Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2005, Síða 40
i—1 s i t I i
Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrirhvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
^iafnleyndar er gætt. «-* *-• q <-j fj r) (J
SKAFTAHLÍÐ24, lOSREYKJAVÍK [STOFNAÐ 1910] SÍMISS05000
690710 111117'
• Gamli
Samúelref-
urinn Þór-
arinnj.
Magnús-
son var
fenginn til
að koma
bOGb út
eftir að
Bjöm Jör-
undur yfir-
gaf tímarit-
ið. Þórar-
inn hefur hins vegar lítt sést í
húsum Fróða uppi á Höfða og
heyrir DV því spáð að tímaritið,
sem var einkum stílað á karl-
menn, verði lagt niður í núver-
andi mynd og jafnvel að Bleikt
og blátt verði reist úr öskustó...
Baltasar Kormákur í flokki með
i, Pollack og Turturro
Little Trip to Heaven tilbúin
Gaudeamus igitur!
/
„Ég hef það bara fínt. Er héma úti í Danmörku
að horfa á bíó. Það gæti verið erfiðara lífið,“ segir
Baltasar Kormákur, sem nú hefur lokið við að
klippa mynd sína Little Trip to Heaven. Þegar
blaðamaður DV náði af honum tali var Baltasar
staddur úti í Danmörku eins og áður sagði, en hann
er í dómnefnd í tengslum við kvikmyndahátíð sem
Danir halda árlega.
Baltasar klippti Little Trip to Heaven úti í Los
Angeles og naut fulltingis tveggja heimsþekktra
klippara, þeirra Richards Pearson og Virgimu Cats.
Bæði hafa þau komið að gerð fjölda heimsþekktra
kvikmynda, sem of langt mál er að telja upp hér.
Ákveðið hefúr verið að fiumsýna Little Trip to
Heaven á kvikmyndahátíðinni í Toronto sem hefst
8. september. Baltasar segir það einfaldlega bestu
hátíð í heiminum sé horft til sölumöguleika. „Ég var
einmitt að fá um það skilaboð í gær að ég væri í
flokki með Roman Polanski, Sidney Pollack og John
Turturro sem allir ætla að frumsýna sínar myndir
þar og þá," segir Baltasar. Hann telur það segja Bjöm Hlynur
mest um það hvers vegna hann hefur afráðið að mun fara með
frumsýna Little Trip to Heaven í Toronto. „Já, þetta hlutverk Péturs
er ekki slæmur hópur að vera í. Þessi tiltekni flokk- Gauts og
ur heitir Special Presentation, en þess má geta að fetar þar í
það var einmitt í þeim flokki sem Hotel Rwanda og fótspor
Sideways vom fnimsýndar á sínum tíma.“ Gunnars
Baltasar Kormákur hefur orðið var við mikinn Eyjólfs-
áhuga á mynd sinni, en í henni leika aðalhlutverk sonar og
Jufia Stiles og Forest Wlútaker. Baltasar vill ekki láta Ingvars E.
uppi hvenær myndin verður sýnd á íslandi, segist í Sigurðs
hálfkæringi vera svo hræddur við íslendinga og sé sonar.
jaíhvel að velta því fyrir sér að sleppa því að sýna
myndina hér. Þá vill Baltasar ekki upplýsa um
næstu kvikmyndaverkefni. Er með nokkur áfitleg
tilboð upp á vasann, en vill helst ekki verja jólunum
í að svara spurningum um hvort þetta eða hitt verði
eða verði ekki. Hins vegar er fyrirliggjandi að
Baltasar mun stýra sýningu Þjóðleikhússins á Pétri
Gauti, en frumsýning verður á komandi leikári.
Baltasar Kormákur i góðum fé-
lagsskap Little Trip to Heaven verður \
frumsýnd á kvikmyndahátlð íToronto
íseptember, en þeir sem eiga myndir i
flokki með Balta eru Polanski, Pollack
og Turtorro.
Helgi Hjörvar útskrifaður
Helgi Hjörvar al-
þingismaður er
kominn heim frá
Bandaríkjunum, en
eins og sagt hefur
verið frá í DV settist
hann á skólabekk í
sumar. Hann kallar
þetta
sjálfur
„sum-
Helgi Hjörvar
R-listinn sprakk í
fjarveru hans.
! arnámskeið" og út-
skrifaðist fyrir stuttu
eins og lesa má á
heimasíðu hans
Helgi.is. „Það er
svona tvíbent til-
finning að útskrif-
ast,“ sagði hann í
samtali við DV í gær.
„Það eru mikil for-
réttindi að fá að fara í
skóla aftur og þetta
var ógurlega gaman.“
En á meðan Helgi
var úti sprakk R-list-
inn, en Helgi var sem
kunnugt er einn af stofnendum
hans. Hann er þó ekki dapur yfir
þessu: „Nei, mér fannst betra að
vera ekki viðstaddur á meðan þetta
var í gangi og ég syrgi ekki R-listann.
Ég hafði auðvitað sterkar taugar til
hans í byrjun en þetta var fyrir
bestu. Við sköpum eitthvað enn
betra núna,“ sagði Helgi.
Lögregluútkall vegna
víkinga
Vegfarandi hafði samband við
lögreglu í Hafnarfirði á mánudag-
inn og sagðist hafa séð vígalegan
mann með hníf og öxi í hönd á
-iv Víðistaðatúni. Lögreglan fór á stað-
inn, en þegar að var gáð reyndist
þessi maður vera í hópi víkinga
sem voru að æfa sig. Þeir héldu æf-
ingunum áfram eftir stutt spjall við
lögreglu. í spjalli á vef Víkurfrétta
kemur fram að víkingarnir æfðu sig
jafnan á mánudögum og þar sem
veður var gott ákváðu þeir að vera
úti við æfingarnar.
Davíð Bjarni Heiðarsson hikaði
nú við að tjá sig við DV í fyrstu og
sagði þetta tóman misskilning.
„Það sá okkur einhver og varð
skelkaður, en við vorum auðvitað
bara að æfa okkur og meiðum eng-
an. „Hann segir að þetta hafi engin
áhrif á æfingar utandyra í framtíð-
inni. „Nei, við njótum mikillar vel-
vildar hjá lögreglunni og þeir skilja
að við þurfum að æfa okkur. Við
ætlum að æfa úti áfram þegar veðr-
ið gott. Við höfum ekkert að fela,“
sagði víkingurinn Davíð.
Námsmannaþjónustu Sparisjóðsins
Þeir sem skrá sig í þjónustuna fyrir 1. október eiga möguleika á skemmtilegum glaðningi:
s
spv.is
Ferð fyrir tvo með Plúsferðum og gjaldeyrir
frá Sparisjóðnum
Glæsileg Acer fartölva frá Svar tækni
Sími 575 4100
Raftingferðir með Ævintýraferðum
Nokia 3200 farsímar ásamt inneign hjá Og Vodafone
Bíómiðar hjá Sambíóunum
Námsmannaþjónusta Sparlsjóðsins
~ alltaf að læra!