Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2005, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2005, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005 Fréttir DV Ólafi boðið Vala Ágústa Karlsdóttir, eiginkona Gísla Marteins Baldurssonar, hefur verið ráðin til starfa hjá Ríkisútvarpinu sem málfarsráðunautur. Sjálfur gegnir Gísli Marteinn þar sérverkefnum á meðan hann stendur í prófkjörsslag vegna borgarstjórnarkosn- inganna. Páll Magnússon útvarpsstjóri sér ekkert athugavert við ráðningu eigin- konu Gísla Marteins. á leikinn Forseti Búlgaríu, Georgi Parvanov, hefur boðið Ólafur Ragnari Grímssyni forseta á leik Búlgaríu og fslands í Sofíu í kvöld. Auk þess að fara saman á lands- leikinn munu forsetarnir ræða sókn íslenskra fyrir- tækja í landinu og forvarnir gegn ffkniefnum, en Ólafur Ragnar er verndari evr- ópsks samstarfsverkefnis á þeim vettvangi. íslensk mæðgin ófundin Þegar DV fór í prentun í gær höfðu enn engar upp- lýsingar borist af mæðgin- um sem búsett eru í New Orleans. Þau eru einu ís- lendingarnir sem leitað er að á hamfarasvæðinu og að sögn Péturs Ásgeirssonar hjá Utanríkisráðuneytinu eru þau búsett hvort á sín- um stað í borginni. Heimili konunnar er utan flóða- svæðis og hefur ræðismað- ur íslands í New Orleans sent mann að heimili hennar. Sonurinn býr aftur á móti á svæði sem fór verr út úr fellibylnum og því er ekki eins greiðfært að heimili hans. Nýrfram- kvæmda- stjóri KEA Stjóm KEA ákvað á fundi sfnum á mánudag að ráða Halldór Jóhannsson í starf framkvæmdastjóra fé- lagsins en alis bámst 78 umsóknir um starfið. Hall- dór hefur starfað sem fjár- festingastjóri hjá KEA frá því í nóvember 2004. Starf- ið losnaði í byrjun ágúst þegar Andri Teitsson sagði starfinu óvænt upp. Upp- sögnin kom f kjölfar þess að Andri átti von á tvíbur- um og fór fram á fæðingar- orlof sem stjórn KEA gat ekki sætt sig við. Eiginkona Gísln Martejns einnig á Innnum hjn RIIV Páll Magnússon Út- varpsstjóri telur ekki að störf eiginkonu Gísla Mart- eins rekist á við pólitiska þátttöku hans. ! Gísli Marteinn og Vala Agústa Samhent hjón á sama vinnustað íútvarpi allra landsmanna. í upphafi prófkjörsslags í Sjálfstæðisflokknum fyrir borgar- stjórnarkosningarnar og með stefnuna á embætti borgarstjóra er Gísli Marteinn Baldursson á launum hjá Ríkisútvarpinu í sér- verkefnum sem tengjast stofnuninni beint. Annars vegar er um að ræða und- irbúning fýrir Eurovision sem haldið verður á næsta ári og svo vegna há- tíðahaida í tengslum við 75 ára af- mæli Ríkisútvarpsins sjálfs; gömlu Gufunnar. Sérverkefni þessi komu upp í hendumar á Gísla Marteini um leið og framieiðslu á skemmtiþáttum hans á laugardagskvöldum lauk. Samkvæmt heimildum DV þiggur Gísli Marteinn um hálfa milljón á mánuði vegna þessara sérverka í út- varpi allra landsmanna. Titringurá göngum Nú bregður svo við að eiginkona Gísla Marteins, Vala Ágústa Karls- dóttir, er einnig komin til starfa hjá Ríkisútvarpinu og þá sem málfars- ráðunautur fyrir báðar fréttastofur stofnunarinnar; útvarp og sjónvarp. Er titringur á göngum Ríkisútvarps- ins við Efstaleiti þar sem aðrir starfs- menn stinga saman nefjum og sjá of- sjónum við uppgangi Gísla Marteins og nánustu fjölskyldu hans hjá stofn- uninni. „Vala Ágústa Karlsdóttir er ekki fastráðin hér heldur er hún kölluð til sem málfarsráðunautur þegar þurfa þykir. Ég hef engar áhyggjur af því að starf hennar hér geti leitt tii hags- munaárekstra vegna þátttöku Gísla Marteins í prófkjöri sjálfstæðis- manna," segir Páll Magnússon, nýráðinn útvarpsstjóri Rikisútvarps- ins og æðsti yfirmaður þeirra beggja. „Hvað varðar sérverkeftii Gísla Marteins hér þá er hann fastráðinn starfsmaður stofnunarinnar og við segjum ekki fólki upp þótt það fari í prófkjör. Það er hins vegar tekið af dagskrá hafi það verið þar,“ segir útvarps- stjóri. Kom úr Gljúfrasteini Páll Magnússon telur víst að ráðninga- mál Gísla Marteins verði tekin upp að nýju eigi stjórnmálin eftir að taka meira af tfma hans en hingað til en slíkt bíði sfns tíma. Hjá Ríkisútvarpinu giidi sú einfalda regla: Engin vinna, engin laun. Eiginkona Gísla Marteins og nýráðinn málfarsráðu- nautur Ríkisút- varpsins er með BA-próf í ís- lensku og starfaði um hríð sem blaða- maður á Morgun- blaðinu. Þá vann Vala Ágústa einnig í safni Laxness á Gljúfrasteini við að flokka bókakost sem þar er. Þaðan lá leiðin svo í Ríkisútvarp- ið. & % Fullt tungl í fjölmiðlum Lífið er fullt af ráðgátum. Stund- um kemur sjálf manneskjan Svart- höfða á óvart. Dagblöðin hafa augu fyrir því óvenjulega. Eins og í gær. Svarthöfði gat varla annað en hlegið þegar hann las um sundkappann í DV sem notaði stera. Verst var að hann stóð sig miklu verr í sundi eftir steranotkunina en fyrir. í sama blaði er fjallað um nakinn mann í strápilsi sem skelfdi fólk á Sundlaugavegi. Lögreglan þurfti að skerast í leikinn Sumir taka sig mátulega alvarlega. Meira að segja Mogginn var í góðu skapi í gær. Sló upp á forsíðu: ^ Svarthöfði „Óvenjugróf bláberjarán f Svíþjóð." Svarthöfði las fréttina og furðaði sig á því að sex menn á fertugsaldri, vopnaðir öxum og hnífum, skyldu ráðast á níu taílenska bejjatínslu- menn með offorsi. Hér á landi týnir fólk bláber í sátt og samlyndi. Hér á íslandi þarf Siv Friðleifsdóttir ekki á gæslu að halda í bláberjatínslu. Vonum bara að Sví- ar haldi sig í berjatínslunni á sínum heimahögum. Sturla Böðvarsson virðist einnig Hvernig hefur þú það Ég er bara að versla núna í Bónus og er svo að fara að vinna eftirvinnu í kvötd/'segir Hilm- ar Oddsson, leikstjóri sem er núna að kenna þriðju bekkjar námskeið I kvikmyndaleik við leiklistardeild Listaháskólans. „Er bara á fullu að kenna og undirbúa mig svo þess á milli. Það virkar þannig að leikaranemar fara í kúrs hjá mér og við gerum mynd frá a til ö, í fullri lengd helst, þar sem við förum í gegnum allt ferlið frá hugmyndakviknun til frumsýningar. Þetta er svakalega góður hópur og gaman að vinna með." standa við sitt. Ferjar sjálfstæðis- menn og eiginkonu á þotu Flug- málastofnunar. Svarthöfði hefur alltaf dáðst að mönnum með frum- kvæði - fr ekasti krakkinn í bekknum fær alltaf sínu fram. Og Sturla er auðvitað konungur spiilingarinnar. Undarlegasti maðurinn í fféttum þessa dagana er þó Gísli Marteinn Baldursson. Hann er hissa á sjálfum sér að hafa sett í samtíðarmenn BA- próf í stjórnmálafræði þegar hann átti nokkra áfanga eftir. Kannski er ekkert undarlegt að hann sé hissa á sjálfum sér. Miðað við fréttir gær- dagsins er Svarthöfði almennt hissa á manneskjunni og því sem hún tek- ur sér fyrir hendur. SvarthöfSi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.