Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2005, Page 17
I
DV Sport
FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST2005 17
Villa áfryjar
spjaldi Solano
Brottvísanir í byrjun tímabilsins
( ensku úrvalsdeildinni í ár hafa
verið mikið í fréttum undanfama
daga og í gær afréð Aston Vllla að
áfrýja rauða spjaldinu sem Nol-
berto Solano fékk í leiknum við
Portsmouth í fýrrakvöld, fyrir að
slá til andstæðings. Áður höfðu
nokkrir leikmenn fengið brottvís-
anir sínar dregnar til baka á þess-
um forsendum og því segir Ðavid
O’Leary að Villa rnuni reyna að fara
sömu leið, því spjaldið sem Solano
fékk hafi verið algjörlega út f hött.
„Nobby er ekki grófúr leikmaður
og það vita allir. ílann danglaði
hendinni utan í þennan stóra leik-
mann sem kastaði
sér niður eins
'v og hann
i hefði verið
skotínn."
sagði
0'^ar>-se™
« sagðist ekki
/ ~ ;geta verið án
; Solano í þá
þxjá leiki sem
hann verður í
banni ef dómurinn
stendur.
Lee tíl
Tottenham
Suður-Kóreumaöurinn Lee
Young-Pvo er við það að ganga f
raðir Tottenham Hotspur frá PSV
Lindhoven f Hollandi. Lee mun
kosta Lundúnaliðið um eina og
hálfa milljón punda, en ákvæði í
samningi hans hjá hollenska Iið-
inu gerir það að verkum að hann
getur losnað fyrir ekki hærri ljár-
hæö. Tottenham hefur veriö á
höttunum eftir vinstri bakverði í
nokkurn líma, en gangi þessi við-
skipti eftir verður það ekki í fyrsta
sinn sem Iiðið nælir sér í leikmann
án þess að fjölmiðlar komist að
því. Þrálátur orðrómur hefur verið
uppi síðustu vikur um hugsanleg
framherjakaup Tottenham, en
liðið er á eftii- fiamherjanum Dirk
Kuyt hjá Feyenoord. HoIIenska
liðið vill fá 12 milljónir punda lyrir
Kuyt, en enska liðið hefur ekki
boðið meira en 9 milljónir f hann
enn sem komið er.
Bruce á
bömmer
Steve Bruce hefur viðurkennt
að hafa aldrei verið eins dapur yfir
gengi Birmingham og nú f upphafi
leiktíðar, en lið hans tapaði í fyrra-
kvöld öðrum leiknum í röð á
heimavelli. „Þetta var hrikalega
döpur frammistaða hjá leikmönn-
unum, sannkaUaður hryUingur, ef
ég á að vera hreinskUinn," sagði
Bruce um 3-0 tapið fyrir Boro, en
áhorfendur bauluðu á lið Birming-
ham þegar það gekk Iúpulegt af
velJi. „Ég verð samt að axla stóran
hluta af ábyrgðinni sjálfur. Það er í
mínum verkahring að koma liðinu
í stand fyrir svona leUci og ég virð-
ist ekki hafa staðið mig sérstaklega
vel í þetta skiptið. Tímabilið er þó
enn ungt og það er enn nægur tími
til að snúa dæminu
við," sagði Bruce.
Dálkahöfundur hjá dagblaðinu The Belfast Telegraph varar leikmenn Linfield sér-
staklega við Gunnari Heiðari Þorvaldssyni, leikmanni Halmstad í Svíþjóð, en liðin
mætast á Norður-írlandi í kvöld í síðari leik þeirra í forkeppni UEFA-bikarsins.
Hann segir Gunnar Heiðar sjóðandi heitan um þessar mundir.
Passið ykkur
Gunm 1H
Dálkahöfundurinn Roy Kitson hjá The Belfast Telegraph varar leikmenn Lin-
field við íslenska framherjanum Gunnari Heiðari Þorvaldssyni en lið hans
Halmstad mætir norðurírska félaginu Linfield í síðari leik liðanna í annarri
umferð UEFA-bikarkeppninnar. Fyrri leik liðanna, sem fór fram í Svíþjóð, lauk
með 1-1 jafntefli.
Samkvæmt úrslitum úr fyrri
leiknum ætti lið Linfield að standa
mun betur að vígi en útivallarmark-
ið í slíkum keppnum telur mikið. En
þó eru allir meðvitaðir um að Halm-
stad ætti öllu jöfnu að teljast talsvert
sterkara lið og búast menn því við
hörkuleik í kvöld. Halmstad dugir að
skora bara eitt mark svo lengi sem
liðið nær að halda hreinu og því tel-
ur Kitson að Gunnar Heiðar muni
gegna lykilhlutverki í kvöld.
Sjóðandi heitur
„Þessi 23 ára íslenski landsliðs-
maður var sjóðandi heitur þegar
hann skoraði þrennu og lagði upp
tvö mörk til viðbótar í 6-0 sigri
Halmstad á Sundsvall í sænsku úr-
valsdeildinni um þarsíðustu helgi.
Vamarmenn Linfield hafa ekki efni á
að missa einbeitinguna í eitt sek-
úndubrot þegar þeir hafa gætur á
Gunnari," skrifar Kitson.
Halmstad hefur gengið illa í
sænsku úrvalsdeildinni í sumar og
er í 12. sæti sem stendur. Liðið hafn-
aði í öðm sæti í fyrra, aðeins tveim-
ur stigum á eftir meistumnum í
Malmö FF.
„Gunnar nýtti tækifærin sem
hann fékk í leiknum afar vel og fór
illa með varnarmenn Sundsvall,"
hefur Kitson eftír Janne Andersson,
þjálfara liðsins, sem andaði léttar
Halmstad dugir að
skora bara eitt mark
svo lengi sem liðið nær
að halda hreinu og því
telurKitson að Gunnar
Heiðar muni gegna
lykilhlutverki í kvöld.
eftír fyrsta sigurleik liðsins í tvo
mánuði en jafnteflið við Linfield á
heimavelli var einnig mjög pínlegt.
En hann er viss í sinni sök um að
sínir menn hafi betur í síðari leikn-
um gegn Norður-ímnum. „Ef við
leikum eins og við gerðum gegn
Sundsvall og drögum einhvern lær-
dóm af jafnteflisleiknum gegn Lin-
field munum við fara áfram. Við get-
um skorað þau mörk sem þarf til og
ffamherjar okkar, þeir Gunnar Heið-
ar og Patrik Ingelsten, ná mjög
saman og lögðu upp mark
annan," sagði Andersson.
Fóru illa að ráði sínu
Leikmenn Halmstad fóm
illa að ráði sínu um helgina er
þeir mættu Gefle á heimavelli
í sænsku úrvalsdeildinni en
leikurinn var mikilvægur í ljósi
þess að bæði lið
em í neðri hluta
deildarinnar.
Gunnar Heiðar
og félagar töp-
uðu leiknum
með fjórum
mörkum gegn
einu en okkar
maður lék allan
leikinn. Enn eitt
tapið hjá Halmstad
og verður því leik-
urinn gegn Linfield
enn mikilvægari fyr-
ir vikið. Komist liðið
áffam og verði heppið í
drættinum á morgun er
aldrei að vita nema Halm-
stad fái leik gegn einu af
stórliðunum í keppn-
inni sem myndi eflaust
gleðja leikmenn liðs-
ins.
eirikurst@dv.is
Sjóðandi heitur Gunn-
ar Heiðar Þorvaldsson er
stærsta dhyggjuefni leik-
manna Linfield i kvöld.
„Varnarmenn Linfield
hafa ekki efni á að missa
einbeitinguna í eittsek-
úndubrot þegar þeir hafa
gætur á Gunnari"
Fyrrverandi landsliðsmaður Suður-Afríku er ekki sáttur við íslandsleikinn
*
Tilgangslaus leikurá ísköldu Islandi
George Dearnaley er fyrrverandi
landsliðsmaður Suður-Afríku í
knattspymu og skrifar reglulega dálk
á heimasíðu fréttamiðilsins news24-
.com þarlendis. Hann gerir landsleik
íslands og Suður-Afríku að umfjöll-
unarefni sínu í nýjasta pistlinum þar
sem hann er allt annað en sáttur við
sína menn.
Hann lýsir fslandi sem „stór-
veldi" í knattspyrnu og gerir það
kaldhæðnislega. Hann á ekki orð yfir
4-1 tap liðsins á íslandi um daginn.
„Þetta var sorgleg frammistaða og
allir sem sáu leikinn eru sammála
um að leikmenn höfðu afar tak-
markaðan áhuga á andstæðingn-
um."
Hann veltir fyrir sér af hverju suð-
urafríska knattspyrnusambandið
hafi ákveðið að leika gegn íslending-
um. „Fyrst þegar ég heyrði af leikn-
um varð ég mjög hissa.
Af hverju að fara alla
leið til Islands og spila
þar í fimbulkulda þeg-
ar næsti leikur verður í
funheitu loftslagi í
Burkina Faso? En það
er vildi greinilega
safna saman bestu
leikmönnum sínum í
Evrópu svo þeir þyrftu
ekki að ferðast lang-
ar leiðir. En því
miður fyrir hann
var leikurinn skipu-
lagður á síðustu
Honum er kalt Steven Pienaar í
baráttu við Grétar Rafn Steinsson.
stundu (kemur á óvart) og var ísland
eini möguleikinn í stöðunni. Kanada
fékk leik gegn Spáni, Fílabeins-
ströndin mætti Frökkum og
Egyptar léku gegn Portúgöl-
um. Vissulega er hægt að
halda því fram að lands-
liðsmenn eigi að leggja
sig jafn mikið fram
sama hver andstæðing-
urinn er en að leika gegn
Raul ff á Spáni eða Christ-
iano Ronaldo frá Portúgal
er mjög ólíkt því að mæta
Heiðari Helgusyni frá ís-
landi," skrifar Dearnaley.
Hann á sér marga skoð-
anabræður í Suður-Afríku en
fjölmiðlar þar voru óvægnir í
umfjöllun um leikinn. Marg-
ir leikmanna liðsins hafa af-
sakað sig með því að fs-
lensku leikmennirnir hafi
verið grófir en það er ljóst
að það afsakar ekki svo
stórt tap.
eirikurst@dv.is
Þeir eru ruddar Landsliðsmenn Suður-
Afrlku kvörtuðu mikið undan ruddaskap
íslensku leikmannanna. Hér eru Eiður Smári
Guðjohnsen og ArnarÞór Viðarsson.