Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2005, Blaðsíða 54
54 LAUGARDACUR 20. ÁGÚST2005
Menning J3V
HÚN hvolfist yfir mann eins
og nóttin, sagði maður einu sinni
um uppáþrengjandi konu.
Kvennaveldið í Menningamótt-
inni er dálítið þannig. Það verður
varla undan menningamóttinni
komist nema með því að fara
upp í sveit. Enn heldur skipulags-
nefndin sig
við það
þver-
móðskulega að hafa miðborgar-
skilgreininguna sem þrengsta og
gera þessum hundrað þúsund-
um sem em á faraldsfæti um
helgina sem erfiðast fyrir.
Perlan Ekki hluti afmiðbænum.
*’ MENNINGARHÚSIN em
reyndar mörg í jaðri Kvosarinn-
ar. Tökum Öskuhlíðina sem
dæmi. Þar em bílastæði nóg og
möguleiki á fjölbreytilegu um-
hverfi fyrir alls kyns uppákomur:
Perlan, Keiluhöllin, fjaran við
Nauthólsvík, Fossvogskirkja og
flugskýlin, slökkvistöðin og Ýmir,
Valshúsin og gömlu tankstæðin í
hlíðinni. Þangað liggja fínar leiðir
fyrir gangandi og hjólándi utan af
Nesi og ofanúr Breiðholti. Þang-
að er umferð greið frá Sundum
» og sunnanað. Ónei, ekkert þar
sem gæti létt af þeirri örtröð sem
stefhir í milli Hólavalla og Þing-
holta og inn með Laugaveginum.
ER ENGIN menning í úthverf-
unum? spurði ringlaður strákur
fyrir fáum ámm sem hafði alið
allan sinn aldur í 101. Getur allt
þetta fólk ekki gert eitthvað þar?
Rétt eins og áhersla hefur verið
lögð á vinabæi, t.d. Vestmann-
aeyjar og Kaupmannahöfn,
mætti leggja áherslu á hverfi.
Efra-Breiðholt býður heim og
- * skartar sínu fegursta. Með þeim
hætti mætti spítta upp hverfavit-
und og um leið kynningu á stök-
um hlutum borgarinnar sem er
að verða svo þanin að menn geta
lifað hér án þess að koma á staði
eins og Vínlandsleið eða Fjall-
konufold.
Hattar Helgu Páls Sýning íÁrbæ Iró-
legheitum og nóg að sjá.
NEMA HVAÐ - langi menn að
skoða huggulegan stað í friði og
ró má fara bara í Árbæjarsafn í
stað Kvosarinnar. Þar verður sýn-
ing á höttum í dag eftir Helgu
nokkra Páls búningakonu með
t meiru. Nei, hvað er ég að segja:
það er útúr. í dag er bara menn-
ing í miðbænum.
Húmmus á Jómfrúnni
Það er að bera í bakkafullan
lækinn en þeir piltar á Jómfrúnni í
Lækjargötu efna enn til tónleika í
dag, eins og þeir hafa gert undan-
farna laugardaga. Að vanda verður
djass á boðstólum fyrir og eftir
smörrebrauð með bjór og snafsi.
Dönsk melta í bland við nýút-
sprunginn djass.
Þetta verða elleftu tónleikar
sumarsins á Jómfrúnni. Það er gít-
arleikarinn Andrés Þór Gunn-
laugsson og hljómsveit hans
Húmmus sem spilar en hana skipa
utan Andrésar þeir Sigurður Flosa-
son á saxófón, Valdimar Kolbeinn
Sigurjónsson á kontrabassa og
Scott McLemore á trommur. Tón-
leikarnir hefjast kl. 16 og standa í
tvær klukkustundir. Leikið verður
utandyra á Jómfrúrtorginu ef
veður leyfir, en annars inni á
staðnum. Aðgangur er ókeypis en
þeir sem vilja kaupa sér bílæti
verða að borga fyrir sig.
Bandið heitir eftir grískum
baunarétti, en það verður heitt á
Jómfrúnni í eftirmiðdaginn.
Fyrir kirkjulistahátíð sem hefst í dag hefur Rúrí, borgarlistamaður Reykjavíkur í ár, sett
saman innsetningar í HaUgrímskirkju: Ljós heimsins - salt jarðar sem munu standa há-
tíðina út. Frítt verður á alla dagskrárliði hátíðarinnar í dag en á morgun verður
Mattheusarpassían eftir Bach flutt í öllu sínu veldi; með tveimur kórum, drengjakór,
tveimur hljómsveitum og sjö einsöngvurum undir stjórn Harðar Áskelssonar.
„Maður grípur bara ekki eitthvað af
lagernum þegar verkefni eins og þetta
býðst“, segir Rúrí um myndlistarverk sín,
tvær innsetningar sem hún var að ljúka
við að setja upp í gær fyrir kirkjulistahá-
tíðina í Hallgrímskirkju. „Hallgrímskirkja
er svo rík af táknum í hugum okkar, ekki
bara trúarlegum, heldur líka full af vísun-
um í samtíma okkar og sögu. Hún var í
upphafi þannig bygging og er líklega eitt
metnaðarfyllsta verkefni í húsagerðarlist
sem Reykvíkingar hafa ráðist í.“
Það hefur verið til siðs á kirkjulistahá-
tíð að kalla til myndlistarmann og fela
honum gerð verka á trúarlegum grunni. Á
þessari tíundu kirkjulistahátíð er ekki að-
eins fordyri kirkjunnar lagt undir innsetn-
ingu sem byggir á orðaklasanum Ljós
heimsins - salt jarðar", heldur gafst Rúrí
tækifæri til að vinna aðra tengda innsetn-
ingu inn í kirkjuskipinu sjálfu. Hún segist
á báðum stöðum vinna með hugmyndina
um kærleikann í tæru formi, en loka-
punktinn á innsetningar sínar í tíma og
rúmi hátíðarinnar setur hún á verkið
þann 27. ágúst með gerningi í kirkjunni
sem hún segir vera viðamikinn og byggja
á fjöltækni. „Verkið umbreytist þá“, segir
hún. .
Kirkjulistahátíð hefst í dag og stendur í
rúma viku. Athygli vekur viðamikil dag-
skrá sem teygir sig inn í flestar listgreinar:
„Mér sýnist þetta vera svolítið kraftaverk",
segir myndlistakonan um umfangið.
Rúrí við uppsetn-
ingu verkanna í
gær Kærleikurinn er
efni innsetninganna
enþærmunuum-
breytast við lok kirkju-
listaviku I gerningi.
Sólveig Hólmarsdóttir leirlistakona opnar sýningu sína hjá Sævari Karli í dag
Fiskar og hvalir með mannsandlit
„Þetta eru hálfgerðir fiskar og
hvalir með mannsandlit búnir aðal-
lega til úr leir og mósaík," segir Sól-
veig Hólmarsdóttir leirlistakona sem
mun opna sýningu sína í Sævari
Karli klukkan 14 í dag. Sólveig út-
skrifaðist úr Escola Massana-listahá-
skólanum í Barcelóna árið 1998 og
hefur haldið sýningar þar og í
Chicago í Bandaríkjunum. Sýning-
arnar hafa fengið mikla athygli enda
er um öðruvísi sýningar að ræða en
verk hennar eru einnig fáanleg í Gall-
erí Fold.
Sólveig er ánægð með sýningar-
aðstöðuna hjá Sævari Karli. Á menn-
ingarnótt í fýrra hafði hún fengið að
sýna verk sín í gluggum verslunar-
innar þar sem salurinn var upptek-
inn. „Eg komst ekki að í fyrra en fékk
salinn núna,“ segir Sólveig ánægð og
bætir við að þetta árið verði sýningin
allt öðruvísi en árið áður en þá sýndi
hún aðallega álfa sem vöktu afar
mikla athygli. „Verkin eru mun
stærri og veglegri og ég er búin að
leggja mikla vinnu í þetta svo það
verður spennandi að sjá við-
brögðin." Sólveig hefur beðið spennt
eftir deginum í dag enda um mikla
menningarhátíð að ræða. „Ég er
búin að ferðast mikið og sjá margt og
get alveg sagt að það eru mjög færir
listamenn á íslandi."
Sýningin hennar Sólveigar verður
opnuð klukkan 14 í dag hjá Sævari
Karli og mun standa í þrjár vikur.
indiana@dv.is
Leirlistakona
Sólveig hefur
ferðast um
allan heim og