátturinn verður náttúrulega ferskari," segir Amar Gauti Sverris- son einn af þremur þáttarstjómend- um lífsstílsþáttarins Innlits-útlits sem hefur göngu sína að nýju í sept- ember. „Við erum ólíkir einstaklingar og komum frá ólíkum stöðum," segir Amar Gauti en hann stjómar þættin- um ásamt Þómnni Högnadóttur og Nadiu Katrínu Banine. Spurður hvort hann hafi fylgs t með þættinum þeg- ar Vala Matt var við stjómvölinn spyr Amar Gauti á móti: „Vala hver?" og hlær. „Jú, þátturinn verður með svip- uðu sniði en það verður líklega meiri léttleiki yfir honum. Ég hef verið í tískubransanum lengi og hef einnig áhuga á allskyns hönnun enda fylgist þetta oft að. Við ætlum ekki að vera með eitthvert sölurúnk heldur sýna fólki skemmtilegar og sniðugar lausnir frekar en að heimsækja flott- ustu heimilin á landinu." Amar Gauti, Þómnn og Nadia Katrín stjórna þáttunum saman og munu kflcja út á land og út fyrir landsteinana í vemr. „Við emm búin að taka upp helling af efni og emm að vinna á fullu í þessu. Þetta er alveg rosalega spennandi verk- efni og ég bíð spenntur eftir að fyrsti þátturinn verði sendur út." Innlit-útlit verður á dagskrá á þriðjudögum kl. 21 á Skjá einum. Forsetinn, ríkisstjórnin og ríka og fræga fólkið „Fyrsti þátturinn verður sérstakur hátíðar- þáttur þar sem við fylgjum forseta íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, og Dorrit Moussaieff alla leið til Kína og til baka aftur," segir Jón Ársæll Þórð- arson, umsjónarmaður Sjálfstæðs fólks, en þátt- urinn vinsæli hefur göngu sína á ný þann 18. september á Stöð 2. „Við fáum að vera flugur á vegg og bjóðum þjóðinni í för með forseta vomm og hluta af rflc- isstjóminni. í fylgdarliðinu er allt rflca og fallega fólkið sem stendur fyrir hinni miklu vfldngaútrás íslenska rflcisins, bæði sekir og saklausir," segir Jón Ársæll og bætir við að fylgst verði með þegar Jón Ásgeir Jóhannesson og eiginkona hans opna nýja tískuvömverslun í Peking sem og ferðum Björgólfs Thors. Sjálfstætt fólk er að hefja sína fimmtu vertíð, þættimir eru komnir vel á annað hundrað og hafa hlotið Edduverðlaunin síðustu tvö árin. „Ég heyrði óprúttinn strák um daginn segja að Sjálfstætt fólk væri betri en bókin en ég sel það ekki dýrara en ég keypti," segir Jón Ársæll sem er þessa dagana að klára þátt tileinkaðan tónlistar- konunni Emilíönu Torrini. „Við munum fara til Bretlands og heimsækja hana á heimavöll. Það hefur aldrei verið jafn spennandi listi framundan og því skyldumæting fyrir framan kassann á sunnudagskvöldum, strax eftir mjaltir." Skemmtilegt og áhrifamikið „Þetta er mjög fallegt leikrit sem við ætlum að taka upp sem sjónvarpsmynd," segir Þórhallur Sigurðsson leikstjóri. Rfldssjón- varpið mun sýna Græna landið eftir Ólaf Hatik Símonarson en tökur byrja um miðjan septem- ber. Sýningin gekk í Þjóðleikhús- inu og víðar í fyrra og hittifyrra og fór í yfir 60 sýningar. „Sagan er um fullorðinn, fyrr- verandi byggingarmeistara sem hefur lokað sig af í sínum heimi. Til hans kemur svo hressileg húshjálp og ungur dóttursonur í heimsókn. Karlinn er farinn að gleyma og er ekki eins klár og hann var en krafturinn er enn til staðar," segir Þórhallur og bætir við að leikritið sé í senn skemmtilegt og áhrifamikið. Með aðalhlutverk fara Gunn- ar Eyjólfsson, Kristbjörg Kjeld og BjörnThors. Búið er að taka upp efni sem dugar á fram á haustið en Óskar og félagar eru í óða önn að taka upp meira. Hann segir glettilega svipað að starfa með konunum í gríninu og körlum. „Maður hélt að þær færu meira inn á tíðahringinn og með- göngugrín en þetta eru afar svipuð viðfangsefni. Kynjamunurinn er ekki eins mikill og maður hélt og húmor því eitthvað sem hefur engin landamæri enda dettur allur fjand- inn upp úr þeim." Stelpurnar verða sýndar á Stöð 2 en þættirnir eru framleiddir af Storm. Fyrsti þátturinn fer í loftið 3. september. 8

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.