Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2005, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2005, Blaðsíða 15
DV Fréttir FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST2005 15 Google Earth Yfirmenn Google kynna Google I Earth fyrír heiminum. Þar er hægt að skoða jörðina með mikilli nákvæmni. Stofnendurnir Sergey Brín og Larry Page eru orðnir goð- s agnakenndar persónur. Þeir I stofnuðu Google árið 1998. Keypti geímferð Bandaríski auðkýfingur- inn Gregory Olsen er kátur þessa dagana. Hann er staddur í Rússlandi að und- irbúa sig fyrir geimferð. Hann er þriðji geimtúrist- inn á eftir Bandaríkja- manninum Dennis Tito og Suður-Afríkubúanum Mark Shuttleworth. Þeir hafa allir skipt við fyrirtækið Space Adventures, sem gerði samning við rússnesku geimferðastofnunina um að flytja ijóra farþega í al- þjóðlegu geimstöðina fyrir 2007. Syntá Svalbarða Breski langsundskapp- inn Lewis Gordon Pugh setti heimsmet þegar hann stakk sér tvisvar til sunds við Svalbarða í síðustu viku. Fyrra sundið var við- urkennt sem fyrsta langsundið í heimskauts- hafi og það seinna sem nýtt met. Davíð og Golíat Gömtil bóndakona ógn- aði óeirðarlögreglu með steinhnullungi í mótmæl- um í Suður-Mexíkó í gær. Hundruðir bænda mót- mæltu áætlunum ríkis- stjórnarinnar um að byggja risastíflu og virkjun í Guer- rero-héraði. Rúmlega fimmtíu létust í flugslysi í Perú í fyrradag Mikill eldur Slökkviliðsmenn fikra sig nær flugvélarflakinu tii að reyna að slökkva eldinn og bjarga eftirlifendum. Fjórða flugslysið í ágúst Bjargað úr brak- inu Einn þeirra sem lifði flugslysið afer færður úr brakinu og undir læknishendur. Á þriðjudaginn fórst Boeing 737- 200 í norðausturhluta Perú, ekki langt frá Amazon-frumskóginum. Þetta er fjórða flugvélin með hund- rað farþega eða fleiri sem ferst þessum mánuði. í vélinni voru 100 farþegar og fórust 48. Vélin tók á loft í Lima, höfuðborg Perú, en lenti fljótlega í stormi og fórst. Síðast varð alvarlegt flugslys í Perú í janúar 2003. Þá létust 42. Fyrsta slysið í ágúst í ár varð í Toronto í Kanada þegar Air France- flugvél rann út af flugbraut í Kanada. Enginn fórst. Annað slysið var þegar flugvél frá Helios-flugfélaginu fórst í Grikklandi. 121 lést. Þriðja slys mán- aðarins varð í Venesúela, rétt við landamæri Kólumbíu. 152 létust. Ásatrúarfélagið Auka Allherjarþing laugardaginn 109. September 2005 kl. 14:00. Ásatrúarfélagið boðar til auka Allherjarþings í hús- næði félagsins að Grandagarði 8, Reykjavík Laugar- daginn 10. September n.k., en eina málið á dagskrá verður öflun samþykkis fundarins á sölu félagsins að Granagarði 8, Reykjavík. Reykjavík 25. ágúst 2005 F.h. Lögréttu lögsögumaður

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.