Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2005, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2005, Síða 3
BV Fyrst og fremst FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2005 3 Spurning dagsins Ætti að leyfa munntóbak? Veldur krabbameini „Nei, því þetta er heilsuspillandi fyrir góminn og tennurnar og líklegra til að valda krabbameini en reyktóbak, en það ætti nú líka að banna það." Halldór Gröndal nemi. Á „Já, að sjálfsögðu ætti að leyfa það, sér- staklega fyrir hann Ingvar." Ægir Þór Jahnke nemi. . „Já, það ætti að leyfa þetta." Fannar Sveinsson nemi. „Já.það ætti að leyfa þetta, alveg eins og við leyfum sígarettur því það á að vera hverjum manni frjálst að velja og hafna. Allt eða ekkert." Ingvar Ásgríms- „Já.því ekki? Ég hef reyndar aldrei notað þetta svo ég muni eftir." Kristmundur Jónsson nemi. Þrátt fyrir að munntóbak hafi verið bannað með öllu á íslandi fyrir nokkru nýtur það enn mikilla vinsælda. (hverju horni má sjá menn með troðnar tóbaksvarir. *VRI K om mn umi til að Skattheimtan er vinsælt viðfangseíhi í stjórnmálun- um. Sumarflugan í þeim efnum í ár er flatur skattur. Ail- ir eigi að greiða flata prósentu af tekjum sínum í skatt án persónuafsláttar eða annarra tekjujafnandi aðgerða. Þessi della hefur farið eins og faraldur um heiminn. Bent er á lönd eins og Rúmeníu og Hong Kong sem hafa tekið upp þetta kerfl. í öðrum löndum gæla hægri- menn við þessar hugmyndir af verulegum ákafa. Hægrimenn í ÞýskaJandi tefldu þessum hug- myndtun fram í kosningabaráttunni sem þar stendur yfir. Hægrimenn í Bretlandi og Bandaríkj- unum eru með þessa flugu á heilanum. Þetta þykir svo snjallt, þar sem margir mtrnu borga minna í skatt, en verða ákaflega vinnuglaðir og vinna meira og þegar upp er staðið fái ríkið meira í tekjur. En ekki er allt sem sýnist. Athuganir sýna að láglaunafólkið mun borga meira en hátekju- mennimir minna í skatt. Og reynslan eins og í Rúmenfu og Bandaríkjunum sýnir að ríkið fær minna í tekjur og er rekið með botnlaus- um halla. Hægrimenn í Þýskalandi em búnir að átta sig á því að þýska þjóðin hafnar þessu kerfi og keppist við að afneita flata skattinum. Það em einfaldar ástæður fýrir þessu. Sú fyrri að flata kerfið er óréttlátt. Það ívilnar ríkum og íþyngir tekjulágum. Gamli Adam Smith benti á fyrir tveimur öldum að skattheimtan yrði að byggjast á jafnræði milli greiðendanna, að þeir legðu svipað af mörk- um miðað við efni sín. Það er ekki í flata skatt- inum. Þess vegna finnst kjósendum kerfið óréttlátt. Síðari skýringin er ekki síðri. Áherslan á flatan skatt snýst ekki í raun um skatt- lagningu heldur um það að draga úr tekjuöflun ríkisins sem svo bitnar á minni framlögum til heilbrigðiskerf- isins, menntakerfisins og annarra tekjujafiiandi aðgerða. Því er svo mætt með því að láta hvem einstakling axla þyngra skinn í gegnum þjón- ustugjöld. Flati skatturinn er pólitísk stefna hinna ríku og velmegandi. Það hafa kjósendur í Þýskalandi átt- að sig á. Sumarflugan er í dauðateygjunum. Er ekki kominn tími til að skoða fjármagns- tekjuskattinn hér á landi? lla.r i Kristinn H. Gunnarsson Rauðgrænn valkostur íslenskix jafnaðar- menn hafa löngum hafi sérstakt lag á að mis- skilja eða rangtúlka nið- urstöður kosninga út í hinum stóra heimi. Þeir taka þannig jafnan sérstaklega eftir þegar systurflokkar þeirra standa sig þokkalega, en sýna því minni áhuga þegar verr gengur. í ljósi þess að útlit er fyrir að úrslit norsku þingkosninganna þýði að mynduð verði meirihluta- stjórn rauðgrænu flokkanna þar í landi hefur umræða hafist hér á landi um möguleika á íslenskri útgáfu slíks bandalags. Össur Skarphéðinssón ræðir þennan möguleika á vef- síðu sinni og virðist hrif- inn. Visar hann m.a. til góðs samstarfs stjórnar- andstöðuflokkanna á kjörtima- bilinu og góðs gengis þeirra í felast í því fyrir Framsóknar- flokkinn ef Sam- fylking, Vinstri grænir og Frjáls- lyndir færu fram í kosninga- bandalagi. Sömuleiðis tel ég fullvíst að Sjálfstæðis- flokkurinn tæki slíku fagnandi. En ég er: ekki viss um að hinir nú- tímalegu jafnaðarmenn Samfylkingunni séu hrifnir af slíkum hugmyndum, því óvíst er að ýmsar hugmyndir þeirra ættu upp á pallborðið í slíku bandalagi. Ætli þeir taki undir hugmynd- ir Össurar Skarphéðins- sonar? Forvitnilegt verður að sjá hvort ís- lenskir fjölmiðlar ( inna þá eftir því. uistæois- V skoðanakönnunum. Taugabilaður Framsóknarflokkur Helsti galli Sjálfstæðis- flokksins sem príma- donnu er að velja sér veika samstarfs- menn til að fá sjálf að blómstra. Þannig valdi Sjálfstæðis- flokkurinn Framsókn- arflokkinn sem samstarfsflokk. Flokk sem þjáist af taugabilun og vanmetakennd og er sífellt að horfa yfir öxlina og gæta að því hvort einhver sé að ná sér niðri á honum. Sam- fylkingin myndi senni- lega ekki verða þannig. Hún yrði svo glöð yfir því að þjóðin tæki mark á henni að hún myndi sprikla af kæti og sjálfs- ■hsémbi trausti og einhenda sér í það að bæta þjóðfélagið. Ekkert þráir Samfylkingin meir en athygli og ást. Að þvi leyti er hún eins og ungabarn. Og hún þarf einhvern með reynslu og sjálfstraust til að fylgja sér fyrstu sporin til valda. Hún þarf Sjálf- stæðisflokk- Svefnsófar með heilsudýnu Recor — Komdu í verslun okkar að Faxafeni 5 og sjáðu glæsilegan sýningarsal okkar fullan af nýjum svefnsófum. Svefnsófar með heilsudýnu og MicroFiber áklæði í mörgum litum og stærðum. Wimtex Wimtex VW svefnsófi 184x91 cm - Litir Brúnt og svart leður. Svefnsvæði 150x200 cm. Kim svefnsófi 203x95 cm - Litir Camel, hvítur, brúnn. I Svefnsvæði 143x193/215 tm. Sýningarsalur á neðri hæð fullur af nýjum svefnsófum, glæsileg tilboð í gangi! Wimtex svefnsófar eru allir með rúmfatageymslu. Betra \ BAK Faxafeni 5 • Sími 588 8477 • v/ww.betrabak.is Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 11-15

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.