Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2005, Side 23
DV Útivist & ferðalög
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005 23
Besta kaffi í heimi
Besta kaffi í heimi kemur frá eyjunum Sao
Tomé og Principe eftir því sem ein vin-
sælasta ferðasíða heims.Lonely Planet,grein-
ir frá. Eyjarnar eru ríki á miðbaug við Guinea-
flóa í Mið-Afríku. Þetta eru tvær aðaleyjar og
fjöldi smáeyja og hólma.
Sao Tomé-eyja er ávöl í laginu, u.þ.b. 49 km
löng og 860 km. Höfuðborgin, SaoTomé-
borg, er á norðausturenda eyjarinnar en
Principe-eyja er um það bil 150 km norðaust-
ar. Hún er mun minni eða 16 km löng og
strandlengja hennar mun vogskornari. Flestir
íbúar eyjanna eru„Forro", það er afkomendur
evrópskra landnema og afrískra þræla. Þeir
tala kreól-portú-
gölsku en venjuleg
portúgalska er opin-
bert mál þeirra og
flestir skilja hana.
Fæðingartíðni er mjög há en lífslfkur þar eru
hærri heldur en almennt gerist í Afríku, það
er 63 ár fyrir karia og 67 ár fyrir konur. Menn-
ing á staðnum þykir engu lík en þar blandast
saman portúgalskir og afrískir straumar
mjúklega. Þannig að ef þig dreymir um að
klífa gömul eldfjöll, kanna magnað fuglalíf
og drekka gott kaffi þá ættu eyjarnar að vera
eitthvað fyrir þig.
Fagnaður í
kirkjugarði Dauð-
anum er fagnað
Dauðinn er sums stað-
ar fagnaðarefni
Það hljómar kannski illa en það er ekkert athugavert við að
gleðjast yfir dauða annarra. Að minnsta kosti ef þú skemmtir þér
á viðeigandi hátíð. Dauði og myrkur er nefiúlega fagnaðarefni víða
um heim. Þegar maður veltir því enn firekar fyrir sér þá virðist
dauðinn ekki vera neitt sérstaklega óspennandi, í það minnsta
draga hátíðir sem haldnar eru í kring um hann flölda ferðamanna
að á ári hverju - nema fólkið í Taj Mahal og pýramídunum viti ekki
fyrir hvað byggingamar voru notaðar. Meðal nokkurra líflegra veislna sem haldnar eru í tilefhi dauðans má
nefiia Wakes á írlandi, Dag hinna dauðu í Mexíkó og Himana-útfarimar í Tíbet.
Garðurinn við bar-
inn á Marina Plaza
Vægast sagtróleg
stemning.
i/C': r/
s-a4rm
/
|H Bjórstræti Þarna var
HP fjör á hverju kvöldi og
f Þjóöverjarnir samein-
uðust I söng og gleði.
að fólk. Stutt frá hótelinu er sæmi-
lega löng stuðgata sem nefnist Bier
Strasse, eða Bjórstræti, og þar úir allt
og grúir af Þjóðverjum og einstaka
ferðamönnum frá öðmm löndum
sem skemmta sér og drekka bjór á
einhverjum af hinum fjölmörgu bör-
um sem þar er að finna. Tónlist er
spiluð hátt og fólk syngur með og
dansar en á slaginu tólf er slökkt á
henni svo fólk í hótelunum í kring
fái nú svefnfrið.
Góður mexíkóskur veitinga-
staður
Erfitt er að dæma um matar-
menningu Mallorca á því að snæða
á veitingastöðum í kringum hótel-
ið. Þau vom flest heldur keimlík og
buðu meira og minna upp á sömu
réttina en taka ber fram að stór
hluti þeirra var greinilega í eigu
Þjóðverja og báru eflaust keim af
matarsmekk eigendenna og auðvit-
að helstu viðskiptavinanna, Þjóð-
verja. Til marks um það vom flestir
matseðlar á þýsku og Þjóðverjar
pöntuðu mat á sínu tungumáli. Inn
á milli mátti þó finna góða veitinga-
staði í nágrenni við hótelið eins og
E1 Patio, sem sérhæfir sig í grillmat,
L’arcadia sem býður upp á pitsur
og hina ýmsu pastarétti, og
argentíska grillhúsið Asadito þar
sem hægt var að fá góða steik á við-
ráðanlegu verði í fallegu umhverfi.
Einna besti veitingastaðurinn er þó
Cactus þar sem boðið er uppá góð-
an Tex-Mex mat. Sá staður er þó
frekar langt frá hótelinu, eða í um
40 mínútna göngufæri frá Marina
Plaza en það er afar þægilegt að fá
leigubrl á Mallorca og þeir stoppa
beint fyrir utan hótelið svo það get-
ur verið tilvalinn ferðamáti.
Strætó á hverju horni
Eins og fyrr segir er mjög gott
aðgengi að leigubílum og hægt er
að skjótast með þeim til höfuðborg-
arinnar Palma, verslunarmiðstöðv-
arinnar Porto Pi eða í vatnsrenni-
brautargarðinn Aqualand. Leigu-
bílagjöldin em þó fljót að safnast
saman og því er frábært að geta tek-
ið strætó en auðvelt er að nálgast
þá. Fyrir utan hótelið er hægt að
taka strætó númer 15 sem fer til
Palma en þar sem hann stoppar í
flestum strandbæjunum á leiðinni
tekur ferðin um 45 mínútur. Það
kemur þó alls ekki endilega að sök
því gaman getur verið að sitja og
skoða umhverfið á leiðinni, það er
að segja ef maður fær sæti. Tveimur
götum fyrir ofan Marina Plaza er
hægt að taka annan strætisvagn,
númer 23, en sá fer til Palma á tru
mínútum en örlítið lengra er á milli
ferða. Það kostar tæplega 100 krón-
ur í strætó og fyrir þá sem nenna að
ferðast með þeim er auðvelt að
spara sér tugi evra í ferðinni.
Verslanir
í höfuðborginni Palma er margt
að skoða eins og kirkjuna frægu í
miðbænum, ótal veitingastaði og
verslanir af öllum stærðum og gerð-
um.
Palma er afar þröng borg á köfl-
um með litlum og mjóum götum og
þar leynast alls kyns perlur ef fólk
nennir að leita. Frægar búðir eins og
Zara, Mango, HM og C&A má líka
finna í Palma og þar má gera góð
kaup. Skammt frá C&A er hálfgerð
verslunarmiðstöð sem kallast Plaza
Mayor og þar er að finna verslun
sem sérhæfir sig í vörum frá Disney
og er mjög skemmtileg fyrir krakk-
ana. í skúmaskotum leynast versl-
anir með merkjavörur fyrir börn
sem hæglega rukkuðu 17.000 krónur
fyrir einfalda peysu.
El Patio Nota-
legur grillveit-
ingastaður með
fallegum garði.
Hægt er að heimsækja borgina
margoft án þess að þekkja hana að
ráði, svo margar eru verslanirnar og
hliðargöturnar.
Fyrir þá sem þykir gaman að
versla en nenna ekki að leita langt
yfir skammt er gaman að kíkja í
verslanirnar á Strandgötunni og þar
inni á milli má finna búðir með
skemmtilegar vörur. Götumarkaður
á Strandgötu opnar klukkan átta á
kvöldin og þrátt fyrir að vörurnar
séu margar hverjar ansi keimlíkar
leynast þar dýrgripir inni á milli.
ragga@dv.is
Markaðurinn á Strandgot
unni Hann opnaði klukkan
átta á kvöldin og gaman var
að lita á vöruúrvaliö.
1. Bakgrunnur: Eyjan var óbyggð
þegar breskir landnemar settust þar
að árið 1627. Þar unnu þrælar á syk-
urplantekrum þar til 1834 eða þar til
þrælahald var afnumið. Efnahagur-
inn byggði nær eingöngu á sykur-,
romm- og hrásykurframleiðslu þar
til á síðari hluta 20. aldar en eftir að
eyjarnar fengu sjálfstæði frá Bretum
árið 1966 hefur ferðamennska dafn-
að mjög og um 1990 var hún orðin
aðalatvinnuvegur eyjaskeggja.
2. Veðurfar: Hitabeltisloftslag, regn-
tfmabilið stendur yfir frá júní til
október.
3. Landslag: Eyjan er tiltölulega flat-
lend en þó er gróið hálendissvæði á
einstaka pörtum eyjunnar.
4. Fólksfjöldi: 279.254 í júlí 2005.
\
■ * I.
5. Fæðingatíðni: 12,83 fæðingar á
hverja þúsund íbúa, það er 1,65
börn á hverja konu yfir ævina.
6. Þjóðarbrot: Svartir 90%, hvftir 4%,
asískir og blandaðir 6%.
Ítalía fyrir matgæðinga
ítölsk matseld Matreiðsl-
an einkennist af góðu hrá-
efni sem eldað er á einfald-
an máta.
Ítalía er af mörgum talin vagga
evrópskrar menningar þar sem allir
ættu að finna sér eitthvað við hæfi,
hvort sem það er rómantík, bygg-
ingarlist, menning, verslanir eða sól
og sandur.
Matarmenning ítala er vel þekkt
og margir ferðalangar hvaðanæva
að úr heiminum ferðast til Ítalíu til
að njóta hennar.
Aðaleinkenni matreiðslu lands-
ins er hversu heilsusamleg og ein-
föld hún er. Hráefnið er eldað á ein-
faldan máta og heldur þannig gæð-
um sínum og ferskleika. Þrátt fyrir
einfaldleikann einkennist maturinn
af fjölbreyttum bragðtegundum svo
hinir mestu matgæðingar hrífast af.
ítalskur morgunverður er nokk-
uð sérstæður. Algengt er að fólk fái
sér cappuccino og sætabrauð eða
láti sér espresso duga.
Hádegisverðurinn er stærsta
máltíðin í flestum borgum Ítalíu.
Hann samanstendur af forrétti, síð-
an kemur fyrri aðalrétturinn sem er
yfirleitt pasta, hrísgrjón eða súpa,
síðan kemur seinni aðalrétturinn
sem er kjöt eða fiskur með græn-
meti eða salati. Endað er á ferskum
ávöxtum og 1 lokin er algengt að
fólk fái sér espresso og jafnvel sterk-
an líkjör með.
Kvöldverðurinn er yfirleitt léttur
ef hádegisverðurinn var mikill.
ís er vinsæll á Ítalíu og finna má
óteljandi tegundir. Einnig er al-
gengt að fólk fái sér granita, sem er
mulinn ís með bragðbættu sýrópi.
Á Ítalíu má finna þúsundir veit-
ingastaða og þar sem á Ítalíu eru al-
þjóðlegar höfiiðstöðvar „slow food"
hreyfingarinnar sem hefur það að
leiðarljósi að vilja njóta matarins og
taka tíma í að borða, ólíkt því sem á
sér stað á skyndibitastöðum, þá er
venjan að fara út að borða þegar
fólk hefur tímann fyrir sér.
8. Læsi: 97.4% þjóðarinnar eru læs,
mun meira en gerist i nágranna-
löndum þess enda er miklum fjár-
munum varið f menntamál á eyjunni
eða 7-8% af þjóðarframleiðslunni.
9. Höfuðborg: Bridgetown.
10 Þjóðhátíðardagur: 30. nóvember
en þann dag árið 1966 hlutu þeir
sjálfstæði frá Bretum.