Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2005, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2005, Síða 29
DV Ástogsamlíf FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST2005 29 Móðurástin skaðar hjónabandið Það er vlst til faraldursem gengur undir nafninu „mommy madness" eftir þvísem höfundurinn Judith Warner greinir frá í bókinni Perfect Madness: Motherhood in the Age ofAnxiety. Höfundurinn vill meina að þær kröfur sem gerðar eru á konur í nútímasam- félagi séu óraunhæfar og viðleitni þeirra til að verða fullkomnar mæður skaði hjóna- og fyrirvinnur sé í raun að splundra bönd og hvað sambanda. Algengt sé að þær sé til ráða. verði svo helteknar af ást til barna sinna að þær hafi enga orku eft- ir til að veita í ástar- sambönd eða kynlíf.t bók sinni segist hún kanna hvernig þessi fullkomunarþrá ■----■ Perfect Madness \Qöldas Móðurástin skaðleg? Samkvæmt nýrri bók eyða konur ofmikilli orku í að elska börnin sfn. Skemmtilega kaldhæðið lag „Ég myndi segja að það væri lagið K Dress sexy at my funeral með hljóm sveitinni Smog," segir söngvarinn Heiðar örn Kristjánsson sem oft er kenndur við hljómsveitina Botnleðju. „Þetta er skemmtilega kaldhæðið lag sem er í miklu uppáhaldi hjá mér og . konunni minni." Náttúran notuð tii skreytinga „Fólk er farið að reyna mikið meira fyrir sér en það gerðisegir Dóra Ósk Bragadóttir sem haldið hefur úti heimasíðunni brud- kaupsvefur.is um langt skeið við miklar vin- sældir. Á síð- unni má finna mikinn fróðleik um hverskyns skreytingar og þemu í brúðkaup- um enda segist Dóra vera mikil áhugamann- eskja um þessi mál. Hún telur að með haustinu verði mikið um að fólk noti græna tóna, svo sem dökk- og mosagrænt í skreyt- ingar en dökkórans komi einnig mjög sterkur inn. „Hárauður hefur verið mjög í tísku í sumar og ég hugsa að hann haldi sér vel áfram enda hæfir hann brúðkaupum mjög vel. Bleikur hefur lengi loðað við brúðkaup en undanfarið hefur þó dregið úr því að fólk noti hann og það á ábyggilega eftir að halda áfram með haustinu. Ég hef samt séð fólk nota bleikan lit og órans saman við skreytingar en það kemur mjög skemmtilega út," seg- ir Dóra og greinilegs áhuga gætir í rödd hennar þegar þessi mál eru rædd. Hún mælir með því að fólk noti liti haustsins við skreytingarn- ar. Það sé um að gera að skella sér út í náttúr- una og týna lauf, mosa, lyng og köngla því brúnleitir tónar nátt- úrunnar fari vel í skreyt- ingum um haust og vetur. „Þetta má svo allt saman þurrka og nýta síðar en ef stutt er í daginn mikla er um að gera að nota reyniberin til að skreyta með,“ segir Dóra en eins og vegfarendur hafa væntanlega tekið eftir eru þessi fallegu ber nú að taka á sig eldrauðan og rómantískan lit sem ástfangnir ættu endilega að nýta sér til að skapa aukna stemningu og fegurð í veislunni. Léttir og þýðir vendir „Undanfarið hefur mér fundist langmest um að fólk panti sér kúluvendi fyrir brúðkaupið," úrulegar skreytingar Dóra Ósk hefur mikinn áhuga á brúðkaupum og á heimasiðu hennar má finna fjölda góðra hugmynda. Óhefðbundnir kjólar vinsælli en aður Ingibjörg Gestsdóttir fatahönn- uöur i Pelli og purpura telur að heldur hafi dregið úr þvi að konur gifti sig í hefðbundnum „rjómatertukjólum". segir Jóhanna Hilmarsdóttir skreytingameistari í Garðheim- um. Hún segir að lítið sé um að fólk vilji hafa þá þétta, eins og lengi var vinsælt, heldur eigi vendirnir að vera léttir og þýðir. Mikið sé um hangandi strá og bergfléttu og annað í þeim dúr. „Litirnir eru mildir og róman- tískir. Þó er alltaf fólk inn á milli sem er óhrætt við að nota sinn eigin stfl en það biður þá um óhefðbundin form og liti,“ segir Jóhanna en hún telur alltaf gam- an að fást við sérstakar óskir fólks. „Mér finnst mjög flott þegar fólk tekur sínar eigin ákvarðanir og setur sinni eigin stfl á það sem það er að gera.“ 33 frá ýmsum löndum heimili brúðhjónanna sjálfra. England Sú þekkta hefð að blómastúlka gangi inn kirkjugólfá undan brúðinni dreif- andi blómum eða rósablöðum er gamall siður frá því þegar brúðurin gekk til kirkju með fylgdarmeyjum sínum.Á undan þeim gekkalltafung stúlka sem dreifði krónublöðum blóma eftir götunni svo að leið brúð- arinnarí gegnum lífið myndi verða hamingjuríkt og blómum hlaðið. Frakkland Að geyma bolla með tveimur höldum sem kallast„coup de marriage" er fal- legur siðurfrá Frakklandi. Bollinn var geymdur fyrir næstu kynslóð og svo koll afkolli. Auðvitað er það gamall og góður siður að drekka skál hvors ann- ars en bollinn með tveimur höldum gefur brúðkaupum I dag sérstakan sjarma. Erfítt hefur reynst að fá þessa bolla um tíma,bar til nýlega.Að drekka úrsama bolla táknar samlyndi. Holland Brúðhjónin sátu ílok athafnarinnar undir himnasæng úr ilmandi sígræn- um plöntum sem tákna„ævarandi ást“, til að taka á móti heillaóskum og gjöfum gestanna. frland Fyrir utan græna kirkjugólfsdregilinn sem rík hefð er fyrir á Irlandi, þá gæti verið að þú vildir íhuga að hafa hina hefðbundnu írsku brúðartertu. Hún er ekki þessi væmna týpiska brúðarterta heldurerhún ávaxtakaka sem inni- heldur rúsínur, möndlur, kirsuber og krydd. Japan Brúðhjón í Japan fá sér níu sopa af sake og verða eiginmaður og eigin- kona eftir fyrsta sopann. Þau sitja sitt hvorum megin við boröið, horfa beint f augu hvors annars, fá sér sopa á sama augnabliki og gæta þess afar vel að leggja frá sér bollann á borðið á ná- kvæmlega sama augnabliki. Þetta hef- ur þann tilgang að koma í veg fyrir að annað deyi á undan hinu. Hefðin segir nefnilega að það þeirra sem leggur bollann fyrst á borðið deyi á undan. Rúmenia I stað þess að kasta hrísgrjónum yfír brúðhjónin erþau hverfa á brott úr brúðkaupinu, kasta rúmenskir gestir sælgæti og hnetum yfír brúðhjónin um leið og þau yfírgefa brúðkaupið. Svolít- ið frábrugðið þeim sið er viða tíðkast í dag er að kasta fuglafræi. Tékkland Að móðir eða amma brúðarinnar útbúi krans úr rósmaríni er aldagömul hefð ísveitabrúðkaupum. Enn í dag eru kransar fléttaðir úr brúðarslöri og smárósum sem brúðurin jafntsem brúðarmeyjarnar og blómastúlkan bera á höfði sér. Fleiri siði frá fleiri löndum má fínna á heimasíðunni brudskaupsvefur.is. y Ifj verstu U mistök kvennaí samhömhim Þúleggurlíf þittíhans hendur Auðvitað er æskilegt að þú treystir maka þínum en eng- inn nema þú ættirað bera ábyrgð á lífí þínu. Fjöldi kvenna virðist ávallt finna afsökun fyrir slæmri hegðun maka sinna. Þessar sömu konur verða alltafjafn hissa þegar þær fá afdráttarlausa sönn- un fyrirþví að maðurinn erskíthæll sem er tilbúinn að hirða allt af þeim. Berðu virðingu fyrirsjálfri þér, við veljum okkur ekki maka út frá því hve góður hann getur stundum verið við þig. Þú heldur að þú þekkir hann ' Það er nú einu sinni þannig að kynin eru mjög ólik og jafnvel þó að við teljum okkur vita allt um lund- arfar þess sem við elskum er því sjaldnast þannig farið. Ekki draga ályktanir heldur skaltu leyfa honum að tjá sig. Þú þykist vera einhver önnuren þú ert Það kann ekki góðri lukku aö stýra að reyna að þykjast vera einhver önnur en þú ert í raun og veru til þess eins að ganga í aug- un á einhverjum. Það kemst alltaf upp um gerfíð eftir smá stund með þeim afleiðingum að viðkomandi verður ansi hall- ærislegur fyrir vikið. Vertu þú sjálfog ekki reyna að slá um þig með einhverjum klisjum. Þú tjáir tilfinningar þína of snemma Á stefnumótum áttu ekki að tjá til- finningar þínar, heldur áttu að kynnast manneskjunni sem þú ert að hitta. Það vill enginn láta neyða sig í hlutverk sálfræöings í tilhuga- llfínu. Þú skalt heldur prófa að hlusta á þann sem þú ert að hitta og velta því fyrir þér hvort þetta sé sá sem þú hefur verið að leita að. Þú verður sannfærð um að sam- bandið veiti þér hamingju Þú átt sjálfað gera lífþitt áhuga- vert en ekki treysta á að einhver annargeri þaö fyrir þig. Þó karl- menn hafí löngum verið taldir sterkara kynið hafa þeir sjaldnast áhuga á þvl að fara að vernda og hjápa konu I nauöum rétt eftir að hann hefur kynnst henni. Bíddu með að segja honum frá því hvað hann er með ótrúlega stóra og flotta vöðva, sem geta verndaö þig frá öllu illu og ekki fara í dúllu- krúttuleik opg flissa heimskulega si og æ. Viltu virkilega að hann fái á tilfinninguna að hann verði að hugsa fyrirykkir bæði það sem eft- ir lifír sam bandsins?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.