Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2005, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST2005
Sport DV
,Við leikmennirnir spáum
Við leikmenrt
Björgvin Páll Segir
óheppni vera ástæðuna
fyrir hrakförum Islenska
liðsins i Ungverjalandi.
Viggó Sigurðsson
aðnáþví markmiðis
liðinu fyrir mótið.
Ferrari á
niðurletð
Michael Schumacher segir að
lið Ferrari hali vcrið að síga aftur
úi' oðrum liðum í Formúlu 1 að
undanfömu og segist iifar dapur
ytir árangurslausum tilraunum
liösins til aö vinna sig upp (Tyrk-
landskappakstrinum um síðustu
Iielgi. „1 stað þess að taka skref
fram á við og bæta okkur
“■P eins og við gerðum í Búdá-
Æ, 'pest og á Hochenheim
x-^7/ vr- tókum við skref til
' baka í Tyrklandi,“
sagði heimsmeistar-
inn. „Ég hef gefið upp
' alla von fyrir hönd liös-
. ins um að ná árangri í
\ keppni ökumanna eða
bílasmiða og það þykir
f mér dapurlegt. Það eina
’ sem við gemm gert
núna er að spýta í Iófana
og reyna að ná þokka-
legri stöðu í stigakeppn-
inni þegar tímabilið
kiárast,“ sagði Schu-
1 macher, sem væntan-
' lega þarf brátt að sjá á
eftir titli sínum til hins tmga Fem-
ando Alonso hjá Renault. sem hef-
ur ekið eins og höfðingi allt tíma-
bilið.
Savage er
ftilmenni
Sænski landsliðsmaðurinn Erik
Fdman hjá Tottenham Hotspur
gat ekki stillt sig um að senda
miðjumanninum Robbie Savage
smáskot fyrtr leik Tottenliam og
Biackbum í ensku ún'alsdeiklinní
í gærkvöldi. „Robbie Savage held-
ur að hann sé rosalega harður leik-
inaður, en það er hann ekki, hann
er bara mddi með stóran kjaft og
glómlausar tæklingar. Hann er án
efa mesta fúlmenni sem ég hef
leikið gegn á ferlinum," sagði sá
sænski. „Við höfum sérstakt orð
yfir haröa leikmenn í Sviþjóð og
Robbie Savage er svo sannarlega
ekki maður sem kemur upp í hug-
ann þegar ég heyri þaö orð. Roy
Keane er aftur á móti slíkur ieik-
maður og hann þarf ekki að fá
rauð spjöld til að bakka það upp
eins og vitleysingar eins
fW^ og Robbie Savage,"
§ y sagði Edman.
Dennis Rodman er líklega skrautlegasti leikmaðurinn í sögu
NBA-deildarinnar, en hann lagði skóna endanlega á hilluna fyr-
ir fimm árum síðan. Nú virðist sem furðufuglinum sé farið að
leiðast, því hann hefur undirritað samning um að spila einn leik
fyrir fínnska liðið Torpan Pojat í Helsinki í nóvember.
Finnamir em skiljanlega yfir sig
ánægðir með uppátækið, sem þeir
hafa hugsað sem auglýsingu fyrir
þarlendan körfuknattleik, og búast
að sjálfsögðu við húsfylli í skauta-
höll sinni í nóvember næstkom-
andi.
Búast við fullu húsi
Hæfileikar Dennis Rodman á
körfuboltavellinum féllu gjaman í
skuggann af ótrúlegum uppátækj-
um hans utan vallar þegar hann lék
í NBA-deildinni á sínum tíma, en
hann vann á sínum tíma fjölda
meistaratitla og var kosinn varnar-
maður ársins oftar en einu sinni.
Fáir menn í sögu körfuboltans hafa
tekið annað eins magn af fráköst-
um og Dennis Rodman, sem auk
þessa var ætíð duglegur við að
koma sér í fréttirnar vegna uppá-
tækja sinna.
„Samningur Rodmans hljóðar
að vísu bara upp á einn leik, en í
þeim leik verður hann að spila í það
minnsta 15 mínútur," ságði tals-
maður flnnska liðsins. „Þetta verð-
ur vafalítið frábært kvöld og ég held
að það verði mikil lyftistöng fyrir
finnskan körfubolta," sagði Alexi
Valavouri, framkvæmdastjóri Torp-
an Pojat, eða ToPo eins og liðið er
jafnan kallað. Skautahöllin tekur
um 9000 manns í sæti og ekki er bú-
ist við að erfitt reynist að fylla höll-
ina umrætt kvöld í nóvember, því
Rodman hefur verið iðinn við að
koma sér í fréttirnar undanfarið.
Gleymdi að borga
Nú fyrir stuttu slapp kappinn
naumlega fyrir horn þegar hann var
kærður fýrir að greiða ekki fyrir
eldsneyti á Lamborghini-bifreið
sína á bensínstöð í Colorado-fylki í
Bandaríkjunum. Þar stansaði Rod-
man til að fylla á tankinn þegar
hann keppti í góðgerðarralli yfir
fylkið og gleymdi að borga fyrir
bensínið og forláta kúrekahatt sem
hann gekk út með á höfðinu. Auk
ekki verði nema í 15 mínútur.
Sirkusinn kemur til Helskinki
þess að gleyma
að greiða fyrir
varninginn fékk
Rodman fjölda
gáleysis- og
hraðasekta, en
slapp fyrir horn
undan kæru fyrir
uppátækið þegar
dyggur aðdáandi
hans í bænum
bauðst til að
greiða allan
kostnað gegn því
að ákærur á hend-
ur Rodman yrðu
felldar niður. Það má
því fastlega búast
við að áhorfendur
verði ekki sviknir í
skautahöllinni finnsku
í nóvember. baldur@dv.is
Fyrirbærið og körfuknattleiksmaðurinn Dennis Rodman er enn í
fréttunum og nú hefur hann ákveðið að taka fram skóna á ný, þótt
Alltaf flottur Dennis Rodman gerir
allt vitlaust i Finnlandi í haust.
hiordic Photos/Getty
Formaður Handknattleikssambands íslands segir að stjórn sambandsins muni hitta
þjálfara og leikmenn íslenska landsliðsins í handbolta, skipuðu leikmönnum 21 árs og
yngri, til að komast að ástæðunni fyrir slökum árangri liðsins á HM í Ungverjalandi.
HSÍ mun leíta skýr
slökum árannri a1
„Við vorum með meiri væntingar, það er ljóst. Liðið er ekki að ná
þeim árangri sem búist var við,“ segir Guðmundur Ingvarsson,
formaður HSÍ, um framgöngu íslenska landsliðsins í handknatt-
leik, skipuðu leikmönnum 21 árs og yngri, sem hefur ekki riðið
feitum hesti frá leikjum á HM í Ungverjalandi sem fram fer um
þessar mundir. Nú er ljóst að liðið mun ekki lenda ofar en í 9.
sæti, sem er langt frá verðlaunasætinu sem þjálfarinn Viggó Sig-
urðsson stefndi á fyrir mótið og átti að heita raunhæft markmið.
„Við munum fara yfir málin þeg-
ar heim er komið með leikmönnum
og þjálfurum og ræða ástæðuna fyr-
ir því að ekki náðist betri árangur,"
segir Guðmundur ennfremur. Að-
spurður hvort dólgslæti Viggós um
borð í flugvél á leið heim frá æfinga-
móti liðsins um mánaðamótin hafi
haft áhrif á leikmenn liðsins kvaðst
Guðmundur ekki geta dæmt um
það.
„Það væri mikil einföldun að
tengja
þetta slaka gengi við þennan eina
atburð," segir Guðmundur „En ég
neita því ekki að þessi atburður
skiptir máli. Við munum fara yfir
stöðuna þegar mótinu er lokið."
Viggó hefur ekkert breyst
Á téðu æfingamóti var íslenska
liðið mun öflugra og náði meðal
annars jafntefli gegn Dönum, sem
liðið síðan tapaði fyrir á HM í fýrra-
dag með átta marka mun. Björgvin
Páll Gústavsson, markvörður ís-
lenska liðsins, segist ekki hafa skýr-
ingar á því hvað sé að í herbúðum ís-
lenska liðsins en vill þó ekki tengja
árangurinn við hina neikvæðu um-
ræðu sem skapaðist í kjölfar hegð
unar Viggós.
ekkert í þessa hluti. Þetta er eitthvað
sem er á milli HSÍ og Viggós," segir
Björgvin og bætir því við að hefð-
bundið atferli og fas Viggós sem
þjálfara hafi ekkert breyst í kjölfar
atviksins í flugvélinni. „Hann er
sami harðjaxlinn," segir Björgvin.
Heppnin er ekki til staðar
Björgvin segir að árangur ís-
lenska liðsins sé langt frá því sem
leikmenn liðsins ætluðu sér. „Þann-
ig að það gefur augaleið að við erum
mjög ósáttir við okkur sjálfa," segir
Björgvin. „Við höfum lent í slæmum
leikköflum í nánast öllum leikjunum
á mótinu þar sem við gerum allt vit-
laust og köstum boltanum bara nán-
ast útaf. Og það er engum nema
sjálfum okkar að kenna.
Við reynum að hugsa sem minnst
um það sem búið er og einbeitum
okkur nú að því að klára mótið með
sæmd," segir Björgvin en íslenska
liðið mætir S.-Kóreu í dag í leik sem
sker úr um hvort liðið fær að leika
um 9. sætið á mót-
inu. Fari svo
að
„Það væri mikil
einföldun að tengja
þetta slaka gengi við
þennan eina atburð."
íslenska liðið tapi mun það spila um
11. sætið á mótinu.
Björgvin, sem eins og flestir aðrir
leikmenn U-21 árs liðsins, var hluti
af hópnum sem varð Evrópumeist-
ari U-18 ára landsliða fýrir tveimur
árum, vill ekki meina að miklar
væntingar fýrir mótið hafi lagt
aukna pressu á leikmenn liðsins -
pressu sem þeir virðast ekki hafa
ráðið við.
„Mesti munurinn á liðinu nú og á
EM fýrir tveimur árum felst í því að
þá var heppnin með okkur í leikjun-
um. Nú er hún á móti okkur."
vignir@dv.is
irmrspaum
ekkertíþessa
hluti. Þetta \
wjj^ er á milli
HSÍ og
- % Viggós.
Guðmundur Ingvarsson
Ætlarað funda með fulltrúum
landsliðsins eftir heimkomu.