Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2005, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST2005
Fréttir DV
Andrésvill
frítt í söfnin
„Til að fá fleiri gesti til
að sækja söfnin hér í Eyjum
væri mjög athugandi að
fella aðgangseyri að þeim
hreinlega niður. Tekjur er
söfnin hafa af aðgangseyri
eru ekki það miklar að
verulegu máli skipti," segir
Andrés Sigmundsson, bæj-
arfulltrúi í Vestmannaeyj-
um, í samtali við fréttavef-
inn Eyjar.net. Andrés ætlar
að leggja til að frá og með
næstu áramótum verði frítt
inn á öll söfn í Eyjum.
Eyjamenn
grilla Hamar
Knattspymufélagið
Hamar á Suðurlandi sem
spilar í þriðju deild jafnaði
óskemmtilegt met þegar
þeir heimsóttu KFS í Vest-
mannaeyjum sl. laugardag.
Leiknum lauk með tólf
mörkum gegn engu, en
Hamar hefur ekki tapað
svona stórt á íslandsmótinu
síðan 1994 þegar þeir töp-
uðu 12-0 fyrir Ármenning-
um. Héraðsfréttablaðið
Sunnlenska greinir frá
leíknum á heimasíðu sinni
og segir Eyjamenn hafa ver-
ið „tvímælalaust sterkari að-
ilinn".
Gísli Marteinn
borgarstjóri?
Egill Helgason
fjölmiOlamaður.
„Erþetta ekki bara ungurog
hress maöur sem gæti komið
góðum hlutum í framkvæmd?
Mér list ágætlega á Gista
Martein sem borgarstjóra.
Hins vegarþekki ég ekki Sjálf-
stæðisflokkinn það vel aö ég
viti hvort hann eigi séns þar.
Ég þori því ekki að spá til um
þetta."
Hann segir / Hún segir
„Það er fáránlegt það sem ég
heyrði að þó maður hafi unn-
ið við dagskrárgerð ísjónvarpi
og sé glaðlyndur þá eigi hann
ekki erindi í pólitík. Þeir eru
nógu leiðinlegir fyrir þessir
stjórnmálamenn. Ég er hins
vegar í tilvistarkreppu þarna
þvf ég vil endilega að Össur
Skarphéðinsson vinur minn
verði borgarstjóri."
Kolbrún Bergþórsdóttir
blaðamaöur.
Bíræfnir þjófar brutust inn á skrifstofu Alnæmissamtakanna og stálu verðmætri
tölvu. Birna Þórðardóttir, framkvæmdastjóri samtakanna, biður þjófana um að
skila tölvunni, segist vilja höfða til samvisku þeirra, þvi samtökin geti ekki boðið
fundarlaun.
Birna Þórðardóttir á vettvangi.
Oft er betra að hafa góða samvisku
en ekki segir framkvæmdastjóri Al-
næmissamtakanna sem biðlar til
þjófa að þeir skili mikilvægri tölvu
sem stolið var.
DV-mynd E. 01.
Birne Þórðar hölðar
til samvisku bjóla
í fyrrinótt var brotist inn hjá Alnæmissamtökunum sem hafa að-
setur á Hverfisgötu 69. Birna Þórðardóttir, framkvæmdastjóri
samtakanna, segir að svo líti út sem þjófarnir hafi vitað ná-
kvæmlega hvers var að leita, því einungis var tekin tölvan en hún
er í raun það mikilvægasta í húsakynnunum.
„Tölva skiptir gríðarlega miklu
máli fyrir starfsemi samtaka eins
og Alnæmissamtakanna. Einungis
turninn var tekinn, ekki til dæmis
skjárinn enda skiptir hann engu
rnáli," segir Birna sem var að von-
um svekkt vegna aðgerða þjóf-
anna. Gluggi var þvingaður upp,
en húsnæðið er tengt Öryggisstöð-
inni. Menn þaðan voru mættir tíu
mínútum síðar en þá voru þjófarn-
ir horfnir af vettvangi. Birna segir
það umhugsunarvert hversu at-
vinnumannslega þjófarnir báru sig
að.
„Nema þeir séu orðnir svona
klárir og viti hvert eigi að hlaupa til
að ná í eitthvað mikilvægt."
Ótrúleg tilviljun
Bima segir það sérkennilega til-
viljun að í nýjasta hefti tímaritsins
Séð og heyrt birtist mynd af henni
þar sem hún stendur fyrir framan
téðan turn. Birna segir jafnframt að
inni á tölvunni séu engar persónu-
„Tölva skiptir gríðar-
lega miklu máli fyrir
starfsemi samtaka
eins og Alnæmissam-
takanna. Einungis
turninn var tekinn,
ekki til dæmis skjár-
inn enda skiptir hann
engu máli."
upplýsingar né neitt slíkt sem ekki
megi fara út. Hins vegar eru þarna
vinnuupplýsingar til dæmis varð-
andi fræðslu og forvarnarverkefni
sem Alnæmissamtökin hafa verið
að vinna að í grunnskólum lands-
ins.
Biðlar til þjófanna
Missirinn er því mikill fyrir Al-
næmissamtökin sem fæstir ímynda
sér að séu skotmark bíræfinna
þjófa. „Þetta er mjög slæmt og
skemmir mikið fyrir því starfi sem
fram hefur farið og er á döfinni. Við
viljum höfða til samvisku þjófanna
og biðja þá vinsamlegast um að
skila þessu enda nýtist þessi tölva
engum nema okkur." Þá tekur
Birna það fram að Alnæmissam-
tökin séu ekki í aðstöðu til að bjóða
fundarlaun. „En oft er betra að hafa
góða samvisku en ekki."
jakob@dv.is
Þótti álagið of mikið og launin of lág. Lausn náðist á starfsmannafundi.
Starfsmenn Landflutninga hótuðu að leggja niðurvinnu
Starfsmenn í Landflutningadeild
hjá Landflutningum Samskip í
Reykjavík hugðust leggja niður
vinnu klukkan 17 í gær til að mót-
mæla undirmönnun og auknu álagi
á vinnustaðnum og því að ekki væri
komið til móts við launakröfur
þeirra. Eftir að DV komst á snoðir
um málið var haldinn starfsmanna-
fundur hjá Landflutningum Sam-
skip þar sem fundin var tímabundin
lausn á deilunni.
Aukið álag á starfsfólk Landflutn-
inga Samskip í Reykjavík varð til
þess í gær að starfsfólk landflutn-
ingadeildar fyrirtækisins hugðist
leggja niður vinnu klukkan 17 í mót-
mælaskyni. Starfsfólkið ætlaði að
hverfa frá vinnu að loknum mesta
álagstíma dagsins, án þess að ganga
frá eftir daginn. Eftir að DV komst á
snóðir um aðgerðirnar var haldinn
fundur með starfsfólki þar sem
fundin var tímabundin lausn á
vandamálinu.
„Það voru sautján starfsmenn
hérna í sumar en nú erum við ekki
nema átta", sagði starfsmaður land-
flutningadeildarinnar sem ætlaði
ásamt samstarfsfólki sínu að ganga
út á slaginu 17 til að mótmæla
manneklu og miklu álagi. Hann vildi
að fyrirtækið brygðist við með því að
ráða fleira fólk eða hækka laun
þeirra sem fyrir eru. „Auknu álagi
eiga að fylgja hærri laun og það
þurfa að koma til launahækkanir til
þess að hægt sé að manna allar stöð-
ur í þjóðfélaginu."
fris Magnúsdóttir hjá Landflutn-
ingum Samskip vildi ekki gefa upp í
hverju lausn vandans væri fólgin, en
sagði að hér væri aðeins um tíma-
bundið vandamál að ræða. Hún
sagði að auknar mannaráðningar
væru í vinnslu innan fyrirtækisins og
að gott hljóð hefði verið í starfsfólki
eftir fundinn.
Motuou ao leggja niður vinnu
Starfsmenn Landflutninga höfðu
fengið sig fullsadda afofmiklu
áiagi og oflágum launum.