Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2005, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2005, Qupperneq 32
32 MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005 Menning DV Roger Waters Ótt- ast að óperunni sem hann hefur varið átta árum I að semja veröi tekið illa. Rokkarinn óttast að óperu sinni verði illatekið Rokkstjarnan Roger Waters sem best er þekktur fyrir að hafa verið meðlimur hljómsveitarinnar Pink Floyd fyrr á árum ver nú óperuverk sitt með kjafti og klóm.Verkið ber nafnið CAIRA en það myndi útleggjast á (slensku sem Enn er von.Waters óttast að rokkaðdá- endur kunni að fullyrða að óperan sé tilgerðarleg án þess að hafa séð hana. Tónverkið á að gerast á tlmum frönsku byltingarinnar og hefur rokkarinn fyrr- verandi varið átta árum í að semja það og þv( ekki nema von að hann sé sagð- ur dauðskelkaður að gagnrýnendur og aðdáendur taki verkinu illa. Það verður frumflutt í tónlistarhúsi í Róm á Ítalíu í nóvember og segist höfundurinn von- ast innilega eftir hlýjum móttökum. Kórdrengir sem hluta á rokk CJ Port- er-Thaw, Patrick Aspbury og Ben In- man hafa gert risaút- gáfusamning. Kórdrengirslá ígegn Þrír ungir kór- drengir hafa nú gert risasamning við útgáfufyrirtæk- ið Universal ClassicDrengjun- um er lýst sem vasaútgáfu af ten- órunum þremur og eru þeir ellefu og tólf ára gamlir. Þeir eyddu sumrinu í upptökur á plötu sem mun verða frumraun þeirra pilta. Þeim hefur verið veitt mikil athygli og hefur velski kórstjórinn og fyrrverandi barnastjarnan Aled Jones tekið að sér að þjálfa drengina (framtíðinni. Jones segir kórskóla afar sérstaka og viður- kennirað á tímum leikjatölva hafi reynst æ erfiðara að fá hæfileika drengi (nám. Hann bindur því miklar vonir við þessa þrjá drengi en tekur þó fram að að þeir séu allir venjulegir góðir dreng- ir sem hafi áhuga á rokktónlist og fót- bolta. Samskipti fólks af ólíkri menningu Samskipti fólks af ólfkri menningu verða tekin til umfjöllunar (öskju, húsi náttúrufræða við Háskóla (slands næst- komandi föstudag. Fjöldi v(sinda- manna víðs vegar úr Evrópu mun ræða hvaða aðferðir og miðla unnt er að nota milli fólks sem kemur úr ólíkum menningarheimum.Málfundurinn er hluti af stóru samevrópsku verkefni sem kallast ERIC eða„European Reso- urces for Intercultural Communication" og hefur hópurinn sem nú hyggst koma saman einkum það hlutverkað ræða v(sindarannsóknir á samskiptum manna. Þingið verður sett í öskju, nátt- úrufræðahúsi Háskóla (slands klukkan 9.30 og er öllum opið og ókeypis. Málþing við Há- skóla fslands Visindamenn viðs vegar að úr Evr- ópu munu kynna rannsóknir sinar. Bar 11 verður með tónlistarmenn úr ólíkum áttum í kvöld Rokk og kántrí með pönktilþrifum Nóg verður af rokki á Bar 11 í kvöld en þeir sem þar munu stíga á stokk eru hljómsveitin Tilburi, sem stofnuð var í kringum 1990 og gaf út eina smáskífu áður en meðlimir lögðu upp laupana. Hljómsveitin hefur nú verið endurreist á ný og nýr söngvari genginn til liðs við hana. Einnig ætlar rokkparið Heiða og Elvar að sýna gamalkunna takta undir nafninu Hellvar en Heiðu þekkja margir enda hefur hún spil- að í flölda hljómsveita auk þess sem hún gat sér gott orð fyrir útvarps- þátt sinn Næturvörðinn. Parið er nýlega flutt heim eftir að hafa dval- ið í Berlín en þar spiluðu þau á fjölda tónleika og ættu því að vera reynslunni ríkari. Pönkhljómsveitin Örkuml hefur nú söðlað um og skipt bæði um nafn og tónlistarstefnu. Hún leikur nú svokallað Alt-Country undir nafninu Hanoi Jane. Það ætti því að vera nóg að sjá fyrir áhugasama tónlistarunnendur á Bar 11 í kvöld, að minnsta kosti verður af mörgu að taka. Tilburi og fleira Meðal þeirra sem stíga á stokk verður hljómsveitin Tilburi en lítið hefur heyrst til Mikil tiðindi mega það heita að hingað til lands er að koma 60 manna leikhópur frá Moskvu. Alexej Borodin leiðir hópinn og er þjóðarlistamaður Rússa. Hann setti upp tvær leiksýningar á íslandi fyrir nokkrum árum og þá kynntist Pétur Einars- son þessum mikla listamanni sem er af skóla Stanislavskís. hl lisen á rássnesku „Sannarlega er ástæða til að mæra Borodin," segir Pétur Einars- son stórleikari. Dagana 8. til 11. september tekur ÞjóðleUchúsið á móti 60 manna leik- hópi frá.Rússlandi. Leikhópurinn er heimsþekktur og starfar við RAMT- leikhúsið í Moskvu. Leikhússtjóri þar er Alexej Borodin, sem hefur verið útnefndur þjóðarlistamaður Rússlands. Hópurinn ætíar að sýna „En Guð minn góður hvað þetta var mikil upplifun að fá að vinna með þessa aðferð." Pétur Einarsson SegirBorodin fyrsta al- vöru Stanislavskl-manninn sem hann hefur hitt. tvær sýningar í Þjóðleikhúsinu: Kirsuberjagarðinn eftir Tsjekov og Að eUífu eftir Árna Ibsen. Skólaður í Stanislavskí í tíð ÞórhUdar Þorleifsdóttur kom Borodin til landsins og setti upp tvær sýningar: Feður og syni, stór- sýningu eftir Ivan Turgenjev og Djöflana eftir Fjodor Dostojevskí. Pétur Einarsson lék í báðum þessum sýningum og segir ómetan- legt að hafa kynnst Borodin. „Þetta er fyrsti alvöru Stanislavskí-maður- inn sem ég kynnist. Hann lærði hjá einum af læridætrum Stanislavskís og er vel rótfastur í þeirri hefð." Árni Ibsen Rússarnir munu taka tilkost- anna verk eftir Árna og verður athyglisvert að sjá hvernig það kemur út. Úr Kirsuberjagarðinum Borodin leiðir hingað til lands 60 manna leikhóp frá Moskvu. Mikil upplifun að vinna með Borodin Stanislavskí er einhver helsti leikhúsgúru leikhússins og er heUl skóli leiklistarinnar sem byggir á kenningum hans. Þær ganga í gróf- um dráttum út á það að leikarinn lifi sig inn í hlutverkið. „Já, þetta hefur með upplifunina að gera og með hvaða aðferð leikarinn notar til að ná þessari upplifun. Skrítið á íslandi að þegar sagt er innlifun þá fara allir að hugsa inn á við." Pétur segir Borodin mUdnn lista- mann en leikara hér ekki vel skólaða í Stanislavskí. Því hafi oft ekki verið auðvelt að fylgja þessu eftir. „En Guð minn góður hvað þetta var mik- U upplifun að fá að vinna með þessa aðferð." Ætlar að hitta Borodin Farið var út með sýninguna Feð- ur og syni og hún sýnd í leikhúsi Borodins. Pétur segir það hafa verið mikla upplifun en textanum var skotið í eyru leikhúsgesta þýddum með þar tU gerðum heyrnartólum. Og viðtökur voru fi'nar. Pétur ætíar sannarlega að not- færa sér tækifærið og hitta sinn gamla vin og meistara. „Ég er nú hræddur um það. Og sjá sýningarn- ar. Kirsuberjagarðinn og ekki síður Að eUífu eftir Arna Ibsen. Það verður athyglisvert að sjá hvernig Borodin- hópurinn fer með það verk. Að ná leiknum eins sönnum og hægt er. Það er ekki bara markmiðið heldur líka að hafa atburðina eins hreina og mögulegt er." jakob@dv.is Ánægð með að hafa brotið loforðið Björk brýtur loforð fyrir eiginmanninn Ákvörðun Bjarkar um að leUca í kvikmyndinni Drawing Restraint 9 sem nú er sýnd á kvikmyndahátíð- inni í Feneyjum hefur vakið mikla athygli. Ein ástæðnanna fyrir at- hyglinni er sú að eftir að hún lék í Myrkradansaranum, sem frumsýnd var árið 2000, lét hún þau orð falla að hún myndi aldrei nokkurn tím- ann leika aftur í kvikmynd. Söngkonan sérlundaða segist þó ánægð með að hafa brotið þetta lof- orð og snúið aftur í heim kvikmynd- anna en það gerði hún að áeggjan listamannsins og bamsföður henn- ar Matthew Barney en hann sá um leikstjórn myndarinnar. Björk lék ekki aðeins aðalhlut- verk myndarinnar heldur er hún einnig höfundur allra tónsmíða í Allt fyrir Barney Björk segist ánægð með að hafa brotið loforðið sem hún gafsjálfri sér. henni. Hún segist afar ánægð með útkomuna. Myndin þykir mjög list- ræn en í stuttu máli fjallar hún um par á skipreka hvalveiðiskipi. Fólk- ið verður vitni að hryllingi veið- anna en það verður til þess að það heggur af sér fæturna og umbreyt- ist í hvali.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.