Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2005, Síða 21
20 MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005
Sport DV
DV Sport
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005 21
Veikur EiðurSi
— ->mári Guðjohnsen
hefurlegið fyrirsíðustu daga.
________ DV-mynd Vilhelm
SlEMBiS
Beckham til
í allar stöður
David Beckliam, fyrirliði enska
landsliðsins, er tilbúinn til þess að
leika í öllum stöðum á
vellinumhjá '
Englandi en hann >- *
hefur verið látinn tJ?*'
spila á miðri
undanfömu fJmM
þótt haim
kunni best við
sig hægra meg- Wm^$£jgEB
in. „Ég vil bara
fá að spila fót-
bolta með enska Ja
Iandsliðinu og 'BaJfojSfea
ég fer ekki fram KC%.
á neitt annað
en að fá að
hjálpa til við að
vinna leiki. Það er h|
mikil barátta um ý jL
stöður í liðinu og /X, f||
ég get ekki farið ™ISF jP
fram á að vera í byij- flL
unarliðinu." Enska landsliðið hef-
ur verið gagnrýnt mikið upp á
síðkastið eftir háðuglegt tap fyrir
Dönum í Kaupmannahöfn. Beck-
ham er þó viss um að enska
landsliðið geti orðið heimsmeist-
ari á næsta ári. „Getan er til staðar
og það er í verkahring okkar leik-
mannanna að sýna hversu góðir
við getum verið."
Henry hrósar
Roy Keane
Franski landsliðsmaðurinn
Thierry' Henry hlakkar til þess að
mæta Roy Keane í kvöld þegar
Frakkland og írland mætast í
undankeppni heimsmeistarmóts-
ins. Henr\' segist bera mikla virð-
ingu fyTir Keane, þrátt fyrir að
þeir séu fyrirliðar erkiíjendanna
Manchester United og Arsenal.
„Einhverra hluta vegna hefur Roy
Keane það orð á sér að hann sé
óheiðarlegur leikmaður. Ég ber
mikla ráðingu fyrir honum. Hann
er einn allra besti mið-
vallarleikmaður
fheims og ef menn
- ætla að standa sig vel
á móti honum verða
_ j ^ menn að vera til-
búniríslag-
_ inn. Við eig-
um að geta
tinnið íra
JM °8von'
Q^oriL andi
'■SK. tekst
I okkur
flflfl^RT/ t það,“
WKKmmJ ý sagöi
ISBjgfZr Thierry
WILr-- Henry'.
Lætur í sér heyra Hristo
Stoichkov er ekki vanur að
spara skoraðnir sínar.
DV-mynd Gettylmages
íslenska A-landsliðið í knattspyrnu er komið í tíunda sinn í heimsókn á Balkanskagann þar sem gengi liðsins hefur verið afar dapurt í gegnum
tíðina. Eini sigurinn kom fyrir 25 árum en þá var spilað í Asíuhluta Tyrklands en ekki á Balkansakagnum. ísland hefur aldrei unnið í níu ferð-
um sínum í þennan hluta Evrópu.
Bölvun á
Islenska landsliðið mætir í dag Búlgörum í undankeppni HM í Þýskalandi 2006.
Möguleikar liðsins á að komast upp úr 8. riðli eru löngu úti en það er enn möguleiki á
fjórða sætinu í riðlinum þótt Búlgarir standi þar vel að vígi. Leikurinn fer fram í Sofíu, höf-
uðborg Búlgaríu, og ætli íslenska liðið sér sigur þurfa strákarnir ekki aðeins að vinna fýrsta
útileikinn í þessarri undankeppni heldur fyrsta sigurinn á Balkanskaganum frá upphafi.
Heimsóknir til Albaníu, Grikklands, Makedóníu, Rúmeníu, Króatíu og Búlgaríu hafa ekki
gefið nein stig hingað til en Island náði sínu eina stigi þar í ferð til Evrópuhluta Tyrklands
fyrir 17 árum síðan.
1 ieikur 1 tap
Rúmenía
1 leikur 1 tap
Balkanskagi er kenndur við sam-
nefnd fjöll f Búlgaríu, norðarlega á
skaganum og þar eru tíu lönd en
fimm þeirra voru hluti af gömlu
Júgóslavíu. Þetta eru þjóðimar Al-
bama, Búlgaría, Grikkland, Rúmema
og Evrópuhluti Tyrklands ásamt
Bosníu, Króatíu, Makedóníu, Serbíu
og Slóvemu sem áður tilheyrðu
Júgóslavíu. Gengi íslenska landsliðs-
ins gegn þessum þjóðum hefur verið
hörmulegt og fyrir utan tak sem við
virtumst hafa um tíma á Tyrkjum
hefur íslenska liðið tapað 15 af 18
leikjum gegn hinum þjóðunum níu.
Þegar aðeins um útileiki gegn
Balkanþjóðunum er að ræða versnar
árangur enn meira enda hefur ís-
lenska landsliðið nú farið í átta stiga-
lausar ferðir í röð á Balkanskagann.
Fyrsti landsleikur íslands á útivelli
gegn Balkanþjóð var gegn Tyrkjum
24. september 1980 og vannst þar
glæsilegur 3-1 sigur. Sá leikur fór
Gengi
Leikir
Sigrar
Jafntefli
töp
Mörk skoruð
Mörkfengin á sig
Markahlutfall
Sigurhlutfalt
Gengi islenska ian
gegn þjóðum Bakans
Leikir
Sigrar ry
Jafntefli
Töp
Mörk skoruð
Mörk fengin á sig
Markahlutfall
Sigurhlutfall
fram í Izmir, borg í suðvesturhluta
Tyrklands, Asíumegin, og því fór leik-
urinn ekki fram á sjálfum
Balkanskaganum.
Jafntefli fyrir 17 árum
Átta árum seinna var íslenska lið-
ið komið til Tyrklands á ný í und-
ankeppni HM en þá var spÚað í Ist-
anbul (á Besiktas Inönu-vellinum)
sem er í Evrópuhluta Tyrklands hin-
um megin við Bosporussundið sem
skilur á milli Evrópu og Asíu. íslenska
liðið náði 1-1 jafntefli þar sem Friðrik
Friðriksson varði víti á síðustu mín-
útu fyrri hálfleiks og Guðmundur
Torfason kom íslandi 1-0 yfir með
viðstöðulausu skoti á 63. mínútu.
Tyrkimir jöfnuðu svo 13 mínútum
fýrir leikslok en fyrsta og eina stig ís-
lands á Balkanskaga var í höfn.
Síðan eru liðin 17 ár og íslenska
liðið hefur farið stigalaust heim úr
átta heimsóknum í röð og þar af skor-
aði það ekki mark í heilar 500 mínút-
ur á árunum 1988 til 2001 en íslenska
liðið lék þá fimm leiki í röð í austasta
hluta Evrópu án þess að ná að skora.
íslenska liðið hefur þrisvar tapað
mjög stórt, 5-0 fyrir Tyrkjum í und-
ankeppni EM 1996, 4-0 fyrir Rúmen-
um í undankeppni HM 1998 og svo
4-0 fyrir Króötum í mars síðastliðn-
um sem var einmitt síðasta heim-
sókn íslenska landsliðsins á
Balkanskagann.
Tapleikurinn gegn Tyrkjum var
afar ójafn leikur þar sem Tyrkir gjör-
samlega yfirspiluðu íslenska liðið.
Aðeins einn leikmaður í íslenska
hópnum nú kom að þessum leik því
Kristján Finnbogason kom inn á sem
varamaður eftir aðeins tvær minútur
þar sem aðalmarkvörðurinn Birkir
Kristinsson meiddist og var fluttur á
sjúkrahús. Þremur árum seinna fékk
íslenska liðið að kynnast „Maradona
Karpataíjallanna" þegar snillingur-
Síðan eru liðin 17 árog
íslenska liðið hefur farið
stigalaust heim úr átta
heimsóknum í röð og þar af
skoraði það ekki mark í heilar 500
mínútur á árunum 1988 til 2001.
Búlgaría
1 leikur 1 tap
Makedónía
1 leikur 1 tap
inn Gheorghi Hagi skoraði tvö mörk í
4-0 sigri Rúmena en íslenska liðið átti
aldrei möguleika og fékk á sig fjögur
mörk þrátt fyrir að pakka í vöm ffá
fyrstu mínútu leiksins. Kristján Finn-
bogason og Tryggvi Guðmundsson
vom þeir einu í hópnum gegn
Búlgaríu í dag sem tóku þátt í þessari
ferð en báðir vom þeir varamenn.
Tryggvi lék sfðustu níu mínútur
leiksins.
í Króatíu í mars
Það má segja að ís-
lenska landsliðið hafi svo
náð sínum bomi í Króa-
tíu í mars síðastliðun-
um en íslenska liðið
tapaði þá stórt annan
leikinn í röð. Liðið hafði
þá tapað sjö af tíu leikjum
og aðeins unnið einn leik
á síðustu tólf mánuðum.
Frá þeim tíma hefur spUa-
mennska liðsins batnað mikið
en nú er komið að stórri prófraun -
heimsókn á þann stað sem gengi ís-
lenska liðsins hefur verið verst í
gegnum tíðina.
ísland mætir nú til Búlgaríu í
aðeins annað sinn og í fyrra skipt-
ið vorum við nálægt því að ná
góðum úrslitum. Hermann
Hreiðarsson kom íslandi yfir gegn
Búlgörum í undankeppni HM fyrir
fjórum árum en Búlgarir náðu að
tryggja sér sigur eftir að Lárus
Orri Sigurðsson hafði verið
rekinn útaf með rautt spjald á 40.
mínútu leiksins.
Nú er komið að annarri heim-
sókn og það verður athyglisvert
að sjá hvort bölvuninni á Balkan-
skaga verði létt í Sofíu í dag eða
hvort hún reynist íslenska Uðinu enn
einu sinni ofurefli.
Albanía
2 leikir 2 töp
Tyrkland
2 leikir 1 jafntefli 1 tap
Grikkland
1 leikur 1 tap
Landsliðsþjálfari Búlgaríu hefur farið hamförum í fjölmiðlum fyrir leikinn:
Hinn stóryrti Stoichkov verður í stúkunni
5læmt gengi í suð-austur Evrópu íslensku
vikmgarnirhafa ekki máttsín mikdsgegn Balkan
knottspyrnuvellinum. íslenska
hlum'h nÚ farið íátta ferðir iröðtH þessa
hluta heimsms an þess að ná ístig. Nú er aðvona
oa ^biálfar 6ttlSt <í isiensi<u stuðningsmönnunum
9Þj faranum Asgeiri Sigurvinssyni, að ofan.
Hristo Stoichkov, landsliðs-
þjálfari Búlgaríu, hefur farið
hamförum í fjölmiðlum, bæði
fyrir og eftir þriggja marka tap-
leikinn gegn Svíum í und-
ankeppni HM á laugardaginn.
„Úrslitin voru ákveðin fyrirfram.
Lennart Johansson vissi það. Þess
vegna yfirgaf hann leikvanginn
stundarijórðungi áður en leiknum
lauk," sagði Stoichkov við búlgarska
fjölmiðla við heimkomuna, en hann
hefur áður haft horn í síðu formanns
Knattspyrnusambands Evrópu.
Hinn sænski Johansson hefur
fengið nóg og ætlar að kæra
Stoichkov til aganefhdar Knatt-
spymusambands Evrópu. Johansson
segist ekki láta bjóða sér hvað sem er.
Eiginkona hans sé lömuð og eigi
erfitt með gang og þess vegna hafi
hann yfirgefið völlinn svo snemma.
Stoiclikov, sem er þekktásti
knattspymumaður Búlgaríu
fyrr og síðar, hefur átt erfitt /
uppdráttar sem landsliðs- / ^ f
þjálfari. Reyndar sagðist
hann aldrei getað
hugsað sér að taka
starfið að sér, en
nokkmm vikum
eftir þá yfirlýs
ingu var hann
sestur í stólinn.
Búlgaría
hefur sjö stig
eftir átta leiki
í und-
ankeppni
HM. Næsti
leikur er gegn
íslandi í dag.
Stoichkov gerði
í því að æsa Svíana
upp fyrir leikinn
með digurbarka-
legum yfirlýsing-
um og gaf í skyn að
Johansson hefði mútað hoUenskum
dómara leiksins.
„Þessi leikur er enn ein sönnun
þess að Johansson elskar ekki fót-
bolta. Hann hefur bara áhuga á því
að græða peninga, það er eng-
inn alvöru fótbolti til lengur,
þar viðgengst bara spUUng.
Ég get bara ekki sætt mig við
það hvernig komið er fram
við landið mitt," sagði
Stoichkov eftir leUdnn.
Það vakti mikla at-
hygU að vinstri bak-
vörðurinn Tiago SUva,
fékk ekki keppnisleyfi
hjá Alþjóða knatt-
spymusambandinu
(FIFA) fyrir leikinn gegn
Svíum.
Silva er BrasiUumað-
ur og fékk vegabréf í
Búlgaríu á mettíma en
FIFA vUdi rannsaka mál-
ið betur. Stoichkov full-
yrti í viðtali við sænsk blöð að Jo-
hansson hefði beitt áhrifum sínum ti!
þess að koma í veg fyrir að SUva spU-
aði gegn Svíum. Johansson segir við
sænska blaðið Expressen að þegar
Hristo Stoichkov sé annars vegar
komi sér ekkert lengur á óvart. „Ég
verð hins vegar pirraður yfir því að
maður í hans stöðu skuU leyfa sér
að tala svona."
Stoiclikov fékk rauða spjaldið
gegn Svíum og var rekinn upp
stúku og verður því í leUcbanni
gegn íslendingum. Hann lauk
blaðamannafundinum eftir Svía-
leikinn með eftirfarandi orðum:
„Ég er and-Svíi.“
I Búlgaríu er farið að gæta
vaxandi óánægju með störf
Stoichkovs og fuUvíst
taUð að hann verði
látinn taka pokann
smn eftir
undankeppnina.
-þg
LEIKIR ISLENSKA LANDS-
LIÐSINS Á BALKANSKAGA:*
12. október 1998 (HM) Tyrkland-ísland 1-1
25. maí 1991 (EM) Albama-ísland 1-0
13. maí 1992 (HM) Grikkland-ísland 1-0
12. október 1994 (EM) TVrkland-ísland 5-0
7. júni 1997 (HM) Makedónía-fsland 1-0
10. september 1997 (HM) Rúmenía-Ísland 4-0
24. mars 2001 (HM) Búlgaría-ísland 2-1
31. mars 2004 (Vináttuleikur) Albanía-Ísland 2-1
26. mars 2005 (HM) Króatía-Ísland 4-0
* fsland vann Tyrkland 3-1 í Izmir 24. september 1980 en leikiö var (Asfuhluta Tyrklands.
Króatar létu íslendinga finna fyrir því:
Eiður Smári með hálsbólgu
en ætti að vera leikfær
Eiður Smári Guðjohnsen, fyrirUði ís-
lenska landsliðsins í knattspymu, er með
hálsbólgu og var ekki með í för þegar liðið
fór í göngutúr um Sofiu, höfuðborg
Búlgaríu, þar sem leikur íslendinga og
heimamanna í undankeppni HM fer
fram. Að sögn Ásgeirs Sigurvinssonar er
Eiður ekki með hita og hefur fengið lyf til
að vinna á hálsbólgunni. „Hann ætti því
að geta leikið með okkur," segir hann.
Auðun Helgason og
Heiðar Helguson hafa
ekki getað æft af full-
um krafi með ís-
lenska liðinu eftir
komuna til Búlgar-
íu og Ásgeir segir
að margir leik-
menn hafi fengið
hnjask í leiknum
gegn Króatíu. „Auð-
un á í vandamálum
með hnéð á sér og Grét-
ar Steinsson er marinn á
ristinni. En Indriði Sig-
urðsson er aUur að koma tU
og ég á von á því að við náum
að tjasla öUum leikmönnum
saman fyrir leikinn," segir Ásgeir en
hann hefst kl. 16 í dag og er í
beinni útsendingu á sjón-
varpsstöðinni Sýn.
Stoitchov er sérstakur
Hristo Stoitchkov,
landsliðsþjálfari Búlgaríu,
verður í banni í leiknum
gegn íslendingum í dag eft-
ir að hafa fengið að líta
rauða spjaldið í tapleiknum
§egn Svíum á laugardaginn.
Ásgeir segir að ummæli
Stoichkovs eftir leUdnn, þar
sem hann sakaði Lennart Jo-
hansson um spUlingu og aðild
að samsæri UEFA gegn BúJgörum, komi
honum ekki á óvart.
„Við könnumst aðeins við hvor annan
og hann er mUdl týpa og skapmikill með
eindæmum," segir Ásgeir. „Það er mikU
pressa á honum í Búlgaríu eftir slappt
gengi að undanförnu og það er eins með
Búlgaríu og okkur - bæði lið eru í leit að
sigri til að rétta úr kútnum," segir Ásgeir
sem vissi ekki af Balkanskaga-bölvun ís-
lenska liðsins þegar hún var borin undir
hann. Ásgeir sagði hins vegar að hún væri
vissulega athyglisverð.
Létta af álögunum
„Þá er það einfaldlega okkar
verk að létta af þessum álögum.
Við byggjum á því sem við gerð-
um í fyrri hálfleik gegri Króötum
og við munum ekkert breyta um
taktík eða leikskipulag," sagðiÁs-
geir og bætti þvívið að markmið-
ið í leUcnum væri sigur.
vignir&dv.is
-
Spurning dagsins
Veistu við hvaða lið
íslenska landsliðið í
knattspyrnu er að fara
spila við í kvöld?
„Nei ég veit það ekki.
Ég er ekkert inni í
þessu en sonur minn
er alveg veikur í
fótboltann."
Aðalheiður
Samsonardóttir
„Dani og leikurinn fer
3-2 fyrir ístand. Ég
held með
fslendingum afþví ég
er sjálf frá Færeyjum. “
Leno Vidro
„Nei.“
Gardo Antonio
Fuentes
Já, Búlgaríu. Við
vinnum 2- 7 og Eiður
Smári og Heiðar
Helgu skora mörkin."
Óðinn Sigurðsson
„Já, Búlgaríu. Ég held
að verðijafntefli,
segjum 2-2."
Hreinn Sigurðsson
„Nei,en erþað
Króatía, nei við erum
nýbúin að keppa við
þá.“
Brynhildur
Óskarsdóttir
„Við erum að fara að
spila við Tékka eða
Tyrki, jú Tékka. Og við
töpum því þeir eru
góðir.
Axel Lárusson
„Hefekki hugmynd.
Ég er ekkert inn í
þessum fótbolta."
Anna María
Sigurðadóttir
„Nei, því ég fylgist
ekkert með fótbolta."
Andri Jónsson
21 árs landsliðið vann sigur á Búlgörum í hörðum leik í gær:
Loksins sigur á útivelli hjá stráku
íslendingar sigruðu Búlgara 3-1 í
undankeppni EM ungmenna-
landsliða í Búlgaríu í gær í hörð-
um leik. Þetta var fyrsti sigur ung-
mennalandsliðsins á erlendri
grundu frá því liðið vann Norður-
íra 3-1 árið 2001. Leikurinn var
afar harður og fékk einn Búlgar-
inn að líta rauða spjaldið
skömmu fyrir leikhlé.
En þrátt fyrir að vera einum færri
komust Búlgaramir yfir í byrjun seinni
hálfleiks en þá vöknuðu íslendingarnir.
Fyrst jafnaði Húsvíkingurinn Pálmi Rafn
Pálmason metin en hann hafði nýlega
komið inn á sem varamaður. Skömmu
síðar kom Emil Hallfreðsson fslending-
um yfir og rétt undir lok leiks tiy'ggði
sjálfur herra ísland, Garðar Gunnlaugs-
son, stigin þrjú með þriðja marki ís-
lands.
Eyjólfur Gjafar Sverrisson, landsliðs-
þjálfari, var að vonum ánægður. „Þetta
var mjög harður leikur. En strákarnir
mættu þeim í baráttunni," sagði Eyjólf-
ur og greinUegt að leikurinn tók sinn
toll, því landsliðsþjálfarinn var nánast
raddlaus að leik loknum. Já maður
þarf stundum að láta heyra í sér
þegar strákarnir em ekki að
færa liðið eins og ég vil. En
annars öskra ég svo lítið
heima hjá mér að ég held að
ég sé dottinn úr allri æf-
ingu."
ísland er sem fyrr í 4.
sæti riðUsins, en er nú
með tíu stig að loknum
níu leikjum, hefur skorað
tíu mörk og fengið jafn mörg á sig
Síðasti leikur liðsins er gegn Sví-
um í næsta mánuði ytra. -hh
Mark í tveimur leikjum í röð
Emil Hallfreðsson skoraði eitt af
mörkunum gegn Búlgaríu en hann
skoraði emnig gegn Króötum á
fostudaginn.
DV-mynd E. Ól.