Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2005, Qupperneq 39

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2005, Qupperneq 39
DV SíOast en ekki síst FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST2005 39 Sigurjón Kjartansson fór til ísafíarðar og ætlaði að bregða sér í þrjúbíó eins og hann gerði þegar hann var lítm. En hann greip í tómt. Það var enginn í bíóinu. • smwm l/ 'St,, Sandkor u L Símon Birgisson BBMHM ■ t *, ! & w • Sjálfur Jón Trausti Lúthersson situr ekki auðum höndum þessa dag- ana. Hann var ný- verið dæmdur í fangelsi fyrir að ráð- ast á Reyni Trausta- son, ritstjóra Mannlífs, þegar hann var fréttastjóri DV. Þrátt fyrir að nokkrar vikur séu frá því að dómur féll er Jón Trausti ekki byrjaður að afplána. Hann vinnur nú að því að laga bilaðar sturtur í karlaklefa gömlu sundhallar- innar í Hafnarfirði. Sem ungur drengur ólst ég upp á ísafirði, eins og reyndar aðrir helstu merkismenn þjóðarinnar. Ég þótti stinga í stúf. Hafði engan áhuga á skíðum og aðhylltist pönktónlist. Fór líka mikið í bíó. Á ísafirði var líka rekið mjög öflugt bíóhús, sem sýndi myndir alla daga vikunnar. f Ísafjarðarbíói fór kvikmynda- uppeldi mitt fram. Til að byrja með fór ég einu sinni í viku, kluldcan þrjú á sunnudögum. Þá sá ég myndir eins og Sú göldrótta með Angelu Lansbury, Herbie the Love Bug, The Island that Time Forgot, Grease, King Kong og helstu myndir Chaplins. Ísafjarðarbíó var mitt „Cinema Paradiso". Bíóið bjó yfir töfrum. í miðasöl- unni var alltaf sama vinalega konan og dyraverðirnir voru alltaf í búning- um, ekki ósvipuðum lúðrasveitar- búningum. Kaskeiti og annað til- heyrandi. Þar var heldur ekki selt popp. Skýringin sem ég fékk á því var sú að þeir áttu ekki ryksugu. Eldri bróðir minn vann þama á tímabili sem sópari. Launin vom ókeypis í bíó. Sætin vom misjöfn. Fremst vom harðir trébekkir, en annars staðar vom rauðu sætin. Þau vom vinsælust, ásamt fyrsta bekk uppi. ... skrifar IDV mánudaga, þriðjudaga, miövikudaga og fimmtudaga. Síðast en ekki síst Ég skrapp til ísafjarðar um dag- inn og ætlaði að demba mér í ísa- fjarðarbíó, mér og öðmm til skemmtunar. Var með syni mína með mér og ætlaði mér að reyna að endurlifa æsku mína í gegnum þá. Langaði að verða ungur í annað sinn. Það var sunnudagur og klukk- an að verða þrjú. En ekkert var í bíó. Allt var tómt. Ég leitaði að sýningar- manninum, en það var engin sýn- ingarmaður í bíóinu. Ég leitaði að vinalegu miðasölukonunni en hún var ekki þar. Ég leitaði að dyraverði í fínum búningi en það var engan að finna. Það var ekki sála í bíóinu. ísa- fjarðarbíó var læst og lokað. Ég neita að trúa því að ísfirðingar séu búnir að loka þessu sögufræga bfóhúsi. Ég vona heitt og innilega að það hafi bara verið í sumarfríi. Er hægt að ædast til að einhver þrífist í smábæ úti á landi án þess að hafa að minnsta kosti eitt bíó? Ef ísafjarðar- bíó er hætt þá er ekkert bíó iengur til á Vestfjörðum. Er nema von að það sé fólksflótti utan cif landi. mSl&SSBtÍ dag 8 Það er von á slæmu veðri. Skammdegisþunglyndiö fer að gera vart við sig. Sérstaklega eru veðurhorfurnar slæmar fyrir austan. Þar er búist við miklu hvassviðri og rigningu. Þá er rétt að vara við veðrinu undir Vatnajökli. Þar verður allt vitlaust 1 dag. Skiljið húsvagnana eftir heima. Nokkur^ ^ vindur 6 Strekkingur • * Strekkingur Hvassvi*ri e*a stormur Nokkur vindur Qh\ Hvassvi*ri e*a stormur 9 Nokkur vindur ÖbV Hvassvi*ri e*a stormur Stormur Hvassvi*ri Kaupmannahöfn 17°C Helsinki 26°C Madrid 31 °C Ósló 13°C Stokkhólmur 22°C Frankfurt 17°C London 20°C Berlín 24°C New York 27°C París 19°C Barcelona 27°C Orlando 32°C £3 <£b £3 e2> Allhvasst e*a hvasst á annesjum nor*austan og austan til annars mun hægarí. Það er því skammt stórra högga á milli hjá vítisenglinum fræga.... • Fótboltastjörnurnar Logi Ólafe- son og Amór Guðjohnsen sátu á ónefndu kaffihúsi í Borgartúni í hádeg- inu í gær. Sáu glöggir gestir þá fé- lagana grúfa sig yfir teikningar af því sem virtist risavaxið knattspyrnuhús. Styður fundur þeirra Loga og Arn- órs í gær undir þær sögusagnir að Logi sé orðinn þátttak- andi í knattspyrnu- akademíu Arnórs og Eiðs Smára, sonar hans. Ætla þeir að reisa risavaxið knattspyrnuhús í Salahverfi, en sérfræðiálit Loga hefur verið vel þegið... • Skólaárið fer misjafnlega vel af stað hjá krökkum landsins. Ung stúlka í Fjölbrautaskóla Garðabæj- ar skrifar á bloggsíðu sína að hún og nokkrar vinkonur hafi veikst heiftarlega eftir að hafa drukkið úr kaffivél skólans. „Sjálfsalinn er bú- inn að koma af stað faraldri og eru allir veikir, þ.a.m. ég og Elísa A., kaffið er líklegast búið að vera í allt sumar gamalt og ónýtt og mjólkin súr. Æði,“ segir stúlkan. I skólum er fall oft fararheill... • Stjörnurnar hanga á Prikinu. Það er staðreynd. Á þriðjudaginn birtist þar leikarinn Neal McDonough sem fer með hlutverk Stephen Connors í þáttunum Medical Investigation sem sýndir eru á stöð 2. Með honum í för var stúlknaskari og leikarinn Jamie Bell, en bæði hann og Neal fara með stór hlutverk í Flag of our Fathers, mynd Clint Eastwoods. Þótti læknirinn geðþekki hrókur alls fagnaðar og vakti hrifningu þegar hann pantaði sér Black Death á barnum... • Og fslendingar eru ekki einir um að hafa áhuga á stjörnunum. Hér á landi er nú staddir fréttamenn frá bandaríska fréttaskýrendaþættin- um 60 minutes II. A fyrrakvöld snæddi hópurinn dýrindis kvöld- máltíð á veitingastaðnum La Prima Vera. Ekki hefur fengist uppgefið hvaða erindi sextíu mínútna-menn eiga hingað til lands, en líklegt þykir að það tengist stórvirki Clints Eastwood sem verið er að taka upp í suður með sjó. Létu bandarísku fréttamennirnir vel af íslenska matnum...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.