Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2005, Síða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005
Sálin
Marilyn Monroe Varítygjum
við marga menn slna stuttu ævi.
Hjónabandið er
flókið fyrirbæri
Fyrir hjónabandið þarf kon-
an að sofa hjá manninum til að
halda í hann.
Eftir hjónabandið þarf hún
að halda í hann til að geta sofið
hjá honum.
Marilyn Monroe
Hláturæfingar Hláturskæti-
klúbbsins heíjast að nýju í dag
eftir sumarfn og er stefht að því
að æfingar
verði alla
miðviku-
daga í vet-
ur. Æfing-
amar fara
framí
fundarsal
heilsumið- W .
stöðvarinnar
Maður lifandi, Borgartúni 24.
Á staðnum er verslun og veit-
ingastaður með ódýran lífrænt
ræktaðan mat og er fundarsalur-
inn á neðri hæð. Hláturæfingin
hefst stundvíslega kl. 17.30 í dag
og stendur í háffa klukkustund.
Hláturleiðbeinendumir Ásta
Valdimarsdóttir og Kristján
Helgason stjóma æfingunni. Að-
gangseyrir er aðeins 300 krónur
og em allir hjartanlega velkomnir.
Leitað að
sálfræðiaðstoð
Á vefnum doktor.is er að
finna grein sem fjallar um það
ferli að leita sér sálfræðiaðstoð-
ar. Þar má finna lista atriða sem
gott er að hafa til hliðsjónar áður
en lagt er í það verk.
Fyrst er eðlilegt að spyrja sjálfan
sig nokkurra spurninga:
1. Hvers konarhugsanirog hegðun
er aö valda mér vanlíðan?
2. Hvenær og hvar kemur
vanllðanin upp?
3. Hversu oftog lengi llður mér svona?
4. Hvernig truflarþetta llfmitt?
5. Á hvaöa aldri finnst mér æskilegt
að meðferðaraðilinn sé?
6. Hvort vil ég frekar leita
til karls eða konu?
7. Hversu mikið er ég tilbúinn
að leggja á mig til að ná bata?
8. Hvaða markmiðum langar
mig aö ná?
Spurningar sem eðlilegt er að leita
svara við hjá sérfræðingnum áður
en meðferð hefst:
1. Hvaða menntun og reynslu
hefurðu?
2. Hversu lengi hefurðu stundað
meðferðarstörf?
3. Hvaða grunnaðferðum beitirðu
í meðferöarstarfinu?
4. Hversu langan tíma má ég
búast viö að meðferðin taki?
5. Hversu reglulega þyrfti ég að
mæta og hvað erhver tími langur?
6. Hvað kostarhver tími?
7. Mun ég þurfa aö leysa einhver
verkefni milli tíma?
8. Hvað mun mikill tími fara I
heimaverkefni?
9. Sérhæfírðu þig I einhverjum
sérstökum vandkvæðum?
10. Hver er biðtlminn aö komast aö?
11. Muntu vera starfandi samfleytt
næstu mánuði?
Venjulegt fólk getnr breyst í
sadista við vissar aðstæöur
Sæl verið
þið!
Ég var að velta fyrir mér
pyntingunum sem hafa
átt sér stað í fangelsum
í írak, hvers konar
fólk það er sem
hagar sér svona
og hvort sálfræðin
hafi eitthvað reynt
að skýra þetta.
Komdu sæll!
Ein frægasta
rannsókn sem framkvæmd hefur
verið í sálfræði er Stanford-fangels-
istilraunin (Stanford prison ex-
periment). Þessi rannsókn ætti að
geta gefið einhverja skýringu á því
hvað ieiðir fólk til að niðurlægja og
jafnvel pynta aðrar manneskjur.
Tilraun endar með ósköpum
Rannsóknin var framkvæmd
þannig að auglýst var eftir sjálf-
boðaliðum til þess að vera þátttak-
endur í tilraun. Þátttakendur fengu
að vita að um væri að ræða „gervi-
fangelsi" og að valið yrði af handa-
hófi í hlutverk annaðhvort fanga
eða fangavarða. Til þátttöku voru
valdir venjulegir bandarískir há-
skólanemar, sem rannsakendur
töldu að væm í góðu andlegu jafn-
vægi og lausir við geðrænar raskan-
ir. Búið var til fangelsi í háskólan-
um og fengu „fangaverðir" þau fyr-
irmæli að þeir ættu að hafa stjórn á
föngum en mættu ekki nota of-
beldi. Fyrst var ekki mikið um aga
en mjög fljótlega reyndu fangaverð-
ir ýmsar leiðir til að ná stjórn á
föngunum. Fangarnir urðu margir
hverjir fljótlega uppreisnargjarnir
og allt fór að líkjast frekar „eðlilegu"
fangelsi. Fangaverðir tóku til ráðs
að reyna að brjóta upp einingu
meðal fanganna með því að
setja upp fyrirmyndarklefa og
forréttindi. Auk þess var not-
ast við refsingar og jafnvel
niðurlægingu þegar ekki var
farið eftir reglum. Föngum var
skipað f einangrun, skipað að
borða það sem þeir vildu ekki
borða og jafnvel þrífa klósett með
bemm höndum. Það urðu forrétt-
indi að fá að fara á klósett og vom
þeir jafnvel látnir pissa í fötu í klef-
anum sínum. Þeim var skipað að
klæða sig úr fötunum og voru oft
látnir gera armbeygjur í refsingar-
skyni. Þeir voru niðurlægðir með
orðum, lámir gera niðurlægjandi
hluti og niðurlægðir kynferðislega.
Fólk skipar sér í hlutverk
Greinilega var hægt að greina
ákveðin hlutverk sem einstaklingar
tóku sér, jafnt fangar sem fanga-
verðir. Þetta vom hlutverk eins og
uppreisnargjarni fanginn, hlýðni
fanginn, tilfinningamikli fanginn,
fangavörðurinn sem fór algjörlega
eftir reglunum, góði fangavörðurinn
sem gerði greiða og sadistinn sem
niðurlægði fangana. Það sem var
líka merkilegt var að aðstandendur,
prestar og aðrir sem komu að „föng-
unum" reyndu ekki að stöðva rann-
sóknina heldur fóm eftir reglum
„fangelsisins" og reyndu frekar að
fara lagalegu leiðina að úrlausn
heldur en að stöðva tilraunina. Það
sem þótti líka mjög merkilegt var
hversu langt „venjulegir" einstak-
lingar í „andlegu jafnvægi" gátu
gengið þegar þeir fengu vald yfir
öðmm í að niðurlægja og að enginn
skyldi segja: „Stopp, svona gemm
við ekki".
Tilraunin átti að standa yfir í 2
vikur, en eftir 6 daga þótti nauðsyn-
legt að stöðva tilraunina og loka
„fangelsinu" vegna þess hve niður-
lægingin var orðin mikil og andlegt
álag á „föngunum" orðið slæmt. Þá
þegar höfðu aðstandendur tilraun-
arinnar verið neyddir til að sleppa 4
föngum vegna sálræns ástand
þeirra.
Eðlilegir einstaklingar fastir í
óvenjulegum aðstæðum
Zimbardo sem framkvæmdi
þessa rannsókn vill meina að til-
raunin segi okkur að flest illvirki
„einstaklinga" séu afkvæmi þess að
frekar eðlilegir einstaklingar verði
fastir í óvenjulegum aðstæðum sem
þeir hafi ekki hæfni til að takast á
við á eðlilegan hátt. Það sé ekki eins
og áður var talið að persónuleiki
fólks móti algjörlega hegðun þess
heldur sé mun meira hægt að líta á
aðstæður þeirra. í raun er hægt að
segja að hermennimir/fangaverð-
irnir í Íraksstríðinu séu sennilega
frekar líkir fangavörðunum í Stan-
ford-tilrauninni. Ungir einstakling-
ar með ákveðið hlutverk á óeðlileg-
um og erfiðum stað án þess að hafa
fengið verkfæri með sér til þess að
takast á við aðstæðurnar. Eitt leiðir
síðan af öðru þegar þessir einstak-
lingar fá það hlutverk að hafa stjórn
á öðmm einstaklingum (föngum).
Gangiþérvel!
Bjöm Harðarson
sálfræðingur
Fæðingarsturlun getur valdið ofskynjunum og mikilmennskubrjálæði
Lyndisraskanir í kjölfar fæðing-
ar em venjulega flokkaðar í þrennt:
1. Sængurkvennagrátur er
langalgengasta röskunin eftir fæð-
ingu, þar sem talið er að á milli 30
og 75% kvenna fái einkenni hans.
Einkennandi fyrir þetta ástand em
óútreiknanlegar skapsveiflur, ön-
uglyndi, grátköst, almennur kvíði
og tmflanir á svefni og matarlyst.
Þessi einkenni koma fram innan
fárra daga ffá fæðingu og standa í
nokkra daga. Ef þessi einkenni
standa lengur en tvær vikur þá þarf
að meta konuna með tiiliti til þess
hvort alvarlegri veiki sé í uppsigl-
ingu. Fylgjast þarf nánar með þeim
konum með sængukvennagrát sem
hafa sögu um endurtekið þung-
lyndi því að hjá þeim getur sæng-
urkvennagrátur verið fyrirboði
þunglyndis.
2. Fæðingarþunglyndi kemur
fyrir hjá 14% kvenna á íslandi. Þó
að þunglyndiseinkennin komi oft-
ast fram á fyrsta mánuði eftir fæð-
ingu þá kemur þunglyndið stund-
um fram á seinni hluta meðgöng-
unnar. Einkenni fæðingarþung-
lyndis eru venjuiega þau sömu og
þunglyndis almennt, þ.e. þung-
lyndi, áhugaleysi, þreyta og sektar-
kennd. Sjálfsvígshugsanir koma oft
fram. Kvíði og þráhyggjuhugsanir
eru algengar í fæðingarþunglyndi.
T.d. þráhyggjuhugsanir um að geta
gert barninu mein. Einnig er oft til
staðar önuglyndi og svefritruflanir
auk lystarleysis eða matargræðgi.
3. Fæðingarsturlun er sjaldgæft
ástand sem kemur fyrir hjá einni til
tveimur af hverjum þúsund konum
eftir fæðingu. Veikindin byrja
gjarnan skyndilega og oft innan
tveggja til þriggja sólarhringa frá
fæðingu. Hjá langflestum konum
koma einkennin fram á fyrstu 2
vikum eftir fæðingu, en geta komið
allt að 3 mánuðum eftir fæðingu.
Fyrstu einkenni eru oftast eirðar-
leysi, önuglyndi og svefntruflanir.
Fæðingarsturlun einkennist sfðan
af þunglyndi eða oflæti, hegðunar-
truflunum og ranghugmyndum,
sem geta innihaldið sektarkennd,
mikilmennskuhugmyndir eða hug-
myndir um að heimurinn sé að far-
ast. Auk þess geta ofskynjanir átt
sér stað. Einnig má greina truflanir
á svefni og matarlyst auk einbeit-
ingarerfiðleika.
Þetta eru ekki ótengdar raskanir
þar sem hver kona getur haft ein-
kenni frá meira en einni þessara
Tfmabilið eftir fæðingu getur reynst
sumum konum erfitt Taliö er aö á milli 30
og 75 prósent kvenna þjáist afsængur-
kvennagráti.
raskana á sama tíma. Ein röskunin
getur einnig verið undanfari ann-
arrar.